Fréttablaðið - 29.05.2018, Blaðsíða 9
Fyrir sléttri viku birti ég grein á þessum vettvangi sem var viðbragð við skrifum Tóm-
asar Guðbjartssonar. Hann brást að
vonum snarlega við undir yfirskrift-
inni „Að tala niður náttúruna“. Ekki
verður staðar numið í andsvörum á
meðan Tómas heldur rangfærslum
sínum um Hvalárvirkjun og fleira
áfram.
Sjáum fréttablöð seint og illa
Fyrst er að nefna myndasýninguna,
sem Tómas stóð fyrir hér á Ísafirði
kvöldið fyrir Fossavatnsgönguna
stóru. Reyndar talar Tómas nú um
málþing, þótt hann og félagi hans
hafi verið einu framsögumenn-
irnir. Eftir því sem ég kemst næst
var í boði falleg myndasýning úr
náttúru Íslands með spjalli í lokin.
Uppistaðan í áhorfendahópnum
voru gestir Ísafjarðar, sem voru
komnir vestur til að taka þátt í
Fossavatnsgöngunni daginn eftir.
Íbúar Ísafjarðar voru aftur á móti
margir önnum kafnir við að undir-
búa gönguna fyrir þetta sama fólk.
Tómas segist hafa auglýst við-
burðinn vel á síðum Morgunblaðs-
ins og Fréttablaðsins. Því miður
er útbreiðsla þeirra prentmiðla
heldur lítil hér vestur á fjörðum.
Fréttablaðið er ekki borið í hús á
Vestfjörðum og Morgunblaðið er
áskriftarblað. Það skýrir kannski
af hverju heimamenn vissu seint af
fundinum.
Frábær dagur til fjallaferða
Ég kannast ekki við að hafa fyrr
beint orðum mínum að Tómasi í
greinaskrifum, eins og hann gefur
í skyn, en við höfum reyndar einu
sinni hist í tengslum við náinn ætt-
ingja minn, sem leitaði lækninga
hjá honum. Þar með eru okkar sam-
skipti upptalin, bæði í ræðu og riti.
Ég skrifaði hins vegar grein nýlega
sem bar yfirskriftina „Óaðgengileg
náttúra fyrir vestan“. Væntanlega
hefur Tómas tekið þau skrif til sín.
Hann segir að þar hafi ég fullyrt að
ekki væri hægt að komast að fossum
Ófeigsfjarðar nema einn mánuð
á ári. Það stendur hvergi í minni
grein. Hins vegar vita allir sem til
þekkja að svæðið er erfitt yfirferðar
þorra ársins. Um það verður ekki
deilt og heimamenn í Árneshreppi
og Vestfirðingar flestir vita það
manna best. Vissulega koma góðir
dagar inn á milli og annar í hvíta-
sunnu var einmitt slíkur dagur. Ég
Að tala upp samfélag
Birna Lárusdóttir
upplýsingafulltrúi
VesturVerks
á Ísafirði
hafði því miður ekki tök á að fara
norður í Árneshrepp þann dag, líkt
og Tómas, en naut einstakrar veður-
blíðunnar á fjöllum nær Ísafirði með
fjölskyldunni.
Virkjun vatnsfalla
og hlýnun jarðar
Tómas virðist gera að engu álit
helstu sérfræðinga landsins á sviði
orkumála ásamt niðurstöðu Orku-
bús Vestfjarða, Vestfjarðastofu,
Rannsóknastofnunar Háskólans á
Akureyri, fjölmenns borgarafundar
á Ísafirði í september og samstö-
ðufundar í Gilsfirði á annan í hvíta-
sunnu. Allir þessir telja vægi Hvalár-
virkjunar í framtíðarraforkuöryggi
Vestfirðinga ótvírætt. Niðurstöður
kosninga í hreppsnefnd Árnes-
hrepps á laugardag voru einnig
afgerandi.
Málflutningur á borð við Tómasar
hindrar eðlilega og sjálfbæra inn-
viðauppbyggingu á Vestfjörðum.
Náttúra Íslands brennur á fleirum
en Tómasi Guðbjartssyni. Við Vest-
firðingar höfum kosið að búa hér
í sátt við náttúruna og höfum lýst
fjórðunginn okkar stóriðjulausan. Ef
við horfum á stóru myndina er virkj-
un vatnsfalla til orkuframleiðslu ein
umhverfisvænasta leiðin sem völ er
á til að stemma stigu við notkun
jarðefnaeldsneytis og hlýnun jarð-
ar. Virkjun Hvalár er liður í því. Ég
hefði talið að um þetta gætum við,
umhverfissinnar allra landa, verið á
einu máli. Á grundvelli sjálfbærrar
nýtingar náttúrunnar gætum við
þannig sameinast um að tala upp
samfélagið hér á Vestfjörðum.
Ef við horfum á stóru
myndina er virkjun vatns-
falla til orkuframleiðslu ein
umhverfisvænasta leiðin sem
völ er á til að stemma stigu
við notkun jarðefnaeldsneyt-
is og hlýnun jarðar. Virkjun
Hvalár er liður í því.
Markaðurinn fylgir
Fréttablaðinu á
miðvikudögum
Viðskiptafréttir
sem skipta máli
Isavia boðar til morgunfundar
miðvikudaginn 30. maí kl. 8.30
á Hilton Reykjavik Nordica.
Þar verður fjallað um farþegaþróun
á Keflavíkurflugvelli, áskoranir í ferða-
mennsku á Íslandi og framtíðaruppbyggingu
Keflavíkurflugvallar.
Boðið verður upp á létta morgunhressingu
í upphafi fundar.
Skráning á www.isavia.is/morgunfundur
S K R Á N I N G
I S AV I A . I S/ M O R G U N F U N D U R
H I LT O N R E Y K J AV I K N O R D I C A
3 0 . M A Í K L . 8 . 3 0
Dagskrá:
— Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia,
ávarpar fundinn
F E R Ð A S U M A R I Ð 2 0 1 8 O G F A R Þ E G A Þ R Ó U N
Á K E F L A V Í K U R F L U G V E L L I
— Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Viðskiptasviðs Isavia á Keflavíkurflugvelli
H E F U R F E R ÐA ÞJ Ó N U S TA N N Á Ð F L U G H Æ Ð ?
— Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður
Samtaka ferðaþjónustunnar
A F S TA Ð I N N Í F R A M T Í Ð I N A — U P P BYG G I N G
K E F L AV Í K U R F L U G VA L L A R
— Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri
Tækni- og eignasviðs Isavia á Keflavíkurflugvelli
Fundarstjóri er Elín Árnadóttir,
aðstoðarforstjóri Isavia.
M O R G U N F U N D U R I S A V I A 3 0 . M A Í
F A R Þ E G A R
O G F R A M T Í Ð I N
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 9Þ R i ð J u D A G u R 2 9 . m A í 2 0 1 8
2
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:5
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
E
F
-1
1
6
4
1
F
E
F
-1
0
2
8
1
F
E
F
-0
E
E
C
1
F
E
F
-0
D
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
2
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K