Ægir - 01.03.2017, Side 9
9
Gengisþróun hefur áhrif á
sölu grásleppuafurðanna, líkt
og annarra útfluttra sjávaraf-
urða en Óskar segir ekki að
fullu ljóst hverju þær skili. „Þessi
grásleppuafurðasala er svolítið
sérstök, menn halda gjarnan að
sér höndum og sjá í hvað stefn-
ir í framleiðslu á vertíðinni en
ég á ekki von á öðru en að það
verði auðvelt að selja hrognin.
Frystir grásleppubúkar fara sem
fyrr á markað í Kína en heildar-
myndin af þessu verður skýrari
þegar kemur fram lengra fram í
maímánuð. Verðið fyrir búkana
í Kína hefur heldur verið að síga
niður frá því sala hófst þangað
fyrir nokkrum árum og því ekki
þróast eins og menn vonuðust
eftir.“
Fersk grásleppuhrogn sækja á
Stærstur hluti grásleppuhrogn-
anna er saltaður hjá Drangi ehf.
en Óskar segir fyrirtækið einnig
vera að reyna fyrir sér með
pökkun og útflutningi á fersk-
um, kældum grásleppuhrogn-
um. Bæði fersku og söltuðu
hrognin eru seld til Svíþjóðar
og Danmerkur.
„Mér sýnist vera talsverð
aukning í fersku hrognunum og
möguleikar til enn frekari vaxt-
ar í þeirri vinnslu. Þetta er tíma-
frekari vinnsla en söltunin því
ná þarf hrognasekkjunum heil-
um en hrognunum er síðan
pakkað í frauðplastkassa fyrir
flug, með svipuðum hætti og
ferkur fiskur er fluttur erlendis.
Skilaverðið fyrir fersku hrognin
er betra en í þeim söltuðu en á
móti kemur að þetta er tíma-
frekt og hentar ekki alltaf fyrir
vinnslurnar.“
Með allar klær úti eftir verkefn-
um
Hjá Drangi er vinnsla einn dag í
viku á skel úr Steingrímsfirði en
þær afurðir fara til innlendra
verslana og veitingahúsa.
„Við höfum bæði fryst skel
og í vaxandi mæli pakkað henni
ferskri fyrir viðskiptavini. Síðan
erum við einnig að vinna makríl
af smábátunum meðan á þeiri
vertíð stendur síðsumars en að
öðru leyti erum við í botnfisk-
vinnslu, hefðbundninni flökun
og frystingu. Við reynum þann-
ig að vera með allar klær úti til
að halda uppi fullri vinnu og
gengur ágætlega. En það má
aldrei slaka á. Skelin er mjög
góður stuðningur fyrir okkur en
grásleppuvertíðin skiptir um-
talsverðu máli. Það er því slæmt
fyrir staðinn og fyrirtækið þegar
vertíðin bregst eins og núna.
Lítil vinnsla eins og þessi á ekki
mikla möguleika í samkeppni
við þær stóru í framleiðslu á
bolfiskafurðum og þess vegna
höfum við farið þá leið að fram-
leiða með gamla laginu, frysta
flök og framleiða léttsaltaða
bita. Bitana framleiðum við í 10
kílóa pakkningar og hefur færst
í vöxt að einstaklingar kaupi
þessa vöru beint frá okkur. Okk-
ur hefur því tekist að efla mark-
að fyrir okkar bolfiskafurðir inn-
anlands. Það er mikilvægt við
þær aðstæður sem hafa verið í
gengisþróun krónunnar að vera
með fæturna líka í innanlands-
markaðnum og smásölunni,
ekki bara í útflutningi,“ segir
Óskar.
Grásleppuvertíðin skiptir miklu
máli á Drangsnesi og að sama
skapi hefur það veruleg áhrif þeg-
ar veiðarnar bregðast á svæðinu,
líkt og í ár. Nú stefnir í að aðeins
verði saltað í um 500 tunnur, eða
um 35% af því sem verkað var í
fyrra á staðnum.
Skúli ST-75 er einn heimabátanna á Drangsnesi sem hafa verið á grásleppu í vor.
Bláskelin er sekkjuð í netpoka og kæld. Varan fer síðan til veitingahúsa
og verslana en öll skelframleiðsla Drangs fer á innanlandsmarkað.
Vinnsla á bláskel sem ræktuð er í Steingrímsfirði er orðin meðal fastra
verkefna hjá fiskvinnslunni Drangi. Einn dag í viku hverri er skipt yfir í
skelvinnsluna.