Fréttablaðið - 30.05.2018, Blaðsíða 20
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vil-
helmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson,
olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 |
Uppþvottakoddarnir fyrir uppþvottavélar frá Fairy komu á markað fyrir
rúmum áratug, en þeir byggja
á þekkingunni sem Fairy hefur
byggt upp við framleiðslu á upp-
þvottalegi síðan um miðja síðustu
öld. Þeir gera uppvaskið auðveld-
ara en nokkru sinni fyrr með því
að eyða þörfinni fyrir það að skola
leirtauið áður en það fer í vélina,
hreinsa leirtauið einstaklega vel
og skila því glansandi.
„Flestir ættu að þekkja græna
eða gula uppþvottalöginn frá
Fairy. Hann hefur hreinsað leirtau
á þúsundum heimila um allan
heim síðan árið 1950 og er sölu-
hæsta vörumerkið á Íslandi,“
segir Snorri Valur Steindórsson,
vörumerkjastjóri hjá sérvörudeild
ÍSAM. „Vörumerkið er helst þekkt
fyrir uppþvottalöginn sinn, sem
er algerlega framúrskarandi, en
það er einmitt þess vegna sem
hann hefur náð þeirri stöðu að
vera mest seldi uppþvottalögur á
Íslandi.“
Óþarfi að skola leirtau
„Fairy uppþvottalögurinn fæst nú
í átta mismunandi útgáfum, sem
hafa allar ólíka kosti, en árið 2006
komu svo líka fyrstu koddarnir
fyrir uppþvottavélar frá Fairy á
markað. Þeir innihalda ekkert
fosfat, eru afskaplega auðveldir
og þægilegir í notkun og þrífa fitu
einstaklega vel,“ segir Snorri. „Það
sem er kannski þægilegast af öllu
við þá er að þeir gera það óþarft
að skola leirtauið fyrir þvott.
Það eru til tvær tegundir af
uppþvottakoddum frá Fairy.
Fairy All in One og Fairy Plat-
inum. Svo er hægt að fá báðar
tegundir í tveimur ilmum, lemon
og original,“ segir Snorri. „Fairy All
in One leysist fljótt upp, þrífur fitu
einstaklega vel af leirtaui og skilar
því glansandi. Það er því engin
þörf á að nota neinn sérstakan
gljáa eða önnur aukaefni.
Fairy Platinum hefur alla sömu
frábæru eiginleikana og Fairy All
in One, en það er mun öflugra
gegn erfiðum blettum, auk þess
sem það hreinsar falda fitu úr
uppþvottavélinni sjálfri og frá-
rennslisrörum,“ segir Snorri. „Ef
fólk skoðar síurnar í vélunum
sínum sér það þetta strax, því
munurinn er mikill.“
Eldhúsið er þungamiðja
heimilisins
„Fairy leggur áherslu á að eldhúsið
sé þungamiðja hvers heimilis,“
segir Snorri. „Það er ekki bara
staður til að búa til og borða mat,
heldur líka staður þar sem við
lærum lexíur fyrir allt lífið og
sköpum minningar með fjöl-
skyldunni.
Fyrirtækið vill hvetja fjöl-
skyldur til að koma saman og
elda spennandi og áhugaverðar
máltíðir saman. Hugmyndin er sú
að styðja við það með því að fram-
leiða vörur sem gera þetta fljótlegt
og auðvelt og eru lausar við allt
vesen, svo fólk geti notið þessara
gæðastunda saman sem lengst,“
segir Snorri. „Þá geta fjölskyldur
átt áreynslulausa og ánægjulega
stund saman þar sem tíminn fer í
sköpun og samvistir, en ekki þrif.“
Snorri Valur Steindórsson, vörumerkjastjóri hjá Sérvörudeild ÍSAM. MYND/ANTON BRINK
Uppþvottakoddarnir frá
Fairy þrífa einstaklega
vel og gefa leirtauinu
góðan gljáa. MYND/ÍSAM
Flestir þekkja upp-
þvottalöginn frá Fairy,
sem hefur verið seldur
síðan árið 1950.
MYND/ÍSAM
Fairy Platinum hefur alla sömu frábæru eigin-
leikana og Fairy All in One, en það er mun
öflugra gegn erfiðum blettum.
Snorri Valur Steindórsson
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . M A Í 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R
3
0
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
F
1
-D
D
5
4
1
F
F
1
-D
C
1
8
1
F
F
1
-D
A
D
C
1
F
F
1
-D
9
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K