Barnablaðið - 24.12.2017, Síða 5
Hefurðu fengið kartöflu í skóinn?
Nei, aldrei. Við erum alltaf stilltir bræðurn-
ir. Kannski ekki alltaf, kannski stundum.
Við erum eiginlega alltaf stilltir.
Hver eru uppáhaldsjólalögin þín?
Snjókorn falla og Það á að gefa börnum
brauð. Við syngjum í samsöng og eða
tónmennt og það finnst mér gaman.
Hvað er skemmtilegast að gera?
Að hitta Baldur Tý. Hann er besti vinur
minn í Vestmannaeyjum.
Það er líka gaman að leika með sjóræn-
ingjaskip sem er hjá ömmu Laufeyju í
Vestmannaeyjum en heima finnst mér
skemmtilegast að leika með sjóræn-
ingjaskip sem amma og afi gáfu mér
í fjölskylduafmælinu. Ég ætla
kannski að taka mitt skip
með til Vestmannaeyja.
Í hvaða skóla ertu og
hvað er skemmtileg-
ast að gera?
Ég er í Salaskóla og
mér finnst skemmti-
legast að fara í
smiðjur. Ég veit aldrei
hvað maður á að gera
þar. Núna er ég kominn
í sköpun og tækni. Við
erum búin að gera jólatré í ár
og þegar það má smíða þá gera allir
mylluspil. Tadas er besti vinur minn í skólan-
um og við leikum okkur saman í útivistinni.
Hver er uppáhaldsbókin þín?
Fimmtán grimmustu risaeðlurnar. Ég hef
gaman af risaeðlum og er alltaf að lesa um
risaeðlur eða eitthvað um sjóræningja.
Hver er skemmtilegasta myndin?
Kung Fu Panda er svo mikil feitabolla. Mér
fannst gaman þegar þeir hentu sprengju í
munninn á einhverjum drekameistara og
allir karlarnir urðu að demöntum af því að
Kai náði þeim og breytti þeim í demanta. Kai
var fyrst góður en svo
vondur. Það var fyrir 100
árum. Hann dó því að Pó
setti of mikið af chi í hann.
Hvað ætlar þú að verða
þegar þú verður stór?
Skipstjóri af því að þá verð ég úti á sjó.
Viltu segja eitthvað að lokum?
Já, þegar ég fór til Vestmannaeyja á þrett-
ándanum sá ég risastórt tröll. Ég held að
það sé næstum því jafn stórt og þrjár hæðir
í blokk. Í blokkinni minni eru fimm hæðir.
Tröllið heitir Gaui litli, samt er hann risastór,
og hann var í landsliðsbúningnum. Ég var
smá hræddur við Grýlu og flugelda en varð
geggjað hræddur þegar ég fór með jóla-
sveinunum og sá risaeld. Gleðileg jól til allra!
„Þegar ég
fór til Vestmanna-
eyja á þrettándanum
sá ég risastórt tröll. Ég
held að það sé næstum
því jafn stórt og þrjár
hæðir í blokk.“
Eyþór Elí á nýja hjólinu.