Ægir - 01.07.2017, Blaðsíða 130
130
Á síðasta ári fengu MD Vélar umboð fyrir Willbrandt Gummitechnik, sem stórt og gamalgróið þýskt fyrirtæki
sem sérhæfir sig m.a. í framleiðslu á
þenslutengjum sem eru notuð til að draga
úr spennu og hávaða á lögnum sem flytja
olíu, kælivatn, heitt vatn, sjó, leysiefni, fitu í
matvælaiðnaði og margt fleira. „Við erum
einnig búin að bæta ýmsu öðru við sem
hægt er að sjá á heimasíðunni okkar, m.a.
slitblöð fyrir snjóplóga, titringsdeifa fyrir
vélbúnað, og ryðfría stálbarka,“ segir Laila
Björk Hjaltadóttir, fjármála- og viðskipta-
stjóri MD Véla.
Traust varahluta- og
viðgerðarþjónusta
MD Vélar hafa um langt árabil annast sölu,
ráðgjöf og þjónustu fyrir Mitsubishi diesel
vélar á Íslandi og öðrum búnaði sem tengist
þeim. MD Vélar hafa einnig einkaumboð hér
á landi og í Færeyjum til sölu á vörum og
þjónustu frá PJ Diesel Engineering AS og PJ
Woodward. PJ Diesel bjóða meðal annars
viðgerðarþjónustu og endurbyggingar á
túrbínum og PJ Woodward eru stórir í var-
hluta- og viðhaldsþjónustu á gangráðum.
„Við reynum að fylgjast vel með þróun-
inni og erum í góðu sambandi við okkar
traustu birgja erlendis. Við erum með allar
helstu rekstrarvörur fyrir Mitsubishi vélarnar
á lager en aðra hluti útvegum við hratt og
vel erlendis frá þegar bilanir koma upp.
Okkar menn er fljótir á staðinn til viðgerða
og svo og höfum bakhjarla í okkar erlendu
samstarfsaðilum þegar um viðameiri verk-
efni er að ræða. Og að sjálfsögðu seljum
einnig annan búnað s.s. kæla, gíra og
skrúfubúnað til að nefna eitthvað,“ segir
Laila Björk að lokum.
mdvelar.is
Nýjung hjá MD Vélum
Laila Björk Hjaltadóttir hjá MD vélum: „Nýjung hjá MD Vélum er einkaumboð fyrir Will-
brandt Gummitechnik á Íslandi.“
Vagnhöfða 12 | 110 Reykjavík | Sími 567 2800 | mdvelar@mdvelar.is | www.mdvelar.is
... í þjónustu við útgerðina
Einnig fást SOLE rafstöðvasett í fjölmörgum út gáfum,
opin eða í hljóðeinangruðum kassa, frá 6,6 kW til 96
kW, 50 Hz við 1500 sn/min eða 60 Hz við 1800 sn/min
Nánari upplýsingar á www.mdvelar.is
BJÓÐUM UPP Á FJÖLBREYTT ÚRVAL DIESELVÉLA
Skrúfuvélar með grunnvélum frá Mitsubishi og Deutz frá 16–272 Hö