Fréttablaðið - 29.05.2018, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 29.05.2018, Blaðsíða 18
Karl starfaði í átta ár sem forseti bæjarstjórnar í Mos-fellsbæ fyrir Vinstri græn en hann og félagar hans voru braut- ryðjendur í samstarfi VG og Sjálf- stæðisflokks. Karli fannst því slíkt samstarf á landsvísu spennandi og talaði fyrir því opinberlega áður en núverandi samstarf flokkanna á landsvísu varð raunin. Sjálfur hefur hann lagt pólitíkina á hilluna og starfar núna sem bíl- stjóri hjá Matfugli í Mosfellsbæ. „Eftir átta mjög góð ár í bæjar- stjórn fór ég að velta því fyrir mér hvað ég ætti eiginlega að fara að gera. Ég er lærður bókbindari og vann við það á sínum tíma að loknu námi. Gat þó ekki hugsað mér að fara í það starf. Ég hef hins vegar alltaf haft mikla bíladellu. „Mér finnst gaman að keyra flotta og stóra bíla.“ Tímamót í lífinu Karl segir að það hafi því verið ákveðin tímamót í lífi sínu þegar hann varð fimmtugur og settist á skólabekk til að taka meiraprófið. Hann var þó síður en svo elstur í sínum bekk enda eftirspurn mikil eftir bílstjórum. „Eftir meiraprófið réð ég mig til Kynnisferða og starfaði þar í rúm tvö ár. Þar með hafði ég tekið u-beygju í mínu lífi sem mér líkaði vel. Það hefur reynst mér ágætlega að skipta um starfsvettvang og mér finnst skemmtilegt að öðlast reynslu af ýmsu tagi. Draumurinn var svolítið að keyra ferðamenn og kynnast þeim heimi. Ég hef gaman af því að umgangast fólk,“ segir hann. Þegar Karl vann hjá Kynnisferðum keyrði hann í nokkurn tíma rauðu tveggja hæða túristarútuna, City bus, um Reykjavík. Þá kynntist hann ferða- mönnum mjög vel enda þeir einir sem fá sér sæti í vagninum. „Fólk af alls kyns þjóðernum kemur í þessa rútu og margir spyrja mikið um hitt og þetta sem viðkemur borginni og landinu þrátt fyrir að um borð sé sérstakt leiðsögukerfi. Auk þess hafði fólkið gaman af því að segja mér frá margs konar upplifun sinni af landinu okkar,“ segir Karl. Þegar við báðum hann um viðtal var það ekki síst til að spyrja hann hvernig það væri að aka hring eftir hring um Reykjavík með túrista. „Ég get ekki neitað því að það varð leiðigjarnt þegar margir hringir höfðu verið farnir. Sérstaklega vegna þess að þetta er stór bíll og margar götur í borginni mjög þröngar. Það þurfti að fara afar varlega um miðborgina, til dæmis á Geirsgötu og ekki síður á Skóla- vörðuholtinu,“ segir hann. Loks varð Karl þreyttur á Reykjavíkur- rúntinum og réð sig á vöruflutn- ingabíl fyrir Matfugl þar sem hann hefur starfað í tvö ár. Draumurinn var svolítið að keyra ferðamenn og kynnast þeim heimi. Ég hef gaman af því að umgangast fólk. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Fleygar, krabbar, klippur og vibro ripper frá Topa  555-8000 : velanaust.is Vönduð verkfæri sem hlotið hafa lof hjá íslenskum verktökum Úr pólitík í meiraprófið Karl Tómasson er ekki bara þekktur sem trommuleikari Gildrunnar, hann er einnig fyrrverandi for- seti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar. Karl tekur ýmsa snúninga í lífinu því einn daginn ákvað hann að fara í meirapróf og gerast rútubílstjóri. Núna er hann að leggja lokahönd á nýjan hljómdisk. Karl Tómasson segist hafa tekið nokkrar u-beygjur í gegnum lífið. MYND/EYÞÓR Ný plata í haust „Mig langaði að prófa 8-16 vinnu til að hafa meiri tíma fyrir tón- listina,“ bætir hann við en Karl gaf út fyrsta sóló hljómdiskinn sinn, Örlagagaldur, árið 2015. Platan fékk frábæra dóma og var vel tekið á markaðnum. Þess vegna situr hann nú við lokafrágang að næstu plötu sem kemur út í haust. Með Karli vinna margir frábærir tónlist- armenn, meðal þeirra eru áberandi nú eins og á fyrri plötunni: Tryggvi Hübner, Guðmundur Jónsson, Jóhann Helgason og upptöku- stjórinn er sá sami, Ásmundur Jóhannsson. „Þeir hafa allir reynst mér einstaklega vel. Nýja platan verður svo- lítið svipuð og sú fyrsta en það má kannski segja að þetta séu systur- plötur þótt fólk heyri vonandi ýmislegt nýtt. Það verður aðeins meira af rafmagnshljóðfærum í þetta skiptið. Það finnst kannski einhverjum skrítið að maður sé að standa í hljómplötuútgáfu nú til dags en til að þetta sé hægt verður maður að vera mjög duglegur sjálfur að selja plötuna. Hugsan- lega er hægt að ná endum saman á þann hátt en maður fer ekki lengur með disk til sölu í plötubúð, þeirri sögu er lokið. Mér finnst þetta bara það allra skemmtilegasta sem ég geri í lífinu,“ segir Kalli Tomm, eins og hann er ævinlega kallaður, en örugglega eru margir aðdáendur sem bíða nýju plötunnar. 4 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . M A í 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U RvINNuvéLAR oG vöRuBíLAR 2 9 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :5 3 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F E E -F 3 C 4 1 F E E -F 2 8 8 1 F E E -F 1 4 C 1 F E E -F 0 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 2 8 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.