Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2017, Blaðsíða 34

Ægir - 01.02.2017, Blaðsíða 34
34 Hefur landað 33.000 tonnum á tíu árum Um þessar mundir eru liðin 10 ár frá því að Vestmannaey VE 444 landaði sínum fyrsta farmi í Vestmannaeyjum. Eigandi skipsins er útgerðarfélagið Bergur-Huginn ehf. sem er dótturfyrirtæki Síldarvinnsl- unnar hf. Vestmannaey var smíðuð í Póllandi árið 2007 og er svonefndur þriggja mílna bátur, 291 tonn að stærð og 29 metrar að lengd. Systurskip Vestmannaeyjar, Bergey VE 544, kom síðan nýtt til landsins í ágústmánuði sama ár. Bæði Vestmannaey og Bergey hafa reynst mikil happaskip og alla tíð aflað einstaklega vel, að því er segir í frétt frá Síldarvinnsl- unni. Útgerðar félagið Bergur- Huginn ehf. var stofnað í árslok 1972 í þeim tilgangi að láta smíða skuttogara í Japan og gera hann síðan út. Þessi togari kom til landsins snemma árs 1973 og bar nafnið Vestmanna- ey. Bergur-Huginn gerði Japan- stogarann út allt til ársins 2005 ásamt fleiri skipum. Þegar Vest- mannaey og Bergey komu til landsins árið 2007 urðu skipin í flota fyrirtækisins þrjú, en fyrir var Smáey VE 144. Smáey var síðan seld árið 2012 enda var kvóti félagsins ekki nægur til að unnt væri að fullnýta öll skipin. Frábært skip og hagstætt í rekstri Afli Vestmannaeyjar á þessum 10 árum er rúmlega 33.000 tonn og aflaverðmætið rúm- lega 8,5 milljarðar króna. Skip- stjóri frá upphafi hefur verið Birgir Þór Sverrisson. Á heima- síðu Síldarvinnslunnar birtist á dögunum viðtal við Birgi Þór í tilefni tímamótanna og var skipið þá á ýsuveiðum. „Já við erum að eltast við ýsu núna og það hefur gengið ágætlega. Annars hafa afla- brögðin verið ævintýralega góð frá því að verkfallinu lauk. Hjá okkur hafa veiðiferðirnar gjarn- an verið einn og hálfur til tveir sólarhringar og sá tími hefur dugað okkur til að fá 60-90 tonn. Við höfum komið með fullan bát aftur og aftur. Hjá okkur er aflinn blandaður, en oft er uppistaðan þorskur. Það virðist vera nóg af fiski og ver- tíðarþorskurinn gekk á sín helstu svæði fyrr en oftast áður. Frá verkfalli höfum við fiskað tæplega 900 tonn og aflaverð- mætið er um 175 milljónir króna. Þetta hefur verið veisla,“ sagði Birgir. Þegar Birgir er spurður út í skipið og þann ágæta árangur sem náðst hefur á því á sl. 10 ár- um segir hann Vestmannaey hafi reynst afurða vel frá upp- hafi. „Skipið er frábært og það hefur fiskast vel á það frá fyrsta degi. Þetta er gott sjóskip, vinnuaðstaða um borð er góð og lestarrýmið gott. Þá er skipið afar hagstætt í rekstri. Í stuttu máli sagt þá er þetta vel lukkað skip í alla staði,“ sagði Birgir að lokum. Systurskipið ekki síðra Systurskipið, Bergey, hóf veiðar um fimm mánuðum á eftir Vest- mannaey. Útgerð þess skips hefur verið svipuð og systur- skipsins og á það hefur ávallt aflast vel. Um þessar mundir er afli Bergeyjar frá upphafi um 30.000 tonn og aflaverðmæti tæplega 8 milljarðar króna. Skipstjóri á Bergey sex fyrstu ár- in var Sigurður Guðbjörn Sigur- jónsson en þegar hann fór í land tók Jón Valgeirsson við en Jón hafði áður verið stýrimaður á skipinu. Vestmannaey VE 444 er eitt af farsælum skipum í flotanum og hefur fiskað fyrir vel á níunda milljarð á 10 árum. Mynd: Guðmundur Alfreðsson F réttir Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft. Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að þörfum hvers og eins viðskiptavinar. www.stolpigamar.is Hafðu samband 568 0100 Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.