Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2017, Blaðsíða 17

Ægir - 01.09.2017, Blaðsíða 17
17 Rannsóknaleiðangrar norskra og rússneskra vísindamanna í Barentshafi sýna að mikið er þar að finna af þorskseiðum en fjöldi seiða af öðrum tegundum reyndist í meðallagi. Hins vegar getur ónóg dekkun á rannsókn- arsvæðinu þýtt að seiðafjöld- inn geti verið vanmetinn. Rúss- neska rannsóknarskipið Vilnius gat ekki lokið yfirferð sinni í norðlægari hluta hafsins vegna slæms veðurs. Þess vegna geta magnvísitölur fyrir seiði þorsks, ýsu og loðnu verið of lágar. Leiðangrarnir hófust um miðjan ágúst og lauk í byrjun október í norsku lögsögunni, en innan rússnesku lögsögunn- ar stóð leiðangurinn til miðs október. Fjögur skip tóku þátt í leiðöngrunum, þrjú frá Noregi og eitt frá Rússlandi. Þorskur Nýliðun þorsks í Barentshafi hefur verið góð tvö síðustu árin og síðan 2008 hafa margir sterkir árgangar komnir inn í stofninn. Í leiðöngrum þessa árs varð vart við miklar torfur þorskseiða um miðbik Barents- hafsins. Magnvístala ársins er miklu hærri en að meðaltali síð- ustu ár og árgangurinn 2017 telst stór. Síld Nýliðun síldar í Barentshafi hef- ur verið misjöfn síðasta áratug- inn. Árið 2004 kom fram met ár- gangur. Síðan þá er það aðeins 2013 árgangurinn sem er talinn sterkur. Í ár kom í ljós mikil sam- þjöppun síldarseiða um miðbik hafsins og út af Varangerskaga. Árgangur þess árs er því met- inn í meðallagi stór og magn- vísitalan hærri en í fyrra og yfir langtímameðaltali. Loðna Loðnan er lykiltegund í Bar- entshafi. Nýliðun í stofninum hefur verið tiltölulega góð síð- asta áratuginn og árgangarnir 2008, 2012 0g 2016 hafa verið óvenju sterkir. Stofnvístala þessa árs er aðeins undir lang- tímameðaltali og 2017 árgang- urinn telst í meðallagi. Það varð þó vart við miklar þéttingar loðnuseiða við mörk svæðisins, sem ekki náðist að kanna. Því má reikna með að þar sé meira um seiði. Ýsa Nýliðun ýsunnar hefur einnig verið misjöfn en hefur verið í meðallagi síðustu tvo áratug- ina. Nýliðun í ár er metin heldur hærri en langtímameðaltalið og árgangurinn talinn í meðallagi stór. Nú varð vart við mikið af ýsuseiðum í vesturhluta Bar- entshafsins. Góð nýliðun þorsks í Barentshafi Árgangur 2017 af þorski í Barentshafi er metinn stór. F réttir

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.