Feykir - 31.05.2012, Page 2
2 21/2012
Skagafjörður
Byrjendalæsiskenn-
arar útskrifast
Byltingarkenndur hugbúnaður fyrir lesblinda
Hjálpar til við lesturinn
Nemendur Árskóla á Sauðár-
króki sem eiga við lesblindu
að glíma eða eiga í erfiðleik-
um með að lesa, skrifa eða
stafa orð, hafa tekið tæknina
f sínar hendur með hjálp Easy
Tutor hugbúnaði sem gerir
þeim kleift að láta tölvuna
lesa fýrir sig og aðstoða við
að stafsetja rétt.
Lögð hefur verið áhersla á
það í vetur að kynna þennan
hugbúnað fyrir nemendum og
kenna þeim að nota tölvuna
meira við námið. Hugbúnað-
urinn er gjarnan notaður
samhliða verkefnabókum frá
Námsgagnastofhun á pdf formi
þar sem nemendur geta látið
Easy Tutor lesa fyrir sig fyrirmæli
og þeir síðan skrifað inn í
verkefnabækurnar í tölvunni.
Einnig er Easy Tutor notað með
ritvinnslu þar sem forritið les
jafn óðum það sem nemendur
skrifa auk þess sem hægt er að
láta lesa allt yfir í lokin.
Árskóli hafði fjárfest í fimm
leyfum að hugbúnaðinum sem
hafa verið mjög umsetin af
nemendum og færri fengið að
njóta en viljað en hugbúnaður
þessi er mjög dýr. Foreldrafélag
Árskóla lét þá til sín taka og í
samráði við stjórnendur skólans
var fjárfest í ótakmörkuðu leyfi
sem gerir það að verkum að allir
nemendur grunnskólanna í
Skagafirði geta notað hann í
sínu námi. Að kaupunum kom
einnig foreldrafélag Varmahlíð-
arskóla. /PF
Glaðbeittur hópur byrjendalæsiskennara.
Nýlega utskrifuðust fyrstu
grunnskólakennararnir i
Skagafirði sem lokið hafa
tveggja ára námi tengt
þróunarverkefninu Byrjenda-
læsi. Með því er verið að
innleiða nýjar læsis - og
kennsluaðferðir í fýrstu
bekkjum grunnskóla.
Unnið er með lestur, ritun,
tal og hlustun sem samofna
þætti og fengist er við merk-
ingarbær viðfangsefni og fjöl-
breyttar sögur. Áhersla er á
samvinnu nemenda og virka
þátttöku þeirra. Mikið er
einnig lagt upp úr þvi að efla
orðaforða samhliða lestrar-
náminu.
Byrjendalæsi styðst við
fræðilegan grunn og kenningar
um læsisnám og áhugahvöt og
hefur aðferðin verið þróuð af
Miðstöð skólaþróunar við Há-
skólann á Akureyri. Þessi
vinnubrögð við byrjenda-
kennslu hafa vakið athygli og
frá 2005 hafa milli 60 og 70
Tindastóls-strákarnir
hrukku heldur betur í gírinn
sl. laugardag þegar þeir
léku við BÍ/Bolungarvík á
Torfnesvelli á ísafirði. Eftir
tvo leiki sem töpuðust
naumlega var nauðsynlegt
fyrir Stólana að fara að
krækja í stig eða í það
minnsta að fara að koma
boltanum í mark andstæð-
inganna. Það tókst og
rúmlega það með 2-5 sigri
á erfiðum útivelli.
Aðstæður á fsafirði til knatt-
spyrnuiðkunar voru með því
verra sem gerist, hvasst og
völlurinn líkari sundlaug en
knattspyrnuvelh. Tindastóls-
menn komu hinsvegar
baráttuglaðir og ákveðnir til
leiks og voru miklu betri í
leiknum. Strákarnir léku á móti
vindi í fyrri hálfleik og það var
Max Touloute sem kom strák-
skólar víðs vegar á landinu
tekið upp aðferðir Byrjenda-
læsis við lestrarkennslu og
sífellt bætist í hópinn.
Kennararnir hafa fengið
fræðslu og handleiðslu frá
Miðstöð skólaþróunar við HA,
og samhliða hafa þær Anna
Steinunn Friðriksdóttir, deild-
arstjóri á yngsta stigi Árskóla
og Þóra Björk Jónsdóttir,
kennslu- og sérkennsluráðgjafi
Fræðsluþjónustu Skagfirðinga
verið stuðningur þeirra heima í
héraði. Þær hafa í þeim tilgangi
lokið leiðtoganámi með það að
markmiði að taka að mestu við
fræðslunni framvegis. Grunn-
skólar í Skagafirði hafa mótað
sér þá stefnu að nota aðferðir
Byrjendalæsis í fyrstu bekkj-
unum og munu allir kennarar
sem kenna yngstu nemend-
unum taka þetta tveggja ára
nám og verða Byrjendalæsis-
kennarar. Þannig hafa 10
kennarar nú lokið námi og 5
hafa lokið fyrra árinu./ÞB
unum yfir eftir 27 mínútur eftir
laglega skyndisókn og Theo
Furness bætti öðru marki við
stuttu síðar og staðan 0-2 í
hálfleik.
