Ægir - 01.07.2017, Blaðsíða 56
Guðmundur Arason ehf. eða GA Smíðajárn, er fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í innflutningi og sölu á
járni og stáli og tengdri þjónustu. Fyrirtækið
var stofnað af Guðmundi Arasyni járn-
smíðameistara árið 1970, en hann hafði átt
og rekið Borgarsmiðjuna frá árinu 1960.
Guðmundur byrjaði að flytja inn járn og stál
til nota í eigin rekstur, en fljótlega fóru aðrir
að leita til hans vegna efniskaupa. Innflutn-
ingurinn varð sífellt stærri hluti rekstrarins
uns Guðmundur hætti með vélsmiðjuna og
snéri sér eingöngu að innflutningi og sölu. Í
dag er GA Smíðajárn stærsti innflytjandi á
járni og stáli á landinu og forstjóri þess er
dóttir stofnandans, Anna Jóhanna Guð-
mundsdóttir.
Mikil viðskipti við sjávarútveginn
Anna Jóhanna segir fyrirtækið í dag alhliða
birgðastöð fyrir bygginga- og stáliðnaðinn í
landinu. Þau flytja inn efni fyrir verktaka,
vélsmiðjur og stóriðju og stálþil til hafnar-
gerða svo dæmi séu tekin. GA Smíðajárn er í
miklum viðskiptum við fyrirtæki í sjávarút-
vegi og tengdum greinum og nefnir hún
sem dæmi að Marel fái allt sitt ryðfría stál
frá þeim. Hún nefnir líka það skemmtilega
verkefni að hafa átt þátt í að þróa hlaupa-
ketti eða brúkrana í fjóra nýja ísfisktogara
Samherja. Hlaupakettir eru kranar sem
ferðast um vinnslurýmið á brautum svipað
og hafa verið notaðir í virkjunum og stærri
vélsmiðjum en ekki áður verið settir um
borð í fiskiskip svo vitað sé.
Aðföngin flytur GA Smíðajárn til landsins
frá ýmsum löndum í Evrópu og segir Anna
Jóhanna að eftir mikinn samdrátt í efna-
hagshruninu 2008 þegar byggingariðnaður-
inn þurrkaðist nánast út, hafi umsvifin auk-
ist verulega síðustu ár. Síðasta ár var það
besta eftir hrun og magn innflutnings það
sem af er þessu ári er svipað og heldur
meira en í fyrra þótt afkoman sé ekki eins
góð vegna óstöðugleika í gengi.
Þrjár starfsstöðvar
GA Smíðajárn er með starfsstöðvar á þrem-
ur stöðum: höfuðstöðvarnar eru í Skútuvogi
4 í Reykjavík en aðrar starfsstöðvar eru í
Hafnarfirði og á Akureyri. Vegna vaxandi
umsvifa er stefnt að því að stækka hús-
næðið í Hafnarfirði og fyrirtækið hefur verið
að bæta við sig mannskap.
„Það gengur vel hjá okkur, við erum fyr-
irtæki í vexti og við kvörtum ekki. Eins og
hann faðir minn heitinn sagði þá er sama á
hverju gengur: það mun alltaf vanta stál í
landið, jafnvel í kreppum,“ segir Anna Jó-
hanna Guðmundsdóttir, forstjóri GA Smíða-
járns.
ga.is
„Við erum fyrirtæki í vexti og horfum björtum augum til framtíðar,“ segir Anna Jóhanna Guðmundsdóttir, forstjóri GA Smíðajárns.
Það vantar
alltaf stál!
56