Ægir - 01.03.2017, Qupperneq 26
26
„Þetta var besti róðurinn eftir
hrygningarstoppið, um sjö
tonn. Fyrstu dagana eftir stopp
var þetta frekar rólegt en nú er
þetta allt að koma. Þó okkur
finnist það kannski ekki mikið í
dag, telst þetta sennilega vera
rótfiskirí á línu miðað við sögu-
legt samhengi. Mikið svona um
og yfir 200 kíló á bala, sé sú við-
miðun notuð. Áður en lokað var
vorum við oft að landa svona 7
tonnum, en eftir opnun hefur
þetta verið 4 til 5 tonn, þar til
nú. En nú er þetta að byrja, við
erum með rúm sjö tonn.“
Þetta segir Magnús Guð-
jónsson, skipstjóri á Indriða
Kristins BA. Hann er með bátinn
á móti Indriða bróður sínum,
föst áhöfn er sex manns en fjór-
ir um borð hverju sinni.
Það er Þórsberg á Tálknafirði
sem gerir bátinn út. Þórsberg
var á sínum tíma stofnað af afa
Magnúsar, Magnúsi Guð-
mundssyni. Indriði Kristins er 22
tonna smábátur smíðaður í
Trefjum og afhentur í desember
2015. Og hafa bræðurnir verið
að róa á honum síðan þá. Þórs-
berg gerði áður út 350 tonna
bát, Kóp, og var með fiskvinnslu
og stjórnaði Guðjón, faðir
Magnúsar fyrirtækinu. Kópur
var smíðaður 1968 og hét upp-
haflega Tálknfirðingur og var
fyrst í eigu Hraðfrystihúss
Tálknafjarðar. Hann var síðan
seldur um 1980 og fór frá
Tálknafirði, en Þórsnes keypti
hann 1982 og hét hann þá Kóp-
ur. Magnús var skipstjóri þar í
10 ár áður en báturinn var seld-
ur.
„Kópur var seldur með kvóta
til Hóps í Grindavík og þeir sem
keyptu voru fyrst og fremst að
Besti túrinn eftir
hrygningarstopp
rætt við Magnús Guðjónsson annan skipstjórann á Indriða Kristins BA
Indriði Kristins kemur til hafnar í Grindavík.
Skipstjórinn Magnús Guðjónsson á krananum
S
m
á
b
á
ta
ú
tg
erð