Ægir - 01.07.2017, Blaðsíða 58
58
Við munum á þessari sýningu leggja mesta áherslu á nýjasta kerfi Scan-mar sem heitir ScanBas 365. Fyrstu
grunnútfærslu kerfisins kynntum við í
fyrsta skipti á sýningunni í Laugardalshöll í
fyrra og fengum þar mjög góð viðbrögð og
á því ári sem liðið er síðan höfum við þróað
kerfið áfram og sett það upp í mörgum
fiskiskipum, bæði hér á landi og erlendis,“
segir Þórir Matthíasson hjá Scanmar á Ís-
landi en það fyrirtæki verður að vanda á Ís-
lensku sjávarútvegssýningunni í Kópavogi.
Áratuga reynsla í veiðarfæranemum
Norski nemaframleiðandinn Scanmar hefur
að baki sér áratuga reynslu í þróun og
framleiðslu á nemabúnaði fyrir fiskiskip og
hefur frá upphafi átt gott og náið samstarf
við íslenskar fiskiskipaútgerðir. Veiðar-
færanemarnir skila fjölbreyttum
upplýsingum til skipstjórnenda,
breytilegum eftir því um
hvaða nema er að
ræða. Til að
mynda upplýs-
ingum um
staðsetningu á
hlerum og trolli,
aflamagni í veið-
arfæri, straum,
dýpi og margt fleira.
Scanmar framleiðir
einnig botnstykki fyrir tog- veiðiskip,
ýmsa auka- og fylgihluti fyrir nemabúnað-
inn og síðast en ekki síst brúareiningar sem
birta skipsstjórnendum með einföldum
hætti allar þær upplýsingar sem nemabún-
aðurinn sendir frá sér. Í ScanBas kerfinu
birtast upplýsingar frá öllum nemum, sem
og svokölluðu trollauga. Skipstjórnendur
geta þannig fylgst með t.d. streymi fisks inn
í trollið, straumhraða sjávar inn í veiðarfær-
ið, afstöðu veiðarfæris, fjarlægð frá botni
og mörgu öðru.
Umbylt-
ing og
nýtt skjá-
myndaum-
hverfi
„ScanBas 365 er heildar-
uppfærsla á því kerfi sem við
höfum verið með og þróað
undanfarin 15 ár. Kerfið er nú alfarið í
Windows umhverfi sem stóreykur mögu-
leika skipstjórnenda til að laga samsetning-
una á skjámyndunum að sínum þörfum.
Scanmar lagði ríka áherslu á að hanna kerf-
ið út frá því að skipstjórnendur eigi auðvelt
með að vinna með það og að þægilegt sé
að lesa í skjámyndirnar,“ segir Þórir og bætir
við að þeir notendur hér á landi sem hafi
uppfært í nýja kerfið séu hæstánægðir.
„Það er mjög einfalt fyrir þær útgerðir
sem eru með Scanmar nemabúnað í sínum
skipum að skipta yfir í nýja ScanBas 365
kerfið. Það þarf engu að breyta í botn-
stykkjum eða slíku en við mælum með því
að framsetningin sé í stærri skjáum eins og
almennt er að gerast í brúm skipa í dag.
Með stærri skjáum er auðveldara að lesa úr
myndunum og vinna með þær,“ segir Þórir.
Nýir hleranemar kynntir í fyrsta sinn
Önnur nýjung frá Scanmar eru svokallaðir
hæðarnemar og þeir verða í fyrsta skipti
kynntir á Íslensku sjávarútvegssýningunni.
Þar er um að ræða nema sem festir eru á
toghlera og mæla fjarlægð frá botni.
„Þessir nemar koma við hlið hefðbund-
inna hleranema og gera skipstjórnendum
ennþá auðveldara að vinna með staðsetn-
ingu veiðarfærisins. Neminn vinnur í gegn-
um hleranemann sem fyrir er og fær orku
frá honum þannig að ekki þarf að taka
nemann af til að hlaða hann,“ segir Þórir en
þróun hjá Scanmar er stöðug og munu þeir
sem heimsækja bás Scanmar fá innsýn í þá
vinnu.
scanmar.is
Scanmar sýnir nýja
ScanBas 365 kerfið
Með skýrum og góðum skjámyndum getur skipstjórnandinn haft góða yfirsýn til að
vinna með ScanBas 365 kerfið.
Nýr trollnemi frá Scanmar verður kynntur á Íslensku sjáv-
arútvegssýningunni í fyrsta sinn hér á landi.