Morgunblaðið - 22.12.2017, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 22.12.2017, Qupperneq 44
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 356. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR. 1. Er raðmorðingi fundinn í fjöllunum? 2. Ein mesta ráðgátan leyst 3. Hægja vísvitandi á iPhone-símum 4. 25 ár frá getnaði til fæðingar »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Eyþór Ingi hefur síðasta mánuðinn haldið tæplega tuttugu hátíðar- tónleika víðs vegar um landið. Loka- tónleikarnir verða í Dalvíkurkirkju í kvöld kl. 22.15. Þar býður hann upp á jólalega kvöldstund þar sem hann flytur tónlistina einn síns liðs við píanóið eða með gítarinn. Kórar úr heimabyggð syngja með. Morgunblaðið/Eggert Hátíðartónleikar Eyþórs Inga á Dalvík  Mr. Silla, Snorri Helgason, Valdi- mar Guðmunds- son og Örn Eldjárn eru meðal þeirra sem koma fram á jólatónleikum á Kex hosteli í kvöld kl. 21. Að vanda er aðgangur ókeypis. Gestum verður boðið upp á eggjapúns og sykraðar möndlur við tólgarkerta- ljós meðan sígræn íslensk og erlend jólalög eru flutt. Jólatónleikar á Kex hosteli í kvöld  Björgin Halldórsson heldur Þor- láksmessutónleika og matarveislu í Bæjarbíói Hafnarfirði annað kvöld kl. 22. Gestasöngvarar eru Páll Rósin- kranz og Jóhanna Guðrún, en hljóm- sveitina skipa Þórir Úlfarsson á hljómborð, Jón E. Hafsteinsson og Kristján Grétars- son á gítar, Ró- bert Þórhallsson á bassa og Jó- hann Hjörleifs- son á trommur. Húsið er opnað kl. 21. Litlu jól Björgvins í Bæjarbíói á Þorlák Á laugardag (Þorláksmessa) Suðvestan 8-15 m/s með éljum vestantil, en hægari og úrkomulítið um landið austanvert. Á sunnudag (aðfangadagur jóla) Norðaustan 5-13, hvassast NV- til. Snjókoma norðan- og austantil, annars víða él. Frost 0 til 8 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hlýnandi veður. Gengur í suðvestan 8-15 með slydduéljum og kólnar aftur. VEÐUR Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðsfyrirliði í hand- bolta, fór á kostum fyrir Rhein-Neckar Löwen og var markahæsti maður vallarins þegar liðið vann Flensburg í toppslag þýsku 1. deildar- innar í gærkvöld. Guðjón hafði fyrr um daginn skrifað undir nýjan samning við Löwen sem gildir til 2019, en þá verður Guðjón fertug- ur. Hann var í gær valinn handboltamaður ársins. »1 Guðjón hélt vel upp á samninginn Sigurbergur Sveinsson fór á kostum fyrir ÍBV þegar liðið vann Stjörnuna í gærkvöld í síðasta leik Olís-deildar- innar í handbolta fyrir jóla- og EM- hléið langa sem nú er tekið við. Sig- urbergur skoraði níu mörk í leiknum í fjarveru Kára Kristjáns Kristjáns- sonar auk þess sem Róbert Aron Hostert meiddist. ÍBV vann leikinn með þriggja marka mun, 29:26. » 4 Sigurbergur sendi ÍBV í jólafríið í 2. sæti ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Margir verða á faraldsfæti um jólin og eiga þá mikið undir því að greiðfært sé um helstu vegi. Á höfuðborgar- svæðinu og í nágrenni þess heldur Vegagerðin uppi snjómokstri, hálku- vörnum og öðru um hátíðisdagana en hlé verður reyndar gert fyrri part að- fangadagskvölds og á gamlárskvöld. Úti um land er þjónusta á jóladag milli klukkan 10 og 16 og sama á gamlárs- dag nema hvað á milli þéttbýlisstaða til klukkan 17. Hvað vetrarþjónustu Vegagerðarinnar áhrærir má annars segja að landið sé tvískipt; annars vegar suðvesturhornið og hins vegar svæðið frá Borgarnesi og norður um – Snæfellsnes, Dalir, Vestfirðir, Norð- urland, Austfirðir og Suðurland að Steinum undir Eyjafjöllum. Flota vörubíla, snjóblásara, pallbíla, veg- hefla og fleiri tækja, 150 alls, sem not- uð eru til þjónustu á síðarnefnda svæðinu, er stýrt frá vaktstöð Vega- gerðarinnar á Ísafirði þar sem Geir Sigurðsson er í forsvari. Miklar kröfur og efld þjónusta „Kröfur almennings um góða þjón- ustu á þjóðvegunum eru miklar enda hefur hún verið efld til mikilla muna á undanförnum árum. Fólk treystir á að vegum sé haldið greiðfærum en líka að nákvæmar upplýsingar um færð og horfur liggi fyrir. Því kalli höfum við