Fréttablaðið - 30.05.2018, Page 4
UMBOÐSAÐILI FIAT - ÞVERHOLTI 6 - 270 MOSFELLSBÆR - S. 534 4433 - WWW.FIATPROFESSIONAL.IS
WWW.ISBAND.IS - ISBAND@ISBAND.IS - OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 - LAUGARDAGA 12-16
FIAT TALENTO BUS
TILBOÐSVERÐ
TAKMARKAÐ MAGN BÍLA Í BOÐI - TIL AFGREIÐSLU STRAX
6 MANNA
3.701.613 ÁN VSK.
4.590.000 MEÐ VSK.
9 MANNA
3.911.290 ÁN VSK.
4.850.000 MEÐ VSK.
LISTAVERÐ MEÐ AUKAHLUTUM
5.850.000 MEÐ VSK.
Búnaður: 125 hö. dísel, 6 gíra, beinskiptur, loftkæling frammi í og aftur í og
stór afturhleri sem opnast upp. Premium pakki: 17” álfelgur, bakkmyndavél,
bakkskynjarar, samlitir stuðarar og hraðastillir. 5 ára ábyrgð o.fl.
kosningar „Úrslitin eru krafa um
breytingar og það fer auðvitað svo-
lítið eftir því hversu opnir þeir eru
fyrir breytingum. Menn verða að
lesa rétt úr niðurstöðum kosninga,“
segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi
forsætisráðherra og félagsmaður í
Viðreisn, spurður að því hvort hann
sjái fyrir sér að Viðreisn semji um
meirihlutasamstarf við Samfylking-
una, Pírata og VG. Þrír síðastnefndu
flokkarnir mynduðu meirihluta
með Bjartri framtíð á síðasta kjör-
tímabili.
Viðreisn fékk 8,16 prósent
atkvæða í kosningunum. Þorsteinn
segir að með því að ná kjöri sem
þriðji stærsti flokkurinn í borgar-
stjórn sé flokkurinn að styrkja
stöðu sína verulega. Samfylkingin
tapaði hins vegar um sex pró-
sentustigum, hlaut um 26 prósent
atkvæða og er næststærsti flokkur-
inn í borgarstjórn. VG tapaði 3,75
prósentum, fékk rétt tæp 4,6 pró-
senta fylgi. Píratar bættu hins vegar
við sig einu prósenti og eru með
7,73 prósent.
Það er álit Þorsteins að í ljósi
þessara úrslita eigi Viðreisn fullt
erindi í meirihlutasamstarf. „Já, til
þess bjóða menn sig fram og þegar
menn fá svona góða kosningu þá
eiga þeir fullt erindi í það,“ segir
Þorsteinn. „Svo verður það bara að
koma í ljós hvernig samningar milli
flokka verða.“
Nýkjörnir borgarfulltrúar halda
flestir spilunum mjög þétt að sér
þessa dagana og láta fátt uppi um
áform sín í meirihlutaviðræðum.
Vitað er að Þórdís Lóa Þórhallsdótt-
ir, oddviti Viðreisnar, hefur bæði átt
samtöl við oddvita flokkanna sem
Hlusta verði á kröfur kjósenda
um breytingar í borgarstjórn
Viðreisn á fullt erindi í meirihlutasamstarf og þarf að hlusta á kröfur kjósenda um breytingar, segir félags-
maður í flokknum. Oddvitar borgarstjórnarflokkanna halda spilum þétt að sér eftir kosningarnar um helg-
ina. Þeir vörðu drjúgum tíma í gær í að ræða við bakland sitt innan flokkanna en næstu skref eru óráðin.
Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal nýkjörin sveitarstjórn taka við störfum 15 dögum eftir kjördag. Þá skal starfs-
aldursforsetinn boða til fyrsta fundar ekki síðar en 15 dögum eftir að sveitarstjórn tekur við störfum. Fréttablaðið/GVa
voru í meirihluta og við Eyþór Arn-
alds, oddvita Sjálfstæðismanna. Þá
liggur jafnframt fyrir að í gær vörðu
frambjóðendur drjúgum tíma í að
ræða við bakland sitt í flokkunum.
Dóra Björt Guðjónsdóttir, odd-
viti Pírata, segir að nærtækast væri
að Viðreisn myndaði meirihluta
með Samfylkingunni, Pírötum og
VG. „Ég held að þetta sé það raun-
hæfasta í stöðunni. Það er bara
takmarkað hvaða meirihlutar eru
mögulegir,“ sagði Dóra Björt í sam-
tali við fréttavefinn Vísi í gær.
Viðreisn er í ákveðinni odda-
stöðu. Dóra Björt segir að Viðreisn
sé komin í þá stöðu vegna þess að
Píratar hafi verið opnir og heiðar-
legir. Þeir hafi ítrekað þá skoðun
sína að ekki væri samstarfsflötur
með Sjálfstæðisflokki. „Það gefur
augaleið að Píratar væru í sömu
oddastöðu ef þeir hefðu haldið því
opnu að vinna til hægri.“
Búast má við því að fyrir helgi
verði komin mynd á það hvaða
flokkar hefja meirihlutaviðræður.
jonhakon@frettabladid.is
Menn verða að lesa
rétt úr niðurstöðum
kosninga.
