Feykir - 31.05.2012, Page 9
21/2012
AÐSENT
Gíslavaka Ólafs-
sonar í Húnaveri
Steingrímur Felixson í viðtali
Snjóflóöin sitja í manni
1
Þeir Sigurður Óli
Sigurðsson og Sighvatur
Rúnar Pálsson, 10.
bekkingar í Árskóla á
Sauðárkróki voru í
starfskynningu á Feyki í
síðustu viku og kynntu sér
stuttlega hvernig blaða-
maður eyðir vinnudeginum.
Fengu þeir það verkefhi að
taka sitthvora Spurningu
vikunnar auk þess að finna
fyrrverandi sjómann og
taka við hann viðtal og
birtist það hér.
Við ákváðum að taka viðtal
við Steingrím Felixson
fyrrverandi sjómann í tilefni
af því að sjómannadagurinn
fer bráðum að koma.
Steingrímur fæddist þann
24.12.1962 og starfaði á sjó í
tuttugu og fjögur ár.
Alls hefur Steingrímur
starfað á fimm skipum um
ævina en þau eru: Drangey,
Pétur Jónsson, Málmey,
Hegranes og Örvar.
Steingrímur starfaði sem
netamaður á skipunum og
sagði hann að það hefði verið
mjög gaman í flestum til-
vikum. Við spurðum hann
um hvað væri það eftir-
minnilegasta sem hann hefði
upplifað á sjó og hann sagði
„Ætli það sitji ekki mest í
manni þegar maður var á
Pétri Jónsyni og snjóflóðið
féll á Flateyri, þá fór stór hluti
áhafnarinnar að leita að þeim
sem lentu í því.“
Nú vinnur hann í landi og
starfar hjá Mjólkursamlagi
KS á Sauðárkróki. Sagði
Steingrímur að þetta hefðu
verið mjög góð ár á sjónum.
/SRPogSÓS
Laugardaginn 9. júní kl. 14
verður í Húnaveri vorvaka í
minningu Gísla Ólafssonar,
skálds frá Eiríksstöðum.
Þar mun Kristján Eiríksson,
íslenskufræðingur, fjalla um
Gísla og verk hans, og lesið
verður úr ljóðum hans.
Kvæðamennirnir, Ingimar
Halldórsson og Arnþór
Helgason, kveða vísur eftir
Gísla, m.a. hinar þekktu
Lækjarvísur. Sigurður Torfi
Guðmundsson syngur nokkur
lög við ljóð Gísla við undirleik
Inga Heiðmars Jónssonar.
Kirkjukór Hraungerðis- og
Villingaholtskirkna í Árnes-
sýslu syngur undir stjórn Inga
Heiðmars, sem einnig stýrir
almennum söng. Kynnir
verður Ólafur Hallgrímsson.
Aðgangseyrir er kr. 1500.-,
frítt fyrir 12 ára og yngri. (Ath.
að kort eru ekki tekin.)
kvenfélag Bólstaðarhlíðar-
hrepps selur kaffi í hléi.
Gísli Ólafsson var fæddur á
Eiríksstöðum í Svartárdal 2.
janúar 1885, átti þar heima til
þrítugsaldurs og var mjög
tengdur dalnum sínum alla
tíð. Hann var búsettur á
Sauðárkróki síðari hluta
ævinnar og lést þar liðlega
áttræður. Gísli byrjaði ungur
að yrkja og strax í æsku flugu
stökur hans og vísnaflokkar
manna á milli. Hann gaf út
þrjú ljóðakver.
Fyrsta bók hans kom út
1917, Heiman úr dölum, en
árið 1944 kom út safn Ijóða
hans, sem nefnist Á brotnandi
bárum. Gísli skipar fríðan
flokk alþýðuskálda þessa
lands, ljóð hans eru lipur og
vel gerð, hann var mikill
rímsnillingur. Þekktastar eru
stökur hans og tækifærisvísur,
orta við ýmis tilefni, en lengri
ljóðin eru ekki síður vel ort og
eiga erindi við okkar samtíð.
Þess er vænst, að ýmsum þyki
gott að endurnýja kynnin við
Gísla skáld frá Eiríksstöðum
/Fréttatilkynning
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR )
Stína og Óli kokka
Silungsmús og
Indversk súpa
Kristín Guðmundsdóttir og Ólafur Benediktsson bændur
í Miðhópi í Víðidal bjóða lesendum Feykis upp á
uppskriftir vikunnar að þessu sinni.
„Við skorum á Ásu Ólafsdóttir á Hvammstanga yfir-
setukonu nýkomna úr fæðingarorlofi til þess að vera næsti
matgæðingur vikunnar."
berglindth@feykir.is
FORRÉTTUR fisksoði. Þessu er síðan hrært 4 gulrcetur, skornar í litla bita
Silungsmús saman við fiskinn. Sett i mót 2 sellerístönglar, saxaðir
og kælt i 6-8 klst. Berið réttinn 1 laukur, fínsaxaður
500 g silungur fram með ristuðu brauði fersku 2 hvítlauksrif, fínsöxuð
200 g sýrður rjómi salati og sósu. 1 scet kartafla, skorin í
1 dl rjómi munnbita
'A tsk svartur pipar Sósa: 2 bollar blómkál, skornir í
2 tsk basilika 200 g sýrður rjómi munnbita
1 pakki Torofiskhlaup Vi tsk pipar, malaður 1 msk Garam Masala
3 dl heittfisksoð 1 tsk sítrónusafi V2 tsk cayennepipar 1 stk grœnmetiskraftur
aðferð Sjóðið fiskinn í smá salt og pipar eftir smekk
saltvatni, roð og beinhreinsið, AÐALRÉTTUR V2 l vatn
setjið í skál og sláið i sundur. Sýrðum rjóma, rjóma og Indversk súpa ólífuolía
kryddi er hrært saman i skál. 1 dós hakkaðir tómatar AÐFERD Setjið gulrætur, lauk
Fiskhlaupið leyst upp í heitu og sellerí í pott með 2 msk af
olíu og steikið á lágu hita í 10
mín. Bætið hvítlauk og kryddi
og steikið með grænmetinu í 5
mín. á lágum hita. Bætið næst
tómötum, vatni, krafti, blómkáli
og sætum kartöflum saman við
grænmetið í pottinum og sjóðið
í 10 mín. Smakkið til með salti
og pipar. Þessa súpu er gott að
bera fram með sýrðum rjóma
og nýbökuðu naan-brauði.
Naati-brauð:
2 dl mjólk
2 msk sykur
11 g þurrger
600 ghveiti
1 tsk salt
2 tsk lyftiduft
4 msk olía
2 dl ab-mjólk
AÐFERÐ Hnoðið deigið vel saman
og látið lyfta sér í um það bil 1
klst. Skiptið því í 10 hluta hnoðið
lítillega og fletjið frekar þunnt út.
Bakið við 250°C í 5-7 mín. Ef vill
má pensla brauðið með bræddu
smjöri eða olíu og strá á þau örlidu
af grófu salti eða kryddi.
EFTIRRÉTTUR
Lu eftirréttur
1 pakki afBastogne kexifrá Lu
2-3 epli, rifin
1 krukka bláberjasulta
þeyttur rjómi
AÐFERÐ Kexið er mulið niður og
sett í mót og epli sett ofan á. Um
það bil ein krukka bláberjasulta
sett ofan á og að lokum er þeyttur
rjómi settur yfir.
Verði ykkur að góðu!