Ægir - 01.03.2017, Side 24
24
„Heyrðu. Ég er hérna á rúllunni
á Kirkjuhrauni út af Herdísar-
víkinni. Það er búið að vera
ágætis rjátl bara. Annars hefur
þetta verið voðalega gloppótt
hérna eftir stoppið. Einn bátur-
inn er að reka í hann og aðrir að
fá lítið. Auður var til dæmis að
fá 15 tonn hérna rétt hjá okkur
um daginn, en við vorum með
mun minna. Hann er hérna
þorskurinn, en er bara ekki
byrjaður að taka ennþá. Það er
mokveiði í öll önnur veiðarfæri.
Hann er ekki byrjaður að taka
línuna enn, hann er bara enn
að hrygna. Ekki alveg tilbúinn
fyrir okkur ennþá,“ sagði Har-
aldur Björn Björnsson, skip-
stjóri á Gísla Súrssyni, þegar
slegið var á þráðinn til hans úti
á sjó.
Þegar Haraldur kom með
bátinn inn til löndunar síðar um
daginn var annað hljóð í hon-
um. „Við erum með tíu til ellefu
tonn. Þetta er allt að koma.“
Bera um 18 tonn í körum
Gísli Súrsson er gerður út af Ein-
hamri í Grindavík eins og „eigin-
kona hans“ Auður Vésteins. Bát-
arnir hafa verið að fiska mjög
vel. Gísli var með tæp 1.900
tonn í fyrra og Auður rétt rúm
1.900. Þetta eru smábátar af
stærstu gerð, 29 tonn og 14,9
metrar að lengd og bera um 18
tonn í körum. Þeir voru afhentir
árið 2014 og eru því á þriðja ár-
inu núna.
„Þetta skeði líka í fyrra. Þá
byrjaði veiðin ekki fyrr en bara
um 25. -26. apríl. Veiðin var líka
farin að minnka fyrir stoppið,
var í svona 5 til 8 tonnum í
stoppinu, en þá fórum við bara
utar. Það er styst 25 mílur héð-
an í suðvestur út fyrir hrygning-
arhólfið. Nú fer þetta að bresta
á, held ég,“ sagði Haraldur þeg-
ar við snérum okkur aftur að
veiðunum.
Hann segir annars að þetta
gangi bara vel og hann kvarti
ekki. Þeir mokveiddu fyrr í vetur
þegar þeir réru frá Stöðvarfirði.
„Það var mok í janúar og febrú-
Landað úr Gísla Súrssyni.
„Hjónin“ Auður Vésteins og Gísli Súrsson við bryggju í Grindavík. Báðir bátarnir hafa frá upphafi fiskað mjög
vel.
S
m
á
b
á
ta
ú
tg
erð