Fréttablaðið - 08.09.2018, Side 36
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveg@frettabladid.is s. 512 5351 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349
Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 512 5347 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512
5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@
frettabladid.is, s. 512 5442, Atli Bergmann, atli@
frettabladid.is, s. 512 5457, Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429,
Motormax er nýtt afl á íslenskum bílamarkaði,“ segir Ingi Þór Harðarson,
framkvæmdastjóri Motormax.
„Nafnið okkar og merkið er gamalt,
en við erum að fara af stað með
alveg nýja nálgun. Við seljum vara-
hluti, bjóðum smurningu og getum
sinnt ýmiss konar annarri þjónustu
fyrir bílaeigendur sem koma til
okkar. Við viljum vera þekktir fyrir
framúrskarandi þjónustu, gæði og
ábyrgð.
Í verslun okkar seljum við West-
falia dráttarbeisli fyrir flestar gerðir
bíla og sjáum líka um ásetningu
dráttarbeisla,“ segir Ingi. „Við
seljum líka Brenderup gæðakerrur
og Motul olíur og erum að sjálf-
sögðu með varahlutaþjónustu og
viðgerðarþjónustu fyrir kerrurnar.
Þannig að ef þú kaupir kerru hjá
okkur geturðu líka fengið alla
þjónustu fyrir hana hér hjá okkur.
Aðaláherslan hjá okkur er á að
selja varahluti og sinna ísetningu
þeirra,“ segir Ingi. „Við bjóðum
upp á alla varahluti sem þarf til að
viðhalda bílnum og seljum vara-
hluti til verkstæða um allt land. Við
bjóðum meira að segja upp á fríar
sendingar til allra verkstæða, bæði
á höfuðborgarsvæðinu og á lands-
byggðinni.
Svo erum við líka með vandaða
smurstöð og getum séð um
smurningu á öllum gerðum bíla,“
segir Ingi.
Spara bílaeigendum
hausverkinn
„Við erum með úrval af varahlutum
og aukahlutum fyrir kerrur. Við
eigum aukahliðar og segl og alls
konar hluti fyrir kerrurnar okkar
sem passa á flestallar gerðir af
kerrum,“ segir Ingi. „Svo bjóðum
við líka upp á bílaþvott. Hjá okkur
er hægt að fá allt frá léttum þrifum
yfir í bón og vandlegan þvott að
innan.
Motormax getur í raun sinnt
öllum bílaþörfum nema við-
gerðum. Þannig að ef ekki er um
alvarlegar bilanir eða viðgerðir að
ræða geta bílaeigendur komið til
Motormax, sett bílinn í hendur
fagmanna og fengið alla þjónustu á
einum stað,“ segir Ingi. „Við getum
tekið við bílnum og reddað flestöllu
fyrir viðskiptavini.
Við viljum halda utan um
bíleigandann og erum orðin hálf-
gerð bílamiðstöð,“ segir Ingi. „Við
getum skipt um perur og þurrkur,
smurt bílinn, þrifið hann, skaffað
varahluti og aðstoðað fólk með
þá þjónustu sem við bjóðum ekki
sjálfir. Ef fólk skilur til dæmis bílinn
sinn eftir hjá okkur fyrir smurningu
getum við líka tekið hann í skoðun
eða látið skipta um dekk, ef þess
þarf.
Þannig að fyrir fólk sem hefur
kannski litla þekkingu eða áhuga
á bílamálum getum við séð um allt
sem þarf að huga að,“ segir Ingi.
„Það getur verið rosalega gott að
hafa einhvern aðila sem getur séð
um þessi öll mál fyrir mann án
þess að þetta sé neitt vesen og það
er gott að geta fengið alla svona
aðstoð á einum stað.
Við erum staðsett í Vatnagörðum
12 og það er opið hjá okkur milli
8-17 á virkum dögum,“ segir Ingi.
„Við vonumst svo til að geta aukið
opnunartímann á næstunni.“
Hjá Motormax
er frábær vara-
hlutaþjónusta
og smurstöð
fyrir allar gerðir
bíla.
Starfsfólk Motormax tekur vel á móti viðskiptavinum sem vilja spara sér vesen með bílinn.
Motormax leggur mesta áherslu á sölu varahluta og ísetningu þeirra. Fyrirtækið býður upp á ókeypis sendingar á varahlutum til verkstæða bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.
Við getum skipt
um perur og þurrk-
ur, smurt bílinn, þrifið
hann, skaffað varahluti
og aðstoðað fólk með þá
þjónustu sem við bjóðum
ekki sjálfir.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . S E p T E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
8
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
4
-8
D
5
8
2
0
C
4
-8
C
1
C
2
0
C
4
-8
A
E
0
2
0
C
4
-8
9
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
7
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K