Ægir - 01.03.2017, Page 22
22
Tvö frumvörp til breytinga á
strandveiðikerfinu hafa verið
lögð fram á Alþingi og eru þar
til meðferðar í atvinnuvega-
nefnd. Annars vegar er um að
ræða frumvarp sex þingmanna
Vinstri hreyfingarinnar græns
framboðs og hins vegar frum-
varp fjögurra þingmanna Pí-
rata.
„Ólympíska“ sóknin hverfi
Þingmenn VG leggja vilja gera
þá meginbreytingu á kerfinu að
veiðidagar í hverju mánuði
verði 12 á strandveiðitímabilinu
2017. Með því verði klippt á
það kapphlaup sem núgildandi
kerfi feli í sér.
„Breytingin sem hér er lögð
til felur einnig í sér aðgerð til að
auka öryggi sjómanna á
strandveiðibátum. Sá ágalli
hefur verið á gildandi fyrir-
komulagi að veiðarnar hafa
verið það sem kallað er „ólymp-
ískar“ sem birtist í því að sjó-
menn hafa keppst um að ná
þeim afla sem heimilað er á
sem skemmstum tíma og áður
en aflaheimildin yrði upp urin.
Þetta hefur leitt til þess að
stundum hafa menn róið á
minni bátum þótt ekki viðraði
til þess og fylgir því að sjálf-
sögðu aukin slysahætta. Með
þeirri breytingu sem hér er
lögð til ætti að vera dregið
mjög úr hvata til „ólympískrar“
sóknar og þar með slysahættu,“
segir í greingargerð með frum-
varpinu en breytingin felur í sér
að horfið er frá því að loka
svæðum í hverjum mánuði
þegar ætluðu veiðimagni er
náð. Frumvarpið miðar við að
veiðar verði eftir sem áður
óheimilar á föstudögum, laug-
ardögum og sunnudögum. „Val
um daga eru einu breytingarn-
ar sem frumvarpið gerir ráð fyr-
ir að verði á fyrirkomulagi
strandveiða. Frumvarpið gerir
ráð fyrir að breytingin sem lögð
er til gildi aðeins fyrir strand-
veiðitímabilið sem hefst 2. maí
næstkomandi. Ekki þykir rétt
að hafa 12 daga val ótíma-
bundið þar sem óvissa er um
hversu mikið strandveiðibátar
veiða með þessu breytta fyrir-
komulagi,“ segir í greinargerð-
inni.
Tvöfalt lengra veiðitímabil
Þingmenn Pírata ganga talsvert
lengra í sínum tillögum. Stóra
breytingin er sú að strandveiði-
tímabilið verði átta mánuðir en
ekki fjórir eins og nú er. Og í
raun verði strandveiðitímabilin
tvö, frá 1. mars til 31. ágúst og
hins vegar frá 1. september til
31. október en sem kunnugt er
hefst nýtt fiskveiðiár 1. septem-
ber. Lagt er til að veiðidagar
verði á þessu tímabili 50 í heild
og að veiðar verði heimilar á
sunnudögum. Óheimilt verði
áfram að stunda strandveiðar á
föstudögum og laugardögum.
Píratar vilja halda 650 kg há-
marksafla á sólarhring en þeir
vilja taka upp nýja aflareglu,
þannig að á árunum 2017, 2018
og 2019 úthluti ráðherra afla-
marki í þorski smiðað við 20%
aflareglu en Hafrannsókna-
stofnun skuli gefa út heildar-
veiði í þorski miðað við 22%
aflareglu og skuli því magni
sem er umfram viðmið um 20%
aflareglu einungis ráðstafað til
strandveiða.
„Í nýrri aflareglu er gert ráð
fyrir að þorskveiðar aukist um
2% af heildarstofni þorks að há-
marki. Full nýting í strandveiði-
kerfinu miðast við að hver bát-
ur fari 50 sinnum á sjó innan
tímabilsins og að hver bátur
taki 650 kg í þorskígildum talið
sem eru 32,5 tonn á hvern bát.
Miðað við 650 báta eru þetta
21.125 tonn. Þó er það fulllangt
gengið í áætlunum að hver bát-
ur nái alltaf hámarki hvers dags
þó að möguleiki sé á að bátum
fjölgi, en fyrstu árin sem strand-
veiðar voru stundaðar voru bát-
arnir 700. Þetta virðist vera
nokkurn veginn hámarksfjöldi
báta miðað við þá báta sem
hægt er að sjósetja á komandi
árum. Nýsmíði báta er dýr
kostnaðarliður við útgerð og
því eru nokkur ár þangað til ný-
ir bátar bætast í pott mögu-
legra sjósækjenda,“ segir í
greinargerð með frumvarpinu.
Tvö þingmál um breyt-
ingar á strandveiðum
Fyrirkomulag strandveiða og breytingar á kerfinu koma til kasta Alþingis.
S
tra
n
d
v
eiði