Þorsteinn Pálsson,
félagsmaður í
Viðreisn og fyrr-
verandi forsætis-
ráðherra
aLÞingi Þingmenn stjórnarand-
stöðunnar gagnrýndu harðlega
vinnubrögð ríkisstjórnarinnar á
þingfundi í gær. Að þessu sinni var
það seint framkomið frumvarp til
persónuverndarlaga sem var skot-
spónninn.
Frumvarpið var lagt fram á þing-
inu í fyrradag en með því er stefnt
að innleiðingu á persónuverndar-
reglugerð Evrópuþingsins og -ráðs-
ins.
Reglugerðin tók gildi í flestum
öðrum Evrópuríkjum þann 25. maí
síðastliðinn.
Þar sem frumvarpið var lagt fram
eftir 1. apríl þurfti að leita samþykk-
is þingsins til að taka það á dagskrá.
Við afgreiðslu á afbrigðunum tóku
stjórnarandstæðingar til máls.
„Hæstvirtum ráðherra getur ekki
verið alvara með að ætla þinginu
viku til að ljúka jafn viðamiklu máli
og hér er um að ræða. Það er í raun
með ólíkindum að eftir að það var
ítrekað kallað eftir því að þetta mál
kæmi fram tímanlega sé verið að
mæla fyrir því viku fyrir þinglok,“
sagði Þorsteinn Víglundsson, þing-
maður Viðreisnar.
„Nú gífuryrðin sem eru hér alltaf
sett fram varðandi vinnulag eiga
auðvitað ekki við nokkur rök að
styðjast,“ sagði Sigríður Á. Ander-
sen dómsmálaráðherra.
Þá benti Birgir Ármannsson, þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, á að frumvarpið hefði verið í
umsagnarferli í Samráðsgátt ríkis-
stjórnarinnar og hægt hefði verið að
koma athugasemdum að þar.
Þorsteinn benti þá á að fyrst
málið hefði legið nær tilbúið í
Samráðsgáttinni hefði verið hægt
að mæla mun fyrr fyrir því. Þing-
mönnum væri ætluð vika til að
kynna sér málið frá grunni, kalla
eftir athugasemdum og vinna úr
málinu í nefnd.
„Ég hef aldrei séð jafnmikla
fádæma vanvirðingu fyrir þinginu
og í þessu máli,“ sagði hann. – jóe
Furða sig á seint framkomnu persónuverndarfrumvarpi
kosningar Bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í Hafnarfirði hefur
í dag formlegar viðræður við Fram-
sókn og óháða um myndun meiri-
hluta í bænum.
„Við erum búin að hitta fulltrúa
allra flokka frá því að niðurstöður
lágu fyrir,“ segir Rósa Guðbjarts-
dóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks, og
bætir því við að þau hjá flokknum
hafi einnig fundað stíft frá kosning-
um. „Við komumst að þeirri niður-
stöðu að við vildum láta á þetta
reyna.“
Rósa telur flokkana tvo standa
nálægt hvor öðrum málefnalega og
að einstaklingarnir á listanum séu
líklegir til að ná saman. Hún er því
bjartsýn fyrir komandi viðræður
flokkanna. – gþs
Viðræður hafnar
í Hafnarfirði
kJaraMÁL „Ég myndi ljúga ef ég
myndi ekki segja að ég gæti verið
sáttari,“ segir Katrín Sif Sigurgeirs-
dóttir, formaður samninganefndar
ljósmæðra. Í gær náðu samninga-
nefndir ríkis og ljósmæðra sam-
komulagi um nýjan kjarasamning.
Það ferli tók níu mánuði. „Það er
táknrænt,“ segir Katrín Sif.
Samningurinn verður nú kynntur
ljósmæðrum. „Við stefnum á að
halda félagsfund á fimmtudaginn og
kynna þetta fyrir okkar félagskon-
um og að því loknu hefst atkvæða-
greiðsla.“
Fjölmargar ljósmæður hafa sagt
starfi sínu lausu í harðri kjarabar-
áttu. Ein uppsögn tekur gildi núna
um mánaðamótin en 19 um þar-
næstu mánaðamót. – la
Ljósmæður náðu
samkomulagi
Katrín Sif
Sigurgeirsdóttir
Persónuverndarreglu-
gerð Evrópusambandsins
(GDPR) tók
gildi í
Evrópu
25. maí
síðast-
liðinn.
3 0 . M a í 2 0 1 8 M i Ð V i k U D a g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a Ð i Ð
3
0
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
F
1
-D
8
6
4
1
F
F
1
-D
7
2
8
1
F
F
1
-D
5
E
C
1
F
F
1
-D
4
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K