Ægir - 01.07.2017, Blaðsíða 90
90
Systurfyrirtækin Vinnuvélar ehf. á Kjal-arnesi og Jötunn ehf. á Selfossi standa saman að sýningarbás á Íslensku sjáv-
arútvegssýningunni í Smáranum og kynna
þar sínar vörur og þjónustu. Meðal tækja-
búnaðar fyrir sjávarútveg sem þar verður
kynntur eru skotbómulyftarar og skriðs-
kóflur frá hinum þekka vélaframleiðanda,
Bobcat, en Vinnuvélar ehf. tóku við umboði
fyrir þessi tæki á síðasta ári. Einnig kynnir
fyrirtækið sjálfvirk smurkerfi fyrir vélbúnað í
sjávarútvegi en þessa tækni má bæði nota í
skipum og úti á sjó.
Skotbómulyftarar og sjálfvirk
smurkerfi
Skotbómulyftara frá Bobcat bjóða Vinnu-
vélar ehf. í fjölbreyttum útfærslum, allt upp
í vélar með fótum og snúningi. Vélarnar
geta því komið að góðum notum við í fisk-
vinnslum og á hafnarsvæði í þjónustu við
skip og báta. Sama er að segja um skriðs-
kóflurnar en þær eru fáanlegar bæði sem
hjólaskóflur og beltavélar.
Auk sölu Bobcat vélanna eru Vinnuvélar
með ýmis önnur umboð, eins og t.d. Dino
vinnulyftur, Carnehl vagna, Indespension
kerrur, Clubcar, Toro og fleiri, ásamt því að
útvega varahluti í allar gerðir vinnuvéla og
vörubíla. Baldur Þórarinsson, sölustjóri hjá
Vinnuvélum ehf., segir sjálfvirku Beka
smurkerfin sem kynnt verða á sýningunni
eiga mikið erindi í sjávarútveginn. „Þetta eru
smurkerfi sem eru þrautreynd á mörgum
sviðum atvinnulífsins, t.d. í vinnuvélum.
Kerfið sem við kynnum á Íslensku sjávarút-
vegssýningunni í ár er sérstaklega þróað út
frá iðnaði og hentar vel bæði í landvinnslum
og stærri skipum,“ segir Baldur.
Vatnsheldur fatnaður og fjórhjól
Af öðrum vörum sem fyrirtækin kynna má
nefna vatnsheldan vinnufatnað frá SealSk-
inz, m.a. sokka, hanska, húfur og lúffur en
Jötunn ehf. hefur selt SealSkinz hér á landi
undanfarin ár og merkið sífellt notið meiri
vinsælda. Allt eru þetta vörur sem eru til-
valdar við erfiðar vinnuaðstæður, líkt og um
borð í skipum og bátum.
Jötunn kynnir einnig á sýningunni
frönsku Goes fjórhjólin sem hefur verið
tekið opnum örmum á íslenskum markaði
eftir að fyrirtækið hóf innflutning á þeim.
Einnig býður fyrirtækið bandarísku snjó-
blásarana frá Toro og loks er að nefna að
Jötunn er einn stærsti seljandi dráttarvéla
hér á landi og hefur umboð fyrir Massey
Ferguson og Valtra. Þær eru fáanlegar í
mörgum gerðum og eru víða ákjósanlegur
kostur á hafnarsvæðum og við sjávarsíðuna.
vinnuvelar.is – jotunn.is
Skotbómulyftari frá Bobcat en
Vinnuvélar ehf. kynna slíka
lyftara og önnur tæki frá Bobcat
á Íslensku
sjávarútvegssýningunni.
Skotbómulyftarar,
smurkerfi og vatnsheldur
vinnufatnaður
Sealskinz eru þrautreyndar vörur við erfiðar veðuraðstæður og henta því vel á sjó og við
sjávarsíðuna. Jötunn ehf. hefur selt Sealskinz hér á landi mörg undanfarin ár.