Ægir - 01.03.2017, Síða 33
33
bundnar vikulegar millilanda-
siglingar til Þorlákshafnar og í
tilefni tímamótanna var íbúum
Sveitarfélagsins Ölfus, nærsveit-
armönnum og öllum sem
áhuga höfðu boðið að skoða
ferjuna þegar hún kom í fyrsta
sinn til hafnar í Þorlákshöfn.
Mögnuð stund fyrir heimamenn
„Það er bara mögnuð stund að
fá þetta skip hingað og þetta
verkefni og ég held að þetta
hljót bara að vera einn stærsti
dagur í sögu þessa samfélags,“
sagði Gunnsteinn R. Ómarsson,
bæjarstjóri Ölfuss, um komu
skipsins.
Til að undirbúa komu ferj-
unnar hafa staðið yfir miklar
hafnarframkvæmdir í Þorláks-
höfn og er m.a. búið að fjar-
lægja Norðurvararbryggjuna
og dýpka höfnina. Fram-
kvæmdirnar hafa gengið mjög
vel og segir Linda að það hafi
verið mjög ánægjulegt að
vinna með bæði bæjar- og
hafnarstjórn Ölfuss. „Við hjá
Smyril Line Cargo hlökkum til
enn frekara samstarfs á kom-
andi árum.“
Stjórnendur Smyril Line
Cargo í Færeyjum voru við-
staddir athöfnina í Þorlákshöfn í
byrjun apríl og sagði stjórnar-
formaðurinn, Jens Meinhard
Rasmussen, að þeir hefðu gælt
við það í mörg ár að sigla til
Þorlákshafnar. Staðsetningin
væri frábær, rétt hjá Reykjavík,
en þar til nú hefði höfnin verið
vandamálið. Höfnin er góð þó
aðstaðan sé heldur þröng eins
og er en frekari úrbætur eru fyr-
irhugaðar, sagði skipstjóri Myk-
inesins, Johan av Reyni, en ferj-
an er engin smásmíði, eða 19
þúsund tonn, ríflega 138 metra
löng, tæplega 23 metra breið
og getur flutt 90 tengivagna og
500 bíla í hverri ferð.
Mykinesið er með stærstu, ef
ekki stærsta skip sem lagst hef-
ur að bryggju í Þorlákshöfn og
var Hjörtur Bergmann Jónsson
hafnarstjóri að vonum kampa-
kátur á þessum merkisdegi í
sögu byggðalagsins. „Mér finnst
frábært að þetta sé að gerast
og að Smyril Line skuli hafa
kjark og þor að hefja þessar
siglingar.“
Skipstóri ferjunnar, Johan av Reyni, á tali við tvo af gestunum. Hann segir höfnina góða þó aðstaðan sé heldur
þröng en frekari úrbætur séu fyrirhugaðar.