Fréttablaðið - 30.05.2018, Qupperneq 18
Við munum leggja fram aukið fjármagn í byggingu hótels-ins,“ segir Richard L. Friedman, for-stjóri og aðaleigandi
bandaríska fasteignaþróunarfélags-
ins Carpenter & Company, sem
vinnur að því að reisa fimm stjörnu
Edition hótel við hlið Hörpu. Um er
að ræða fyrsta fimm stjörnu hótel
landsins og hefur það farið níu pró-
sent fram úr áætlun í krónum talið.
„Við höfum ekki formlega gengið
frá fjármögnuninni en við höfum
náð samkomulagi innan hluthafa-
hópsins,“ segir Eggert Dagbjartsson,
fjárfestir í verkefninu, en hann fer
fyrir bandaríska fjárfestingarfélag-
inu Equity Resource Investments.
„Enginn í verkefninu er auralaus.
Við verðum hins vegar að gaum-
gæfa fjárhagshliðina og taka skyn-
samlegar ákvarðanir en ég tel að
verkefnið standi fjárhagslega betur
en þegar við fórum af stað með
það. Það mun kosta meira og verða
meira virði. Verð á hótelherbergjum
í Reykjavík hefur hækkað meira en
sem nemur kostnaði á tímabilinu,“
segir Friedman. Eggert bendir á að
frá árinu 2015 eða 2016 hafi verð á
hótelherbergjum í borginni hækkað
um 50-100 prósent.
Bill Gates og arabískur fursti
Í samtali við Markaðinn bendir
Friedman á að á meðal fjárfesta
séu Bill Gates, stofnandi Microsoft,
og arabískur fursti. „Hann er vinur
minn,“ segir Friedman um furstann.
Spurður hve mikið verkefnið
muni fara fram úr kostnaðaráætlun
segir Friedman að það hafi ekki
enn verið samið við alla sem að
verkinu koma. Eggert segir að árið
2016 þegar kostnaðaráætlunin hafi
verið gerð hafi hún hljóðað upp á 16
milljarða króna en sé nú 17,5 millj-
arðar króna. Meira en 500 milljónir
af hækkuninni séu vegna hækkunar
byggingarvísitölu. Það er þriðjungur
hækkunarinnar. Jafnframt hafi verið
ákveðið að leggja meira í suma þætti
verkefnisins.
Vilja fjárfesta meira í verkinu
Freidman segir að arkitektar og
verkfræðingar hér á landi hafi aldr-
ei áður fengist við að reisa fimm
stjörnu hótel. „Það hefur verið lær-
dómskúrfa. Við erum komnir yfir
þennan hjall. Þetta verður frábært
verkefni.“ Hann bætir við að eftir
því sem Flannery, framkvæmda-
stjóri Edition, og starfsmenn hans
kynnast verkefninu betur komi þeir
auga á frekari tækifæri „og því erum
við að fjárfesta meira í því af því að
við viljum það“.
Friedman segir að kostnaðar-
hækkanir muni „alls ekki“ leiða til
þess hótelið verði annað en fimm
stjörnur. „Viðskiptavinir Edition
hótelsins krefjast fimm stjörnu
hótels sem og stjórnendur hótelsins.
Við erum auk þess skuldbundnir
ríkinu, borginni og fleirum um að
reisa fimm stjörnu hótel. Ef eitt-
hvað er, verður það fimm og hálf
stjarna,“ bætir hann við en skýtur
því jafnframt að, til að fyrirbyggja
misskilning, að sú stjörnugjöf sé
ekki til. Stjörnugjöfin verði aldrei
meiri en fimm.
Hótelið er orðið verðmætara en áður var talið
Richard L. Friedman, aðaleigandi bandaríska fasteignaþróunarfélagsins Carpenter & Company, segir að hluthafar hafi ákveðið að leggja frekara fjármagn í byggingu fimm
stjörnu hótels við Hörpu. Hótelið, sem verður rekið af Edition, hefur farið um 9 prósent fram úr kostnaðaráætlun mælt í krónum en rúmlega 40 prósent mælt í dollurum.
Daniel Flannery, framkvæmadstjóri Edition hótela, Richard L. Friedman, forstjóri fasteignaþróunarfélagsins Carpenter & Company, og Eggert Dagbjartsson, fjárfestir í verkefninu. FRéttaBLaðið/siGtRyGGuR aRi
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
Ég bað starfsmann á
skrifstofunni um að
greina hótelverkefnið og
hann ráðlagði mér að sleppa
því. Hann sagði: Þarna er
engin samkeppni. Ég rak
hann í kjölfarið.
Richard L. Friedman
Eggert hóf störf hjá fjárfestingar-
félaginu Equity Resource Invest-
ments LLC eftir að hann tók hlé
frá námi í Harvard, þar sem hann
nam austurasísk fræði. „Ég byrjaði
sem sérfræðingur í greiningum og
30 árum síðar starfa ég enn þar.“
Nema hvað nú er hann með-
eigandi og stýrir félaginu ásamt
samstarfsfélaga. Spurður út í
námsvalið segist hann hafa á þeim
tíma haft áhuga á að fara til Japans
í viðskiptaerindum.
Hann segir að fjárfestingar-
félagið, sem sérhæfir sig í flóknum
fasteignaviðskiptum, stýri eignum
fyrir um einn milljarð dollara.
Eggert segist ekki hafa fjárfest
mikið á Íslandi. „Við eigum íbúðir
hér á landi því við njótum þess
að heimsækja landið en þetta er
langstærsta fjárfesting mín hér á
landi.“ Hann var á meðal stærstu
hluthafa svefnrannsóknarfyrir-
tækisins Flögu um skeið.
„Það var einskær heppni,“ svarar
hann aðspurður hvers vegna hann
hafi ákveðið að fjárfesta ríkulega
hér á landi nú. Eins og fram hefur
komið var hann beðinn um að líta
á verkefnið.
„Leyfðu mér að svara þessari
spurningu,“ segir Friedman. „Ég
hef þekkt Eggert lengi. Hann
elskar Ísland! Við tveir rekum lítil
fyrirtæki. Við erum ekki með lang-
tímaplan. Eitt leiðir einfaldlega af
öðru.“
Stýrir eins milljarðs dollara fasteignasafni
Eggert
Dagbjartsson
3 0 . m a í 2 0 1 8 m I Ð V I K U D a G U R6 markaðurinn
3
0
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
F
1
-F
1
1
4
1
F
F
1
-E
F
D
8
1
F
F
1
-E
E
9
C
1
F
F
1
-E
D
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K