Fréttablaðið - 08.09.2018, Qupperneq 10
PHILIPS
55’’ UHD SNJALLSJÓNVARP
55PUS6503
SAMSUNG
KÆLI- OG FRYSTISKÁPUR
RB28HSR2DWW
SAMSUNG
ÞURRKARI
DV90M50003W
SAMSUNG
ÞVOTTAVÉL
WW90J5426FW
G R A N D I – L I N D I R – S K E I FA N – E L K O . I S
69.995
EÐA 6.427 KR. Á MÁNUÐI
M.V. 12 MÁN. VAXTAL. KORTALÁN - ALLS 77.125 KR. - ÁHK 20.26%
99.995
EÐA 9.015 KR. Á MÁNUÐI
M.V. 12 MÁN. VAXTAL. KORTALÁN - ALLS 108.174 KR. - ÁHK 16.08%
79.990
EÐA 7.289 KR. Á MÁNUÐI
M.V. 12 MÁN. VAXTAL. KORTALÁN - ALLS 87.470 KR. - ÁHK 18.51%
99.990
EÐA 9.014 KR. Á MÁNUÐI
M.V. 12 MÁN. VAXTAL. KORTALÁN - ALLS 108.170 KR. - ÁHK 16.09%
að finna rétta tækið
við hjálpum þér
BRASILÍA Brasilíski forsetafram-
bjóðandinn Jair Bolsonaro liggur
enn þungt haldinn á spítala eftir að
hafa orðið fyrir stunguárás á stuðn-
ingsfundi í Ríó á fimmtudaginn.
Bolsonaro, sem nýtur mikillar
hylli meðal brasilískra kjósenda,
var fluttur með hraði undir læknis-
hendur eftir að maður, sem lög-
regluyfirvöld lýsa sem andlega van-
heilum, stakk hann í magann með
stórum steikarhníf.
„Árásarmaðurinn sagðist vera
að framfylgja vilja guðs,“ sagði
Luis Boudens, yfirmaður brasilísku
alríkislögreglunnar.
Bolsonaro gekkst undir skurðað-
gerð og er ástand hans nú alvarlegt,
en stöðugt, að sögn lækna í Ríó.
Bols onaro þarf að dvelja á spítalan-
um í að minnsta kosti viku. Brasilíu-
menn ganga til kosninga 7. október.
Brasilískir fjölmiðlar greina
frá því að morðtilræðið við Bol-
sonaro komi til með að hafa meiri-
háttar áhrif á kosningabaráttuna
og endan leg úrslit kosninganna.
Mikil reiði ríkir meðal kjósenda í
Brasilíu sem eru orðnir langþreyttir
á ítrekuðum fregnum af spillingu í
æðstu röðum brasilísks samfélags.
Bolsonaro hefur heitið því að taka
hart á spillingu og glæpum með því
að veita lögreglu víðtækari rann-
sóknarheimildir. Hann hefur mælst
efstur í skoðanakönnunum undan-
farið.
Stuðningsmenn Bolsonaro telja
margir að árásin á fimmtudaginn
muni tryggja honum forsetaemb-
ættið. „Bolsonaro er nú orðinn
píslarvottur,“ sagði Jonatan Val-
ente, nemandi sem sótti vöku til
stuðnings Bolsonaro í São Paulo, í
samtali við fréttaveitu AP. – khn
Hnífstungurásin sögð tryggja Bolsonaro brasilíska forsetastólinn
Bolsonaro hvatti stuðningsmenn sína til dáða eftir að hann var stunginn í Ríó
á fimmtudaginn. Hann þykir líklegur til afreka á kjördag. FRéttaBlaðið/aFP
SVÍÞJÓÐ Þingkosningar í Svíþjóð
fara fram á morgun. Sé eitthvað að
marka skoðanakannanir í aðdrag-
anda þeirra mun landslagið í sænsk-
um stjórnmálum breytast til muna.
Óvissan er þó nokkur en nýjustu
skoðanakannanir benda til þess að
tæplega þrír af hverjum tíu hafi ekki
gert upp hug sinn.
Þrír flokkar eru líklegastir til að
vera stærsti flokkurinn þegar talið
hefur verið upp úr kjörkössunum.
Flest bendir til þess að Sósíaldemó-
krataflokkurinn, sem forsætisráð-
herrann Stefan Löfven fer fyrir,
muni verða stærstur. Sömu kannan-
ir benda hins vegar til að flokkurinn
muni tapa tæplega fjórðungi fylgis
síns frá kosningunum fyrir fjórum
árum. Verði það raunin verður það
versta kosning flokksins frá árinu
1912. Jafnaðarmenn hafa setið í
minnihlutastjórn undanfarið með
Græningjum.
