Fréttablaðið - 30.05.2018, Síða 36
MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR
Hafðu samband
info@husavidgerdir.is
Sími 565-7070
Finndu okkur á
ALHLIÐA MÚRVERK
ÞAKVIÐGERÐIR
GLUGGASKIPTI
Listarýmið Kvartýra №49 verður opnað á morgun í bakhúsi við Laugaveginn. Það eru þau Elma
Dögg Steingrímsdóttir, Árni Guð-
jónsson og Natalia Sushchenko sem
standa fyrir opnun rýmisins þar sem
tónlist og tíska verða í fyrirrúmi.
„Þetta er verslun að hluta til
þar sem við verðum með föt frá
skemmtilegum, ungum hönnuðum
og frekar öðruvísi en það sem hefur
verið á Íslandi,“ segir Elma Dögg.
Merkin sem verða í boði eru til
dæmis Études (FR), Nanushka (HU),
Reike Nen (KR), Solace London
(UK), SNDKT (UA), Masha Reva
(UA), Sputnik 1985 (RU), Baserange
(FR), House of Holland (UK) og
Ashley Williams (UK).
„Svo er þetta líka tónlistarrými
því að hann Árni þekkir vel til í tón-
listarbransanum hérna á Íslandi
og ætlar að stýra tónlistarhorni.
Stefnan er að vera með tónlistar-
mann mánaðarins. Við erum búin
að heyra í Övari Smárasyni, sem er
einmitt að gefa út plötu núna – hann
verður fyrsti listamaðurinn. Árni
verður líka með podcast samhliða
þessu þar sem hann tekur viðtal við
listamann mánaðarins. Við verðum
með sterkan fókus í tónlistinni þar
sem við veljum fimm vínylplötur í
sölu hverju sinni.“
Elma segir rýmið vera þannig
byggt að auðvelt sé að færa hluti
til og búa til pláss fyrir tónleika,
en á morgun verður einmitt slegið
upp tónleikum í rýminu samhliða
því að opnun þess verður fagnað.
Berndsen og Quest stíga þar á svið
og vígja staðinn.
„Það er kaffihorn líka, þannig
að það er hægt að setjast niður og
skoða blöð með kaffibollanum, en
við verðum með sérpöntuð tímarit
sem er ekki hægt að finna í bóka-
búðunum.“
Partíið hefst klukkan sex á fimmtu-
daginn og í boði verða drykkir.
Gestir eru hvattir til að mæta með
gulan hlut og hlýtur sá sem mætir
með frumlegasta hlutinn verðlaun.
Rétt er að benda á að til að komast á
gestalista er nauðsynlegt að skrá sig á
Facebook-viðburði veislunnar. - sþh
Tíska og tónlist í
fyrirúmi í nýju listarými
Það eru þau Elma Dögg Steingrímsdóttir, Natalia Sushchenko og Árni
Guðjónsson sem standa að rýminu. Fréttablaðið/EyÞór
The Ten, samstarf Nike og Virgils Abloh er lík-lega eitt það farsælasta í sögu strigaskó-tísk-unnar. Af því tilefni hafa Nike og Virgil
gefið út eitt stykki doðrant þar sem
hönnunaferlið er útskýrt í máli og
myndum.
Um er að ræða heilar 258 síður
þar sem ferlið er kortlagt frá byrjun
til enda. Þarna er hverjum skó lýst
allt frá hugmynd til fullbúinnar vöru
og ferðast er um nánast allan heim,
frá höfuðstöðvum Nike í Portland
til tískuborganna Mílanó, New York
og London og svo að lokum er fylgst
með útgáfu þeirra um allan heim.
Bókin er bæði hugsuð sem
skemmtiefni og einnig sem leiðar-
vísir fyrir verðandi tískuhönnuði
sem vilja feta í fótspor Virgils Abloh,
arkitektsins sem á stuttum tíma
varð einn umtalaðasti maður tísku-
heimsins.
Bókina má finna í PDF-formi á
vefsíðu Nike.
stefanthor@frettabladid.is
roger Federer klæddist
air Jordan 1 skóm hönn-
uðum af Virgil í fyrra.
Í bókinni
má sjá
Virgil á kafi
í hönnunar-
vinnu og lesa
um hverjar
pælingar
hans voru á
hverju stigi.
Virgil Abloh og Nike
unnu saman að skó
línunni The Ten sem
má segja að hafi
sigrað heiminn. Um
er að ræða mínímal
ískar útgáfur Virgils
á nokkrum af fræg
ustu strigaskóm
Nike. Þessir risar hafa
nú unnið saman að
bók um verkefnið.
Leiðarvísir
tískurisum
upprennandi
hönnuði frá
fyrir
Hér gefur að
líta alla skó
línunnar.
Virgil abloh og Ken-
dall Jenner mættu
saman á Met Gala.
3 0 . m a í 2 0 1 8 m I Ð V I K U D a G U R20 l í f I Ð ∙ f R É T T a B l a Ð I Ð
Lífið
3
0
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
F
1
-E
7
3
4
1
F
F
1
-E
5
F
8
1
F
F
1
-E
4
B
C
1
F
F
1
-E
3
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
2
9
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K