Ægir - 01.03.2017, Qupperneq 32
32
Þjóðhátíðarstemming var á
bryggjunni í Þorlákshöfn þegar
beinar siglingar færeyska
skipafélagsins Smyril Line
Cargo hófust milli Íslands og
Evrópu þann 7. apríl síðastlið-
inn. Í tilefni tímamótanna var
„opið skip“ um borð í ferjunni
Mykinesi og komu alls um 900
manns að skoða.
„Viðbrögðin hafa verið fram-
ar okkar björtustu vonum. Það
er strax mikil eftirspurn eftir
flutningum á bílum og stórum
tækjum og vinnuvélum til
landsins, ásamt allskyns bygg-
inga- og neytendavörum. Út-
flutningurinn fer líka mjög vel
af stað en þar er farmurinn
mestmegnis fiskur,“ segir Linda
Björk Gunnlaugsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Smyril Line Cargo
á Íslandi.
Með siglingaleiðinni milli
Rotterdam og Þorlákshafnar
stóreykur Smyril Line Cargo
þjónustu sína við íslenska
markaðinn, ekki síst suðvestur-
horn landsins. Ferjan kemur til
Þorlákshafnar á föstudögum,
siglir þaðan samdægurs og er
komin til Rotterdam á mánu-
degi og þaðan fer hún aftur til
Íslands á þriðjudegi, með við-
komu í Færeyjum.
Smyril Line Cargo er fyrsta
skipafélagið sem hefur reglu-
Viðbrögðin framar
björtustu vonum
Siglingar Smyril Line Cargo hafnar milli Þorlákshafnar og Rotterdam
Smyril Line Cargo er fyrsta skipafélagið sem hefur reglubundnar vikulegar siglingar til Þorlákshafnar. Ferjan er engin smásmíði, eins og sjá má og
aðstaðan enn nokkuð þröng, þrátt fyrir miklar hafnarframkvæmdir undanfarið, en frekari úrbætur munu vera fyrirhugaðar. Mynd: -áþj
Alls mættu um 900 manns, ungir sem aldnir, til að skoða ferjuna Mykines þegar hún kom til hafnar í Þorláks-
höfn í fyrstu áætlunarferðinni frá Rotterdam.
S
jóflu
tn
in
g
a
r