Ægir - 01.01.2018, Page 34
34
Heimildir íslenskra skipa til
veiða á þorski innan lögsögu
Norðmanna í Barentshafi á
þessu ári eru 5.662 tonn miðað
við slægðan afla. Auk þess er
heimilt að vera með allt að 30%
meðafla af öðrum tegundum. Í
fyrra voru þessar heimildir
6.882 tonn og hafa þær því
dregist saman um 1.200 tonn
vegna minni heildarkvóta á
þorski í Barentshafi.
Fiskistofa hefur ekki gefið út
heimildir til veiða innan lög-
sögu Rússlands. Þar mátti veiða
í fyrra 4.300 tonn, en tæplega
1.100 tonn af því náðust ekki.
Meðal annars vegna bilunar
togarans Örfiiseyjar RE , sem
stundaði veiðar þar norðurfrá.
Það skip hefur nú mestar
heimildir innan norsku lögsög-
unnar eða 1.270 tonn eftir milli-
færslur frá öðrum HB Granda-
skipum. Örfirisey er þannig að
taka við hlutverki Þerneyjar
sem áður var með mestu heim-
ildirnar, en hún hefur nú verið
seld úr landi. Næsta skip er Arn-
ar HU með 692 tonn og síðan
Björgvin EA með 680 tonn.
Alls fá 15 skip úthlutað
heimildum til veiða innan
norsku lögsögunnar í Barents-
hafi, en aðeins 8 skip stunduðu
veiðar þar í fyrra. Það er því ljóst
að töluverðar millifærslur eiga
enn eftir að eiga sér stað og
gæti það breytt eitthvað röð
efstu skipa.
Í fyrra var Þerney með mest-
an þorskafla íslensku skipanna
úr norsku lögsögunni, 1.556
tonn og næst kom Kleifaberg
RE með 1.192 tonn.
Til veiða á ný eftir bilun
Á dögunum hélt Örfirisey RE
aftur til veiða eftir nokkurra
mánaða stopp en bilun varð í
skipinu þegar það var að veið-
um í rússnesku lögsögunni í
Barentshafi í október. Þá brotn-
aði skiptiteinn í skrúfu skipsins
með þeim afleiðingum að
draga varð það til Svolvær í
Norður-Noregi til viðgerðar.
Að sögn Lofts Bjarna Gíslason-
ar, útgerðarstjóra frystiskipa HB
Granda, þurfti að fá varahluti
senda frá framleiðanda vegna
bilunarinnar. Við blasti einnig
einnig að skipið þyrfti að fara í
hefðbundna klössun á árinu
2018 og því var ákveðið að
klössunin færi fram samhliða
viðgerðinni hjá Skarvik skipa-
smíðastöðinni í Svolvær.
Auk viðgerðarinnar á skrúfu-
búnaðinum var aðalvél tekin
upp, sem og niðurfærslugír.
Viðgerðinni lauk um miðjan
janúar og þá hélt skipið í túr
sem reiknað er með að taki um
40 sólarhringa. Að veiðiferð lok-
inni landar skipið í Reykjavík.
Örfirisey með mestan
kvóta innan norsku
lögsögunnar
Frystitogarinn Örfirisey hefur verið frá veiðum síðan í október vegna bilunar í skrúfubúnaði og upptektar á aðalvél og niðurfærslugír. Skipið er nú
komið á ný til veiða og næg verkefni framundan í Barentshafi.
F
réttir