Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2017, Síða 30

Ægir - 01.03.2017, Síða 30
30 Jón Sólmundsson, fiskifræðingur og verkefnisstjóri Hafrannsókna- stofnunar í stofnmælingum botnfiska nú í vor, segir jákvæðar nið- urstöður mælinga á þorskstofninum ekki koma á óvart í ljósi þró- unar undanfarinna ára. Árangur af ákvörðunum um fiskafla séu að skila sér og reikna megi með sterkri stöðu þorskstofnsins næstu ár ef umhverfisaðstæður haldast hagstæðar. Jákvæðar breytingar er einnig að sjá í ýsustofninum eftir langt niðursveifluskeið. Ægir ræddi við Jón um helstu niðurstöður stofnmælinganna. Stórþorskurinn vel haldinn „Hvað þorskinn varðar þá höf- um við verið að sjá jákvæðar breytingar jafnt og þétt síðustu ár sem birtast hvað best í því að mun meira er af stórum þorski en áður var. Þegar við reiknum út meðalþyngdir eru þær mið- aðar við aldur og við sjáum að í eldri árgöngum er fiskurinn mjög vænn en aftur á móti er meðalþyngdin talsvert minni í yngstu árgöngum þorsksins. Hvað lesa má út úr því er ekki ljóst, annað en hið augljósa að stærri fiskurinn virðist hafa greiðari aðgang að fæðu en minni fiskurinn. Það þarf ekki endilega að þýða að stærri fisk- urinn sé að taka fæðuna frá smærri fiskinum heldur getur fæðuval og aðgengi að fæðu verið mismunandi. Ýmislegt annað getur komið inn í þessa mynd t.d. ólíkar stofneiningar sem vaxa mishratt en okkur skortir rannsóknir á þeim breytileika,“ segir Jón. Yngsti þorskárgangurinn slakur Almennt segir Jón að niður- stöðurnar sýni að ástandið í hafinu sé gott gagnvart vexti og viðgangi helstu fiskistofna. En er eitthvað í niðurstöðunum sem kemur á óvart, t.d. einhver veikleikamerki hvað þorsk- stofninn snertir? „Nýjasti árgangurinn af þorskinum mælist lélegur og auðvitað eru alltaf vonbrigði að fá slíkar vísbendingar. Mæling- arnar gefa góðar vísbendingar um hvernig árgangarnir eru og strax og við mælum eins árs fiskinn þá fáum við sterkar vís- bendingar um hvort sá árangur kemur til með að gefa mikið af sér eða lítið þegar hann kemur inn í veiðina. Þetta er árgangur sem ætti að koma inn í veiðina eftir þrjú ár en á móti vegur að árgangarnir á undan honum eru talsvert betri. Þar sem við erum alltaf að veiða úr mörgum árgöngum í einu þá er í lagi þó inn á milli komi slakir árgangar ef aðrir í kring eru sterkir,“ segir Jón. Smáýsan sést á ný Stofnmælingarnar í ár endur- spegla þá þróun sem hefur ver- ið í ýsustofninum, þ.e. tilfærslu hans norður fyrir landið. „Þetta fór að gerast í ýsunni um eða upp úr síðustu alda- mótum og aðal svæði hennar er nú frá Vestfjörðum og austur eftir Norðurlandinu. Mynstrið á ýsunni er því talsvert ólíkt því sem var lengstum áður þegar hún var aðallega fyrir Suður- landi. Engu að síður fengum við ýsu allt í kringum landið en við getum sagt að aðal svæði hennar sé fyrir norðan. Ýsu- stofninn hefur verið í lægð en núna erum við með sterkan þriggja ára árgang sem er að koma inn í veiðina, fiskur sem er að nálgast kíló í stærð. Sjó- menn eru farnir að verða varir við þennan árgang og við því má búast að smáýsa verði nokkuð algeng á næstunni, sem ekki hefur verið í langan tíma. Margir eldri árgangar af ýsunni eru mjög lélegir þannig að þarna eru merki um að ýsan aðeins að rétta við eftir langt niðursveiflutímabil. Við getum sagt að á tímabilinu 2008 til 2013 hafi verið samfellt skeið lélegra árganga og stór ýsa fyrst og fremst verið áberandi í veið- inni síðustu ár. Það sjáum við að er að breytast með sterkari ár- göngum eftir 2013.“ Loðnan getur haft áhrif á niðurstöður Jón segir að þó niðurstaða tog- ararallsins sé jákvæð þá sé vert að hafa í huga að óvissuþættir geti haft áhrif. „Niðurstöður eru Sterk staða þorskstofns- ins kemur ekki á óvart segir Jón Sólmundsson, fiskifræðingur og verkefnastjóri Hafrannsóknastofnunar Togað er hringinn í kringum landið í rallinu og er framkvæmdin sú sama og verið hefur frá árinu 1985. Með því fást samanburðarhæfar upplýsingar um framvinduna milli ára. Myndir: Hafrannsóknastofnunin Jón Sólmundsson, fiskifræðingur. F isk istofn a rn ir

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.