Ægir - 01.09.2017, Blaðsíða 23
23
Hörpuskelsveiðar
eftir langt hlé
„Dagskammturinn hjá okkur er
sex og hálft tonn á dag, 30 tonn
á viku. Veiðisvæðið er allt sam-
an reitað niður og við erum að
dreifa álaginu á það eftir
ákveðnu fyrirkomulagi. Þannig
skráum við aflann nákvæmlega
niður eftir því hvar er dregið.
Það er verið að sjá hvernig
þetta kemur út og segja má að
um hálfgerðar hafrannsóknir
sé að ræða,“ segir Sigurður Þór-
arinsson, skipstjóri á Leyni SH-
162 í Stykkishólmi en báturinn
stundar nú tilraunaveiðar á
hörpuskel frá Stykkishólmi.
Þær eru liður í rannsóknum og
kortlagningu skelfiskmiða eftir
að veiðum var hætt fyrir rúm-
um áratug þegar stofninn
hrundi.
„Nú eru um tuttugu og tvö
ár síðan ég var á skel síðast. Það
var árið 1995 en við erum enn
með sama veiðarfærið og svip-
aðar græjur og þá var. Það hef-
ur lítið breyst nema að nú er
maður með betri bát,“ segir Sig-
urður.
Sex hífingar á klukkutíma
Veiðarfærið er eins konar plóg-
ur sem dreginn er eftir botnin-
um í fimm til sjö mínútur í einu
og er híft sex sinnum á klukku-
tíma þegar mesta atið er. Það
geta verið alveg upp í tvö tonn
í plógnum en út úr því koma
kannski ekki nema 10% af skel.
Sum svæði eru betri en önnur.
Botninn er misjafn, sem og
þéttleiki skeljarinnar.
Þegar plógurinn er hífður er
hann losaður ofan í síló aftast á
dekkinu og skelin síðan sett á
færiband inn í hreinsivél en síð-
an er það hreinsað frá sem vélin
tekur ekki. Mikil leðja kemur
upp með plógnum og töluvert
af krossfiski. Hann er ekki nýttur
en er engu að síður hirtur því
hann er talinn mesti afræning-
inn á skelinni. Honum er því
fargað í landi. „Þetta er bölvað-
ur skaðvaldur,“ segir Sigurður.
„Við reynum því að hirða sem
mest af honum, sérstaklega þar
sem mikið er af honum.“
Blóðtaka þegar skelveiðunum
var hætt
Farið er út klukkan sex á
morgnana og komið í land
seinni part dags. „Það verður að
vera búið að landa í síðasta lagi
klukkan sjö. Þá er verið að miða
við vinnsluna því skelina þarf
að drepa á kvöldin svo hún sé
vinnsluhæf um morguninn. Það
eru fimm í áhöfn. Við ætluðum
að reyna að vera fjórir en það
gekk ekki. Menn eru bara með
tvær hendur.“
Sigurður er ánægður með
bátinn. Segir að hann sé mjög
öflugur í þetta brúk en að skel-
veiðunum loknum verði farið á
snurvoð, í síðasta lagi um miðj-
an janúar.
„Þessar skelveiðar eru ekki
neitt neitt í dag miðað við það
sem var. Nú eru bara tíu karlar á
tveimur bátum að veiða þetta
en þegar best lét voru 70 til 80
karlar á miklu fleiri bátum. Það
var mikil blóðtaka fyrir byggð-
arlagið þegar veiðunum var
hætt. Þetta er fínn veiðiskapur á
haustin. Gaman að vera innan-
um eyjarnar í góðu veðri. Það
„aksjón“ í þessu meðan veiðin
stendur yfir. Verið að skrapa
botninn og hreinsa skel allan
daginn,“ segir Sigurður.
Sigurður Þórarinsson, skipstjóri á Leyni SH í Stykkishólmi, segir að afli
sé misjafn eftir svæðum en plógurinn er dreginn í fimm til sjö mínútur í
senn. Myndir: Hjörtur Gíslason.
Leynir SH leggur að bryggju eftir veiðiferð.