Að óbreyttu verða hinir umdeildu
Svíþjóðardemókratar hástökkvarar
kosninganna. Flokkurinn fékk tæp
þrettán prósent síðast en hefur
undanfarið mælst með á bilinu
17-20 prósent. Hægriflokkurinn,
Moderaterna, mælist á svipuðu bili
og Svíþjóðardemókratar.
Á kjörtímabilinu sem brátt er á
enda hafa átta flokkar skipt á milli
sín þingsætunum 349 sem í boði
eru. Til að fá þingsæti úthlutað þurfa
flokkar annaðhvort að ná fjögurra
prósenta kjörfylgi á landsvísu eða
tólf prósentum í stöku kjördæmi.
Möguleiki er á að tveir flokkar
gætu farið niður fyrir þröskuldinn.
Um miðjan síðasta mánuð mældust
Kristilegir demókratar með rúm-
lega þriggja prósenta fylgi en hafa í
könnunum undanfarið stokkið upp.
Útlit er fyrir að þeir sleppi fyrir horn
með um sex prósent. Meiri óvissa er
um afdrif Græningja. Í könnun You-
Gov fyrir viku, sem þó er nokkuð á
skjön við aðrar kannanir, mældist
flokkurinn úti. Þá hefur það oft fylgt
flokknum að fá eilítið færri atkvæði
en kannanir segja til um. Það má
fylgja sögunni að fyrir fjórum árum
var könnun YouGov sú sem komst
næst úrslitum kosninganna.
Vinsældir Svíþjóðardemókrata
hafa litað kosningabaráttuna mjög.
Flokkurinn hefur verið hálfgert
eyland í sænskum stjórnmálum og
aðrir flokkar hafa forðast að starfa
með honum. Flokkurinn er yfir-
lýstur andstæðingur veru Svíþjóðar
í Evrópusambandinu og þá er
flokkurinn harður í andstöðu sinni
við innflytjendastefnu stjórnvalda.
Innflytjendur og málefni þeirra hafa
því verið í forgrunni. Umhverfis- og
orkumál hafa einnig verið í brenni-
depli í kjölfar hitabylgju og þurrka
í landinu í sumar. Staða uppistöðu-
lóna í landinu er slæm og sá mögu-
leiki fyrir hendi að flytja þurfi inn
raforku í vetur.
Helstu kandídatar í stól forsætis-
ráðherra eru formenn stærstu flokk-
anna þriggja. Stjórnarmyndunar-
viðræður að kosningum loknum
gætu reynst þrautaganga en lík-
legasta útkoman, miðað við kann-
anir undan farið, er að Löfven muni
mynda minnihlutastjórn.
joli@frettabladid.is
Óvissan allsráðandi fyrir kosningarnar
Kannanir undanfarið
Rauða blokkin Kosningar 2014 Kannanir nú YouGov
Jafnaðarmenn 31,0% (113 þingmenn) 22-26% 23,8%
Vinstriflokkurinn 5,7% (21 þingmaður) 9-11% 9,4%
Græningjar 6,9% (25 þingmenn) 4-6% 3,6%
alliansen
Hægriflokkurinn 23,3% (85 þingmenn) 17-19% 16,5%
Miðflokkurinn 6,2% (21 þingmaður) 7-10% 6,0%
Kristilegir demókratar 4,6% (16 þingmenn) 5-7% 4,8%
Frjálslyndir 5,4% (19 þingmenn) 5-7% 5,7%
Svíþjóðardemókratar 12,9% (49 þingmenn) 17-20% 24,8%
Landslagið í sænskum
stjórnmálum er gjör-
breytt eftir stökk Sví-
þjóðardemókrata. Þrír
flokkar leiða kapphlaup-
ið um að verða stærsti
flokkur landsins.
Átta flokkar eiga sæti á sænska þinginu og hafa þeir tekist á um hylli kjósenda undanfarnar vikur. FRéttaBlaðið/ePa
8 . S e p t e m B e R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R10 f R é t t I R ∙ f R é t t A B L A Ð I Ð
0
8
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
4
-6
0
E
8
2
0
C
4
-5
F
A
C
2
0
C
4
-5
E
7
0
2
0
C
4
-5
D
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
1
2
s
_
7
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K