Ægir - 01.03.2017, Page 14
14
þegar best gengur en það er al-
veg ljóst að það gerist ekki
núna – því miður,“ sagði annar
skipstjóri og sagðist reikna með
að stefna á strandveiðarnar í
sumar.
„Ég hef lítið verið á strand-
veiðunum en það er fátt annað
í boði. Ég hef verið að leigja
kvóta en það er alveg útilokað
að láta það dæmi ganga upp
við þessar aðstæður. Öll gjöld
hafa hækkað en fiskverðið hins
vegar lækkað. Og það nýjasta
er ákvörðun sjávarútvegsráð-
herra um að heimila útgerðum
að geyma meiri kvóta milli ára
en áður, vegna sjómannaverk-
fallsins. Það kippir grunninum
algjörlega undan því að gera út
á leigukvóta og var afkoman
nógu slæm fyrir.“
Sleppan skorin á fiskmarkaðnum
Sýnt er að grásleppuvertíðin
verður aðeins þriðjungur af því
sem var í fyrra á sumum veiði-
svæðum fyrir Norðurlandi. Hjá
Fiskmarkaði Siglufjarðar voru
starfsmenn í óða önn að skera
grásleppu þegar þar var litið
inn. Hrognin eru tekin frá og
tunnurnar fara til verkanda á
Siglufirði. Innyflin fara suður yfir
heiðar í vinnslu hjá Lýsi hf. en
grásleppubúkarnir eru ísaðir og
fluttir til Dalvíkur þar sem þeir
eru frystir fyrir markað í Kína.
Starfsmenn Fiskmarkaðar
Siglufjarðar tóku í sama streng
og sjómennirnir á bryggjunni
og sögðu að vertíðin hjá heima-
bátunum hefði verið mikil von-
brigði. Grásleppa af Grenivíkur-
bátum er líka skorin hjá Fisk-
markaði Siglufjarðar og þó
veiðisvæði þeirra sé litlu austar
en Siglufjarðarbátanna er
Grenivíkurgrásleppan engu að
síður augljóslega vænni, hver
svo sem skýring er þar á. Með-
an tíðindamaður Ægis hafði við-
dvöl á gólfi fiskmarkaðarins
gekk allt eins og smurð vél;
hver grásleppan af annarri var
skorin og frá hverjum afurða-
flokki var gengið eins og vera
ber.
Og svo er bara að vona að
komi betri vertíð næst!
Grásleppan komin í kör á bryggjunni og klár í vinnslu hjá Fiskmarkaði Siglufjarðar.
Starfsmenn hjá Fiskmarkaði Siglufjarðar að skera grásleppuna. Bæði er skorið af heimabátum og tveimur bát-
um á Grenivík.