Fréttablaðið - 29.05.2018, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 29.05.2018, Blaðsíða 48
TónlisT HHHHH Verk eftir Saariaho, Sibelius og Bartók. Sinfóníuhljómsveit Íslands Einleikari: Alina Pogostkina Stjórnandi: Daniel Blendulf Eldborg í Hörpu föstudaginn 25. maí Það er einmanalegt að semja tónlist. Tónskáldið gerir það eitt síns liðs, kafar ofan í sál sína og útkoman er kóði nótnaskriftar sem hljóðfæra- leikarar þurfa að umbreyta í lifandi tónlist. Sá viðburður á sér oftar en ekki stað löngu síðar, jafnvel eftir dauða tónskáldsins, eins og þegar Jón Leifs var annars vegar. Þetta ferli var finnska tónskáldinu Jean Sibelius erfitt, og ekki bætti úr skák að viðtökur tónlistar hans voru afar mismunandi eftir landsvæðum. Á sumum stöðum var hann hafinn upp til himna, en annars staðar kall- aður andlaus skallapoppari. Þetta endurspeglaðist í sálarlífi hans, honum fannst hann ýmist vera í beinu sambandi við almættið, eða algerlega misheppnaður. Á end- anum bugaði alkóhólisminn hann sem tónskáld og upp úr fimmtugu hætti hann að semja. Innblásturinn hvarf og kom aldrei aftur. Þessar miklu andstæður í karakt- er Sibeliusar eru auðfundnar í tón- list hans, og frábært dæmi um það mátti heyra á tónleikum Sinfóní- unnar á föstudagskvöldið. Fluttur var fiðlukonsertinn hans, sem er einn sá vinsælasti. Ástæðurnar fyrir því eru einstaklega safaríkar mel- ódíur, kraftmikil dramatísk átök einleiksraddar og hljómsveitar. Einleikari var Alina Pogostkina. Leikur hennar var fínlegur og draumkenndur þegar við átti, en slík augnablik voru tíð í tónlistinni. Inn á milli voru öflugri kaflar, en þeir einkenndust m.a. af hröðum tónahlaupum og þéttum tvígripum, sem voru óaðfinnanlega af hendi leyst. Útkoman var framúrskarandi, ekki síst fyrir það hve Sinfónían spilaði vel. Heildarhljómur einleiks og hljómsveitar var fókuseraður og skemmtilega margbrotinn, enda stjórnandinn, Daniel Blendulf, með allt á hreinu. Aukalagið kom á óvart. Venjulega er það einleiksverk, án undirleiks. En konsertmeistari hljómsveitar- innar, Nicola Lolli, gekk fram og þau Pogostkina fluttu Duo eftir Béla Bartók af leiftrandi glæsimennsku. Fleira góðgæti var á efnisskránni. Vetrarhiminn, Ciel d’hiver, eftir samlanda Sibeliusar, Kaiju Saari- aho, var að vísu dálítið spúkí, en á góðan hátt. Saariaho er eitt þekkt- asta tónskáld vorra tíma, og tónverk hennar eru seiðandi. Hér lá ringul- reið veikra, en þéttra og framandi hljóma til grundvallar, en yfir öllu saman hljómuðu skærar tónahend- ingar, eins og stjörnur á vetrarnóttu. Þetta var flott tónlist, og leikur Sin- fóníunnar var fágaður; nostrað var við hvert smáatriði. Konsert fyrir hljómsveit eftir Bar- tók var lokaverkið á efnisskránni. Konsert er yfirleitt fyrir einleikara og hljómsveit, en hér gegna mis- munandi hljóðfærahópar ein- leikshlutverkinu. Þeir kasta því á milli sín, ef svo má að orði komast. Stemningin í tónlistinni er á tíðum nokkuð þurr og laglínurnar tormelt- ar. Síendurtekin stígandin er þó raf- mögnuð og hápunktarnir yfirgengi- legir, auk þess sem raddsetningin er litrík. Leikur hljómsveitarinnar var stórfenglegur, samtaka og kröftug- ur, og nánast brjálæðislegur í lokin, akkúrat eins og hann átti að vera. Jónas Sen niðursTaða: Magnaður einleikur og hljómsveitarleikur; innblásin tónlist. Sinfóníuhljómsveit, einleikari og stjórnandi í banastuði Alina Pogostkina lék fiðlukonsert Sibeliusar óaðfinnanlega ásamt Sinfóníu- hljómsveit Íslands á föstudagskvöldið. Fréttablaðið/Stefán BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 Staðalbúnaður í Comfort útgáfu er meðal annars: 16” álfelgur, leiðsögukerfi með Íslandskorti, þokuljós, miðstöð með loftkælingu, brekkuhemlun (eingöngu í 4x4), hraðastillir með hraðatakmörkun, fjarlægðarskynjarar að aftan, neyðarhemlunarhjálp, start/stopp búnaður, skyggðar rúður að aftan, hiti í framsætum. Aukalega í Prestige útgáfu: 17” álfelgur, Multiview 360° myndavélakerfi, sjálfvirk miðstöð með loftkælingu, lykillaust aðgengi, leðuráklæði á sætum. E N N E M M / S ÍA / N M 8 7 8 0 8 D a c ia D u s te r 5 x 2 0 a lm e n n m a í Nýr Dacia Duster Gerðu virkilega góð kaup! Sjálfskiptur, framhjóladrifinn Verð frá: 3.650.000 kr. E N N E M M / S ÍA / N M 8 7 8 0 8 D a c ia D u s te r 5 x 2 0 a lm e n n m a í 2 9 . m a í 2 0 1 8 Þ r i ð J u D a G u r menning 2 9 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :5 3 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F E F -1 1 6 4 1 F E F -1 0 2 8 1 F E F -0 E E C 1 F E F -0 D B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 2 8 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.