Fréttablaðið - 30.05.2018, Page 12
3 0 . m a í 2 0 1 8 m I Ð V I K U D a G U R12 S p o R t ∙ F R É t t a B L a Ð I Ð
sport
Aron Einar
Gunnarsson
Aldur:
29 ára
Staða:
Miðjumaður
Félag:
Cardiff City
Landsleikir:
77/2
17
HanDBoLtI Íslenska kvennalands-
liðið í handbolta mætir því tékk-
neska í kvöld í undankeppni EM
2018. Þetta er síðasti heimaleikur
Íslands í undankeppninni. Íslensku
stelpurnar halda svo til Danmerkur
þar sem þær mæta heimakonum
á laugardaginn í lokaleik sínum í
undankeppninni.
Ísland er á botni síns riðils og
bíður enn eftir sínum fyrsta sigri í
undankeppninni. Möguleikar eru
fyrir hendi í leiknum í kvöld en það
verður við ramman reip að draga
gegn Danmörku sem hefur unnið
alla fjóra leiki sína í undankeppn-
inni.
„Í leiknum gegn Tékkum leggjum
við áherslu á að stöðva seinni
bylgjuna og hraðaupphlaupin hjá
þeim. Við teljum okkur vera komn-
ar lengra með vörnina en í fyrri
leiknum gegn þeim,“ segir lands-
liðsþjálfarinn Axel Stefánsson í sam-
tali við Fréttablaðið. Ísland tapaði
fyrri leiknum gegn Tékklandi með
sjö marka mun, 30-23. Axel segir að
framfarirnar í varnarleiknum séu
talsverðar síðan þá.
„Við teljum okkur hafa vopn á
móti þeirra sóknarleik. En við vitum
að það er erfitt að stöðva þær þegar
þær koma með skriðþungann á
okkur. Það þurfum við að stöðva.
Svo þurfum við að vera óhræddar
að keyra á þær og skora mörk úr
hraðaupphlaupum,“ segir Axel.
Líkamlegir burðir hafa oft orðið
íslenska liðinu að falli en Axel segir
að það horfi til betri vegar í þeim
efnum.
„Þetta er að jafnast. Tékkarnir
hafa ekki þessa hávöxnu og þungu
leikmenn sem við mætum oft. En
það verður erfitt að stöðva [Ivetu]
Luzumová. Hún er mjög klók og
notar hraðann sinn vel. Það verður
lykilatriði að stöðva hana,“ segir
Axel. Luzumová þessi leikur með
þýska liðinu Thüringer og var næst-
markahæst í Meistaradeild Evrópu
í vetur.
Aðspurður kveðst Axel nokkuð
sáttur við markvörsluna hjá íslenska
liðinu í undankeppni EM. „Hún
hefur verið upp og ofan en yfirleitt
góð,“ segir Axel. Hin tvítuga Hafdís
Renötudóttir hefur fengið tækifæri
í síðustu leikjum Íslands og sýnt
góða takta. Hún söðlar um í sumar
og gengur í raðir sænska úrvals-
deildarliðsins Boden frá danska B-
deildarliðinu SönderjyskE sem hún
lék með í vetur.
„Þetta er eitt lítið skref upp á við.
Hún kemur í lið þar sem hún fær
að spila mikið og fær mikla ábyrgð.
Svo vitum við að það er mikil mark-
varðahefð í Svíþjóð þannig að hún
kemur inn í góðan skóla. Það verður
spennandi að sjá hvað gerist því
hún er óslípaður demantur með
sína hæð og snerpu,“ segir Axel að
endingu. ingvithor@frettabladid.is
Teljum okkur komnar lengra
með vörnina en í fyrri leiknum
Ísland lýkur leik í undankeppni EM 2018 kvenna í handbolta í vikunni. Liðið mætir Tékklandi í kvöld og
Danmörku á laugardaginn. Landsliðsþjálfarinn er ánægður með framfarirnar í varnarleik Íslands. Hann
leggur áherslu á að stöðva hraðaupphlaup Tékka og hafa góðar gætur á miðjumanninum Ivetu Luzumová.
Eyjakonan Ester Óskarsdóttir er í lykilhlutverki í varnarleik íslenska liðsins. FréttAbLAðið/Anton brink
kr - breiðablik 0-2
0-1 Agla María Albertsdóttir (20.), 0-2
Berglind Björg Þorvaldsdóttir (84.).
