Feykir - 24.05.2012, Blaðsíða 10
IJW! 111' I I I' <11
*0 20/2012
Verið Vísindagarðar á Sauðárkróki var með
opið hús þann 16. maí sl. í tilefni þess að
Verið stækkaði nýverið húsakynni sín. Þá
gafst gestum og gangandi kostur á því að
kynna sér þá víðtæku starfsemi sem fram fer
í húsinu og nýttu margir sér tækifærið og
skoðuðu hina glæsilegu aðstöðu.
Lárus Ægir Guðmundsson formaður AVS
skýrði úthlutun sjóðsins en sjóðurinn, sem
stendur fyrir „Aukið virði sjávarfangs", er
staðsettur í Verinu. Þá sagði hann að alls hafi
verið sótt um styrki til 190 verkefna að þessu
sinni, samtals að upphæð 905 milljónunum
króna og hlutu 71 aðili styrk að upphæð 334
milljónir króna. Umsóknum íjölgaði frá fyrra
ári um 28 og óskum um styrkupphæð um 96
milljónir króna, en í ár var 20 milljónum kr.
minna til úthlutunar en í íyrra og þurfti því að
hafna mörgum vænlegum verkefnum. Nánari
upplýsingar og lista yfir styrkþega er að finna á
heimasíðu AVS á slóðinni: www.avs.is.
Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra og Jón Bjarnason fv.
ráðherra voru viðstaddir og fluttu ávörp og hafði
Steingrímur orð á því að heimsóknin norður
á Sauðárlcrók væri kærkomið frí frá þrasinu
á Austurvelli en báðir fóru þingmennirnir
lofsamlegum orðum um starfsemi Versins og
Skagafjarðar í heild sinni. „Skagafjörður er eitt
af glæsilegustu dæmum um hérað sem býr yfir
miJdum auðlindum og hefur nýtt sér það vel,“
sagði Steingrímur.
Gísli Svan Einarsson framkvæmdastjóri
Versins, Skúli Skúlason rektor Hólaskóla -
Háskólans á Hólum, Sveinn Margeirsson
forstjóri Matís, Friðrik Friðriksson formaður
stjórnar Matís og Jón Eðvald Friðriksson
framkvæmdastjóri FISK Seafood tóku einnig til
máls. Allir voru þeir samrfíSl'á1"unTað"í Verinu
-váeþi<iú«iirglæsilega_aðstöðu á heimsmælikvarða
að ræða ogfræddu þeir viðstadda um>það góða
og mikilvæga starf sem þar fer fram og.hvernig
mmm&ið veruleika.
flán^Eð^difféMda'KMsÖBU’-Verism^BiÍ^eðíS
[smnirállt frá því er-hann og Skúli Skúlason, þá
skólastjóri Bændaskólans á Hólum, sátu saman
fyrir 10 árum síðan og ræddu um hvað helst
mætti gera til þess að treysta byggð í Skagafirði
til framtíðar. „Við vorum sammála um að
mikilvægur þáttur í þeirri viðleitni væri að efla
skólastarf og ýmsar rannsóknir m.a. tengdar
fiskeldi." Þar sem Hólar hafa ekki aðgang að
sjó sagði hann að slík aðstaða þyrfti að byggjast
upp á öðrum stað og var niðurstaðan sú að FISK
endurbyggði gamalt frystihús á Sauðárkróki.
„Strax í upphafi var lagt upp með að fá fleiri
aðila inn í húsið, til þess að skapa vettvang til
frekari sóknar á hinum ýmsu sviðum í nánu
samstarfi við atvinnufyrirtækin,“ segir Jón
Eðvald. Hólaskóli flutti fyrst inn í húsið árið
2004 og smá saman bættust fleiri við. Þegar
húsnæðið undir þessa starfsemina var sprungið
sagði Jón Eðvald að upp hati komið spurning
hvort FISK væri tilbúið að stækka aðstöðuna
með nýbyggingu, og var niðurstaðan sú að
byggja þriggja hæða hús, um 750 fermetra í
heildina, við hliðina á eldri aðstöðu. „Frábærar
aðstæður eru því hér til staðar til þess að byggja
á öflugt og farsælt samstarf atvinnulífs, skóla
og rannsóknaraðila til hagsbóta fyrir alla þessa
aðila,“ sagði hann.
Jón Eðvald notaði einnig tækifærið og
skoraði á Steingrím J. sjávarútvegsráðherra
til að nýta sumarið til góðra verka og fresta
afgreiðslu sjávarútvegsfrumvarpanna, sem
nú liggja fyrir alþingismönnum. „Atvinnulíf
á landsbyggðinni er brothætt um þessar
mundir og því þarf að fara mjög varlega í
íþyngjandi aðgerðir gagnvart atvinnulífinu
og ekki síst sjávarútvegsfyrirtækjunum, þar
sem þau eru oft burðarásarnir í viðkomandi
byggðarlagi og víða einu fyrirtækin sem lúta
stjórn heimamanna." Einnig sagði hann
tekjustreymi skatta í þjóðfélaginu vera rangt í
dag, þar sem einungis önnur hver skattkróna af
landsbyggðinni skili sér aftur út á land, en hin
verði. eftir á höfuðborgarsvæðinu. „Verkefni
stjórnmálamanna eru því að minnkaþennan
mun eða jafna,“ bætir hanm^ið^en jafnframt
ISsfófði* hann^iffif^nýrri-^ná'lfuh varðandi
^iávamtvggjnn - nýja sýn til framtíðar.yá
Verió á Sauðárkróki
Glæsileg aóstaöa á
heimsmælikvarða