Ægir - 01.03.2017, Page 25
25
ar fyrir austan. Þá var mokveiði
við Hvítingana, alltaf fullur bát-
ur.“
14 mílna löng lína
Þeir eru með um 20.000 króna
og er línan tæpar 14 mílur. Um
tvo og hálfan tíma tekur að
leggja og átta til níu tíma að
draga ef allt gengur vel. Aflan-
um er landað hjá Einhamri sem
gerir bátana út og fer nánast
allt utan ferskt með flugi, þorsk-
ur og ýsa, en það litla sem er af
öðru fer á markað. „Fiskurinn
hefur verið mjög vænn í vetur.
Ef vandamálið er eitthvað, er
það að hann er of stór. Mér
finnst aflinn alltaf vera að
aukast ár frá ári, hvort það er
vegna þess við erum að verða
betri að veiða eða meira af fisk-
inum er ég ekki viss um.
Ástandið er allavega ekki að
versna, ef eitthvað er, þá er það
að lagast,“ segir Haraldur.
Hann segir að þetta séu
hörku bátar, sérstaklega eftir að
gírókúlan var sett í þá. Það er
700 kílóa stykki sem snýst mörg
þúsund snúninga á mínútu og
stabíliserar veltinginn á bátnum
virkileg vel. „Við fundum alveg
svakalegan mun. Það hvarf
helmingurinn af veltingnum, en
áður fann maður ansi mikið fyr-
ir honum þangað til um tíu
tonn voru komin í bátinn. Þetta
eru burðarmiklir og góðir bátar
og fara núna mjög vel með
mann,“ sagði Haraldur.
Á rúllunni á
Kirkjuhrauni
Skipstjórinn Haraldur Björn Björnsson.
Myndir og texti:
Hjörtur Gíslason.