Ægir - 01.03.2017, Blaðsíða 30
30
Jón Sólmundsson, fiskifræðingur og verkefnisstjóri Hafrannsókna-
stofnunar í stofnmælingum botnfiska nú í vor, segir jákvæðar nið-
urstöður mælinga á þorskstofninum ekki koma á óvart í ljósi þró-
unar undanfarinna ára. Árangur af ákvörðunum um fiskafla séu að
skila sér og reikna megi með sterkri stöðu þorskstofnsins næstu ár
ef umhverfisaðstæður haldast hagstæðar. Jákvæðar breytingar er
einnig að sjá í ýsustofninum eftir langt niðursveifluskeið. Ægir
ræddi við Jón um helstu niðurstöður stofnmælinganna.
Stórþorskurinn vel haldinn
„Hvað þorskinn varðar þá höf-
um við verið að sjá jákvæðar
breytingar jafnt og þétt síðustu
ár sem birtast hvað best í því að
mun meira er af stórum þorski
en áður var. Þegar við reiknum
út meðalþyngdir eru þær mið-
aðar við aldur og við sjáum að í
eldri árgöngum er fiskurinn
mjög vænn en aftur á móti er
meðalþyngdin talsvert minni í
yngstu árgöngum þorsksins.
Hvað lesa má út úr því er ekki
ljóst, annað en hið augljósa að
stærri fiskurinn virðist hafa
greiðari aðgang að fæðu en
minni fiskurinn. Það þarf ekki
endilega að þýða að stærri fisk-
urinn sé að taka fæðuna frá
smærri fiskinum heldur getur
fæðuval og aðgengi að fæðu
verið mismunandi. Ýmislegt
annað getur komið inn í þessa
mynd t.d. ólíkar stofneiningar
sem vaxa mishratt en okkur
skortir rannsóknir á þeim
breytileika,“ segir Jón.
Yngsti þorskárgangurinn slakur
Almennt segir Jón að niður-
stöðurnar sýni að ástandið í
hafinu sé gott gagnvart vexti
og viðgangi helstu fiskistofna.
En er eitthvað í niðurstöðunum
sem kemur á óvart, t.d. einhver
veikleikamerki hvað þorsk-
stofninn snertir?
„Nýjasti árgangurinn af
þorskinum mælist lélegur og
auðvitað eru alltaf vonbrigði að
fá slíkar vísbendingar. Mæling-
arnar gefa góðar vísbendingar
um hvernig árgangarnir eru og
strax og við mælum eins árs
fiskinn þá fáum við sterkar vís-
bendingar um hvort sá árangur
kemur til með að gefa mikið af
sér eða lítið þegar hann kemur
inn í veiðina. Þetta er árgangur
sem ætti að koma inn í veiðina
eftir þrjú ár en á móti vegur að
árgangarnir á undan honum
eru talsvert betri. Þar sem við
erum alltaf að veiða úr mörgum
árgöngum í einu þá er í lagi þó
inn á milli komi slakir árgangar
ef aðrir í kring eru sterkir,“ segir
Jón.
Smáýsan sést á ný
Stofnmælingarnar í ár endur-
spegla þá þróun sem hefur ver-
ið í ýsustofninum, þ.e. tilfærslu
hans norður fyrir landið.
„Þetta fór að gerast í ýsunni
um eða upp úr síðustu alda-
mótum og aðal svæði hennar
er nú frá Vestfjörðum og austur
eftir Norðurlandinu. Mynstrið á
ýsunni er því talsvert ólíkt því
sem var lengstum áður þegar
hún var aðallega fyrir Suður-
landi. Engu að síður fengum við
ýsu allt í kringum landið en við
getum sagt að aðal svæði
hennar sé fyrir norðan. Ýsu-
stofninn hefur verið í lægð en
núna erum við með sterkan
þriggja ára árgang sem er að
koma inn í veiðina, fiskur sem
er að nálgast kíló í stærð. Sjó-
menn eru farnir að verða varir
við þennan árgang og við því
má búast að smáýsa verði
nokkuð algeng á næstunni,
sem ekki hefur verið í langan
tíma. Margir eldri árgangar af
ýsunni eru mjög lélegir þannig
að þarna eru merki um að ýsan
aðeins að rétta við eftir langt
niðursveiflutímabil. Við getum
sagt að á tímabilinu 2008 til
2013 hafi verið samfellt skeið
lélegra árganga og stór ýsa fyrst
og fremst verið áberandi í veið-
inni síðustu ár. Það sjáum við að
er að breytast með sterkari ár-
göngum eftir 2013.“
Loðnan getur haft áhrif á
niðurstöður
Jón segir að þó niðurstaða tog-
ararallsins sé jákvæð þá sé vert
að hafa í huga að óvissuþættir
geti haft áhrif. „Niðurstöður eru
Sterk staða þorskstofns-
ins kemur ekki á óvart
segir Jón Sólmundsson, fiskifræðingur og verkefnastjóri
Hafrannsóknastofnunar
Togað er hringinn í kringum landið í rallinu og er framkvæmdin sú sama og verið hefur frá árinu 1985. Með
því fást samanburðarhæfar upplýsingar um framvinduna milli ára. Myndir: Hafrannsóknastofnunin
Jón Sólmundsson, fiskifræðingur.
F
isk
istofn
a
rn
ir