Ægir - 01.07.2017, Blaðsíða 60
60
Vöruflóra okkar nær til flest allra geira atvinnulífsins og hefur sjávarútveg-urinn verið að koma sterkur inn og
seljum við mikið af persónuhlífum fyrir sjó-
menn, t.d. hlífðarfatnað, hjálma og skó en
einnig gas og súrefnismæla, öryggisblakkir
o.fl. Slysin gera ekki boð á undan sér og um
borð í skipum geta skjótt skapast stór-
hættulegar aðstæður og skynsamlegt að
hafa gert ráðstafanir sem geta bjargað
mannslífum,“ segir Þorsteinn Austri Björns-
son, sölustjóri Dynjanda.
Fyrirtækið Dynjandi ehf. var stofnað árið
1954 og er brautryðjandi á sviði öryggismála
á vinnustöðum hér á landi. Hefur Dynjandi
sérhæft sig í að kynna og útvega viður-
kenndan öryggisbúnað, persónuhlífar og
vinnufatnað fyrir starfsfólk í íslensku at-
vinnulífi og þar er sjávarútvegurinn ekki
undan skilinn.
Vinnufatnaður í tískunni
Þegar litið er yfir úrvalið í verslun Dynjanda
eru þar margir vöruflokkar í boði. Alls kyns
vinnufatnað er hægt að fá, s.s. öryggisskó,
hjálma, samfestinga, hanska, boli, vinnu-
skyrtur og smíðavesti. Mikið af vinnufatnaði
Dynjanda er til í alls kyns útfærslum og má
segja að þar sé um hástískuvöru að ræða,
t.d. hvað skófatnaðinn varðar. Öryggisvörur
hvers konar eru hins vegar í fyrirrúmi, s.s.
augn- og andlitshlífar, eyrnatappar, ryk- og
gasgrímur, heyrnahlífar og gas- og súrefn-
ismælar. Einnig býður Dynjandi úrval fall-
varnarbúnaðar s.s. belti, líf- og öryggislínur
og alls kyns festi- og tengibúnað. „Þá höf-
um við gott úrval af vélum og tækjum og
má þar nefna djúpvatnsdælur, brunndælur,
rafstöðvar, ryk- og vatnssugur, gufugildrur
og háþrýstidælur, m.a. til notkunar um boð í
skipum, svo eitthvað,“ segir Þorsteinn
Austri.
Vaxandi vitundarvakning
Í samvinnu við Vinnueftirlit ríkisins og ör-
yggisfulltrúa margra helstu fyrirtækja hér-
lendis hefur Dynjandi átt drjúgan þátt í að
stuðla að aukinni notkun öryggisbúnaðar
enda hefur búnaðurinn frá Dynjanda ehf.
margoft komið í veg fyrir alvarleg slys á
vinnustöðum. „Sannleikurinn er sá að það
margborgar sig fyrir fyrirtækin að hafa þessi
mál í lagi. Það er gríðarlega mikill ávinning-
ur af því að koma í veg fyrir slys. Við hjá
Dynjanda höfum það að markmiði að halda
forystusæti í að bjóða vörur og þjónustu
sem stuðla að auknu öryggi starfsmanna.
Starfsmenn okkar veita ráðgjöf varðandi
notkun búnaðarins og í því skyni förum við
reglulega út í fyrirtækin, yfirförum búnað-
inn og komum með ábendingar um endur-
nýjun og viðhald. Sem betur fer er skilning-
ur á mikilvægi öryggisbúnaðar stöðugt að
aukast og á þetta við um bæði starfsmenn
og rekstraraðila á vinnustöðum til sjós og
lands.
Velkomin í bás Dynjanda
Dynjandi ehf. er með básinn E 50A á Íslnsku
sjávarútvegssýningunni í Kópavogi. Þor-
steinn Austri segir að þar muni starfsmenn
Dynjanda standa vaktina og sýna gestum og
gangandi allt það nýjasta sem Dynjandi
hefur að bjóða í búnaði sem stuðlar að
auknu öryggi fólks, hvort sem er á sjó eða
landi.
dynjandi.is
Slysin gera ekki
boð á undan sér
Þorsteinn Austri Björnsson, sölustjóri Dynjanda. „Sem betur fer er skilningur á mikilvægi öryggisbúnaðar stöðugt að aukast og á þetta
við um bæði starfsmenn og rekstraraðila á vinnustöðum til sjós og lands.“