svarað. Sé eitthvað að færð berast til upplýsingaþjónustu Vegagerðarinnar hundruð símtala á degi hverjum, margir leita upplýsinga á vefnum af kortum og myndavélum og þessa upp- lýsingamiðlun stendur til að efla enn frekar, til dæmis í gegnum samfélags- miðla,“ segir Geir og heldur áfram: „Ef eitthvað er að veðri sem orkar tvímælis, sérstaklega á heiðarvegum, þá lokum við vegum. Við byrjuðum á þessu fyrir nokkrum árum og þetta hefur gefist vel. Viðmiðið er að nálgist vindstyrkur 20 metra á sekúndu, sé snjókoma, skyggni lítið og kannski flughálka til viðbótar skuli loka, sem við gerum æ oftar. Flestir sýna þessu skilning, því yfirleitt tekur þetta fljótt af og veldur lítilli röskun. En vissulega eru ekki allir sáttir og „frekjukarlar“ sem telja sig sérfræðinga í samgöngu- málum hringja stundum og hafa hátt.“ Í vaktstöð Vegagerðarinnar á Dag- verðardal við Ísafjörð er fylgst með stöðunni á vegum landsins í gegnum myndavélar sem eru á völdum stöðum við fjölförnustu leiðir. Stöð þessi var opnuð 2009 og hafði fólk þar í fyrstu umsjón með vesturhluta landsins, en í ljósi góðrar reynslu var starfssvæðið víkkað út. Og það er í mörg horn að líta hjá starfsmönnum. Síðdegis hvern dag sendir veðurfræðingur inn spá fyrir næsta sólarhring og er ákveðið í samráði við starfsmenn þjónustu- stöðva Vegagerðarinnar á hverjum stað hver þunginn í þjónustunni skuli vera. Þá sinna bæði eftirlitsbílar og vinnuvélar verktaka vetrarþjónust- unni í ferlivöktun, þannig að nákvæm- lega sést hvar tækin eru stödd og hvert hitastig við jörð er, sem aftur gefur vísbendingu um veggrip. Þá er stjórnstöðin með mennina úti á mörk- inni í símum svo auðvelt er að bregð- ast við. Sinna sönduðu vegunum „Á svæðinu sem við fylgjumst með eru vegarkaflar sem stundum þarf að loka eða geta verið varasamir, svo sem Þröskuldar, Steingrímsfjarðar- heiði, Holtavörðuheiði, Möðrudals- öræfin og Fjarðarheiði. Einnig svæðið við sunnanverðan Vatnajökul þar sem oft er hvasst og tilvikum þar sem við höfum gripið til lokana þar hefur fjölgað. Til útskýringar get ég líka nefnt að á svæðinu sem við sinnum eru vegirnir sandbornir til að bregð- ast við hálku. Slíkt hentar betur á fá- farnari leiðum, en fyrir sunnan, þar sem umferð er mest, er allt saltborið,“ segir Geir. Ljósmynd/Þröstur Jóhannsson Vegamenn Sigurjón J. Sigurðsson t.v. og Jónas Gunnlaugsson t.h. verða á vakt um hátíðarnar. Geir Sigurðsson fær frí. Vegirnir vaktaðir að vestan  Leiðum haldið opnum og 150 tæki úti á vegum Vegagerðin heldur í dag úti þjónustu alla daga vikunnar og allan sólar- hringinn á höfuðborgarsvæðinu og á helstu leiðum út frá því, suður með sjó, að Hvalfjarðargöngum og til Selfoss. Sjö daga reglan gildir einnig um meginleiðir til og milli stærri þéttbýlisstaða á landinu. Þar er þjónustutími á bilinu hálfsjö á morgnana til tíu á kvöldin. „Fyrir um tuttugu árum var vegurinn til Ísafjarðar mokaður þrisvar í viku og leiðin um Möðrudalsöræfi fjórum sinnum sem þótti ekki til- tökumál. Í dag eru kröfurnar allt aðrar og meiri; afurðir fyrirtækja þurfa að komast strax til kaupenda og öll aðföng til rekstrar úti á landi eru flutt jafnóðum að sunnan. Ferðamönnum hefur fjölgað stjarn- fræðilega og því þarf að sinna. Í sveitunum hafa aðstæður breyst; fólk sækir vinnu gjarnan af bæ og börnum er ekið daglega til og frá skóla oft um langan veg sem kallar á örugga vetrarþjónustu – sem okkar er að stýra og veita svo samfélagið hreinlega virki,“ segir Geir að síðustu. Svo samfélagið virki ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN Valur situr í toppsæti Dominos- deildar kvenna í körfuknattleik þegar liðin átta fara í jólafrí og er með fjög- urra stiga forskot á Hauka og Kefla- vík í annars mjög jafnri deild. Morg- unblaðið ræddi við landsliðskonuna Hallveigu Jónsdóttur hjá Val og hinn kornunga þjálfara liðsins, Darra Frey Atlason, um velgengni Vals hingað til á keppnistímabilinu. »2-3 Valskonur eru með góða stöðu í jólafríinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.