Grindavík - Selfoss 1-1
1-0 Ísabel Jasmín Almarsdóttir (61.), 1-1
Alexis Kiehl (85.).
Hk/Víkingur - Stjarnan 0-1
0-1 Birna Jóhannsdóttir (37.).
Efri
Þór/KA 15
Breiðablik 15
Valur 9
Stjarnan 9
ÍBV 6
neðri
Selfoss 4
Grindavík 4
KR 3
HK/Víkingur 3
FH 3
Nýjast
Pepsi-deild kvenna
HanDBoLtI „Mér líst vel á þessa
leiki og vona innilega að við náum
að byggja ofan á frammistöðuna í
síðasta heimaleik. Hópurinn er stór
og það er mikil samkeppni,“ segir
Karen Knútsdóttir, fyrirliði íslenska
kvennalandsliðsins í handbolta, í
samtali við Fréttablaðið.
Karen verður í eldlínunni þegar
Ísland mætir Tékklandi í síðasta
heimaleik sínum í undankeppni
EM 2018 í kvöld. Á laugardaginn
mætir íslenska liðið svo því danska
í Horsens.
„Þetta eru ekki úrslitaleikir upp
á þennan riðil að gera en gríðarlega
mikilvægir fyrir framtíðina,“ segir
Karen. Hún segir að íslenska liðið
þyrsti í sigur í keppnisleik sem hefur
ekki gerst alltof lengi.
„Við vorum grátlega nálægt því
gegn Slóveníu og það var mjög pirr-
andi. Vonandi bætum við upp fyrir
það núna með góðum leik,“ segir
Karen en Ísland gerði 30-30 jafntefli
við Slóveníu í Laugardalshöllinni
21. mars síðastliðinn. Íslendingar
áttu alla möguleika á að vinna þann
leik en náðu ekki að klára dæmið.
Karen segir að íslenska liðið verði
að halda áfram að taka framförum í
varnarleiknum.
„Við leggjum áherslu á vörnina,
keyra til baka og koma í veg fyrir
hraðaupphlaupin þeirra,“ segir
Karen. „Við spilum vörn sem fá
landslið gera og mótherjarnir eru
því oft ekkert undirbúnir fyrir hana.
Þarna komumst við í meiri „kon-
takt“ og vinnum nokkra bolta sem
léttir á sóknarleiknum. Þessi vörn
hentar okkur mjög vel.“
Karen segir að íslenska liðið
þyrfti að spila stöðugri sóknarleik
en það hefur gert til þessa í undan-
keppninni. Ísland skoraði 30 mörk
í heimaleiknum gegn Slóveníu en
í útileiknum gegn Slóvenum voru
mörkin aðeins átján. Ísland hefur
bara skorað 85 mörk í leikjunum
fjórum í undankeppninni, eða rétt
rúmlega 21 mark að meðaltali í leik.
„Við þurfum að sýna meiri þolin-
mæði, spila betur saman og forð-
ast að fara í einstaklingsframtak
sem við gerum stundum þegar illa
gengur,“ segir Karen sem vantar
aðeins nokkra leiki til að komast í
100 landsleikja klúbbinn sem telur
aðeins sjö leikmenn. – iþs
Vörn sem fá landslið spila
Við leggjum áherslu
á vörnina, að keyra
til baka og koma í veg fyrir
hraðaupphlaupin þeirra.
Karen Knútsdóttir
Tandri meistari
með Skjern
HanDBoLtI Tandri Már Konráðsson
og félagar í Skjern urðu í gær danskir
meistarar í handbolta eftir 26-27
sigur á Bjerringbro/Silkeborg. Þetta
er í annað sinn í sögu félagsins sem
Skjern verður meistari. Það gerðist
einnig árið 1999 en þá lék Aron
Kristjánsson með Skjern.
Tandri komst ekki á blað í leikn-
um í gær en hann leikur aðallega í
vörninni hjá Skjern. Tandri gekk í
raðir félagsins frá Ricoh í Svíþjóð
fyrir tveimur árum.
Auk þess að verða danskir meist-
arar náði Skjern góðum árangri í
Meistaradeild Evrópu í vetur og
komst alla leið í 8-liða úrslit keppn-
innar. – iþs
3
0
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
F
1
-C
E
8
4
1
F
F
1
-C
D
4
8
1
F
F
1
-C
C
0
C
1
F
F
1
-C
A
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K