Theo var síðan aftur á
ferðinni þegar 10 mínútur voru
liðnar af seinni hálfleik og
staðan orðin 0-3. Pétur Georg
Markan kom heimamönnum
inn í leikinn með marki þegar
um hálftími var eftir en Theo
skoraði með hörkuskoti fimm
mínútum síðar eftir mikla sókn
Stólanna þar sem hvert skotið af
öðru skall að marki Vestfirðinga.
Theo innsiglaði þar með þrenn-
una og breytti stöðunni í 1-4.
Guðmundur Atli Steinþórsson
lagaði stöðuna með marki á 73.
mínútu en það var síðan Atli
sem innsiglaði frábæran
stórsigur Tindastóls með öðru
marki sínu í leiknum á 88.
mínútu. /ÓAB
Dýraiæknaþjónustu
í Húnavatnssýslum
Dýrin mín
stór og smá
Matvælastofnun hefur gert
þjónustusamning við Dýrin
mín stór og smá ehf., í eigu
Ingunnar Reynisdóttur
dýralækni á Syðri-Völlum í
Húnaþingi vestra, um að
taka að sér almenna
dýralæknaþjónustu og
bráðaþjónustu á þjónustu-
svæði 4, (Húnaþing vestra,
Blönduósbær, Skagabyggð,
Sveitarfélagið Skagaströnd
og Húnavatnshreppur), sbr.
2. gr. reglugerðar nr.
846/2011 um dýralækna-
þjónustu í dreifðum
byggðum.
Þjónustusamningurinn
tekur gildir frá og með 1.
ágúst 2012 en á sama tíma
lýkur þjónustusamningi sem
gerður var við Dýralækna-
þjónustu Stefáns Friðriks-
sonar ehf. á sama svæði. /PF
Skagafjörður
Land fauk
í síðustu viku gerði mikið
suðvestan rok i Skagafirði
með þeim afleiðingum að
land tók upp á því að færa
sig um set.
Á Hofstöðum í
Viðvíkursveit í Skagafirði er
mikil kartöflurækt og fauk
moldin ofan af jarðeplunum
svo þær sátu eftir berar. Bessi
Freyr Vésteinsson vonar að að
tjónið verði ekki mikið þar
sem búið er að raka yfir aftur
en hugsanlega gæti þetta
seinkað uppskeru.
Meira tjónið gæti verið þar
sem búið var að sá í flög en
Bessi segir að grasffæ hafi
farið af stað. Það sé þó þungt í
eðli sínu og hann vonar að
það hafi ekki allt farið. Þá
hafði haffafræ sem lágu fjóra
sentimetra í jörðu legið bert
ofan á jörðinni eftir vindinn.
Bessi segir að hann hafi
brugðist snögglega við er
jörðin rauk og dælt skít á
flögin og náð þannig að bleyta
f og rykbinda. Mökkurinn var
það mikill að sögn Bessa að
ekki sást fram fyrir
vélarhúddið. /PF
Krakkar í Árskóla að nota Easy Tutor.
LEIÐARI
Hetjur hafsins
Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur um allt land
um næstu helgi og þá verður líf og fjör hjá öllum þeim sem
mæta á bryggjuna og landkrabbar gleðjast með sjómönnum.
Sjómenn eru hetjur hafsins og hafa dregið björg í bú frá örófi
alda og munu halda því áfram meðan gefur. Sjómennskan
hefur breyst síðustu áratugi, kvótinn færst á færri hendur
sem gera út stærri skip en áður með hagræðisjónarmið að
leiðarljósi. Kvótakerfið er eilífðar bitbein útgerðar- og
stjórnmálamanna og mun verða það meðan veitt er, því
fullkomið kerfi verður sennilega seint fundið upp. En reynt
er að gefa mönnum færi á að stunda sjóinn á smábátunum
með byggðakvóta og strandveiðum og er það vel en dugar
kannski skammt til að menn geti haft það að aðalatvinnu allt
árið. Margir hafa bent á að frjálsar handfæraveiðar gætu
verið lausnin og hafa barist fyrir þeim en ekki orðið ágengt.
Spennandi væri að sjá hvernig það kerfi myndi reynast.
Sjómenn til hamingju með daginn.
Páll Friðriksson
ritstjóri
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4,550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson - palli@feykir.is ©455 7176,8619842
Blaðamenn:
Berglind Þorsteinsdóttir - berglindth@feykir.is ©694 9199
Óli Arnar Brynjarsson - oli@feykir.is
Lausapenni: örn Þórarinsson.
Askriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk.
Áskriftogdreifing: Nýprentehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
BÍ/Bolungarvík - Tindastóll 2-5
Frábær sigur Stólanna