Fréttablaðið - 08.09.2018, Side 38
Veiði og mataráhugi hafa verið stór hluti að lífi Hauks Guð-mundssonar, lögfræðings hjá
Seðlabankanum, frá því hann man
eftir sér. Í fjölskyldu hans eru miklir
og vandaðir veiðimenn að hans
sögn, bæði lífs og liðnir, sem hafa
átt stóran þátt í að gefa honum gott
uppeldi í veiðimennskunni. „Veiðin
hefur vissulega breyst og þróast
gegnum árin. Sem barni fannst mér
allt spennandi við veiðiferðir, t.d.
ferðalagið á veiðistað á „alvöru“
jeppum, græjurnar, veiðin og
fiskarnir. Þetta hefur reyndar lítið
breyst en annað hefur bæst við, t.d.
útivera, vinskapurinn og fjölskyldu-
lífið. Eftir að ég varð fullveðja hefur
skotveiði einnig átt hug minn.“
Óhætt er að segja að Haukur
stundi nær alla veiði sem algengust
er hér á landi. „Ég veiði fisk í
vötnum og ám, bæði lax og silung.
Ég á afar góða vini úr mennta- og
háskóla sem skipuleggja stangveiði-
ferðir á hverju ári. Þetta hafa oftar
en ekki verið miklar svaðilfarir og
við höfum lagt mikið á okkur til
þess að komast í veiði. Við höfum
alloft veitt lax í Hvannadalsá í Ísa-
fjarðardjúpi og Eystri-Rangá svo
eitthvað sé nefnt og „skroppið“ yfir
helgi til að veiða sjóbleikju í Norð-
fjarðará.“
Ný kynslóð veiðimanna
Þegar kemur að skotveiði hefur
Haukur undanfarin ár gengið til
rjúpna, aðallega á Kili, setið fyrir
gæs og elt hreindýr. „Rjúpnaveiðin
er afskaplega gefandi þar sem
blandast saman hreyfing, útivera,
fallegt landslag, einbeiting og færni.
Á Kili upplifir maður ógnarlega
fegurð íslenskrar náttúru og skynjar
hversu afskaplega smár maður
sjálfur er. Ég hef líka undanfarin
haust farið austur á Hérað og setið
fyrir heiðagæs og veiddi t.a.m. jóla-
matinn í fyrra þar auk þess sem ég
hef líka farið nokkrum sinnum á
hreindýraveiðar.“
Eftir að Haukur og veiði-
félagar hans stofnuðu fjölskyldur og
eignuðust börn hafa veiðiferðirnar
breyst. „Einhverjar mínar fyrstu
og bestu minningar eru af slíkum
veiðiferðum og ómetanlegt að hafa
tækifæri til skapa nýjar minningar
með börnunum mínum. Þá kann
ég ágætlega við nýtt hlutverk í
veiðinni. Það mætti e.t.v. segja að ég
sé farinn að ala upp næstu kynslóð
veiðimanna.“
Gjörnýtir allt
Haukur gjörnýtir það sem hann
veiðir eins vel og mögulegt er enda
álítur hann það skyldu sína. „Ég
hef grillað, pönnusteikt og grafið
lax og silung, búið til kavíar úr lax-
ahrognum og nýlega er ég byrjaður
að reykja fiskinn heima sem hefur
gengið vonum framar.“ Hreindýrið
hefur svo til allt verið nýtt, segir
hann. „Þannig grilla ég hjartað,
nota lifrina í paté og súta skinnið
svo dæmi séu tekin. Gæsina hef
ég ýmist reytt og sviðið heila eða
hamflett og úrbeinað. Gæsalifrina
nota ég í paté en annan innmat,
bein og afskorninga, notaði ég til
að búa til soð. Síðustu jól eldaði ég
gæsaleggja confit í vatnsbaði (sous-
vide) sem var afbragð. En annars
er eldamennskan mín á villibráð
nokkuð hefðbundin og reyni ég að
láta þetta úrvalshráefni fá að njóta
sín.“
Lært af góðu fólki
Hauki hefur aldrei þótt leiðinlegt
að borða að eigin sögn en áhugi
hans á eldamennsku er að stórum
hluta stjúpföður hans, Gilla, Sverri
Gísla Haukssyni, að þakka. „Hann
sá oftast um eldamennskuna
í veiðiferðum og kenndi mér
undirstöðuatriðin. Tengdamóðir
mín, Ragnhildur, er algert séní
þegar kemur að eldamennsku og
hef ég líka lært ýmislegt af henni.
Undanfarið hef ég verið að prufa
mig áfram með hægeldun, súpur
og kássur og lagt upp með að auka
hlut grænmetis í matseldinni.“
Auk veiðinnar hefur Haukur
mikinn áhuga á garðrækt og var í
nokkur ár með lítinn grænmetis-
garð þar sem fjölskyldan bjó í
Norðurmýrinni í Reykjavík. „Ég
stefni að því í framtíðinni að geta
eldað fjölbreytta máltíð úr hráefni
sem ég hef aflað sjálfur. Svo erum
við hjónin að setja upp nýtt
eldhús á nýjum stað og höfum
ákveðið að setja upp gufuofn, sem
ég er mjög spenntur fyrir að byrja
að nota.“
Haukur gefur lesendum góða
uppskrift að hreindýrakássu sem
virkar einnig með nautakjöti. „Ég
geri hana reglulega heima fyrir en
hef einnig tekið hana með mér í
útilegur og veiðiferðir. Kássan er
síst verri upphituð á veiðislóð eða
í veiðikofa.“
Hreindýrakássa
Fyrir 4-5
500-600 g hreindýra- eða nauta-
gúllas
3 rauðar paprikur
6 vel þroskaðir tómatar
1 rauður chili
1 stór laukur
2 sellerístilkar
3 gulrætur
2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
1 lítil rófa söxuð smátt
2-3 kartöflur saxaðar smátt
750 ml nautasoð
2 matskeiðar tómatpúrra
Ólífuolía
Kryddvöndur þar sem lárviðarlauf,
timían og steinselja eru bundin
saman í vönd
Salt og pipar
Heppilegast er að nota þungan
pott úr steypujárni. Paprikan og
chili skorin í fernt og fræin fjar-
lægð. Tómatar skornir til helminga
og öllu velt upp úr ólífuolíu og sett
á ofnplötu með bökunarpappír.
Grillað í ofni í 10 mín. eða þar til
hýðið á paprikunni verður svart.
Afhýðið grænmetið og skerið mjög
smátt eða blandið saman í mat-
vinnsluvél. Kjötið skorið í hæfilega
munnbita og steikt upp úr ólífu-
olíu. Best er að þurrka kjötið með
eldhúspappír og steikja það í 2-3
hollum svo það brúnist vel. Næst
er laukurinn, selleríið, gulræturnar
og hvítlaukurinn svissað í pott-
inum. Nautasoðinu bætt við og
skófirnar í pottinum leystar upp.
Næst er kjötinu, papriku-, chili-
og tómatamaukinu og restinni af
grænmeti og kryddi bætt út í og
piprað vel. Kássan er bökuð með
loki í 160°C heitum ofni í 2½ til 3
tíma eða þar til kjötið verður vel
meyrt. Að lokum er kássan söltuð
eftir smekk.
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
Lifir fyrir veiðar og mat
Haukur Guðmundsson hóf snemma að veiða og áhugi á matreiðslu fylgdi í kjölfarið. Hann legg-
ur mikla áherslu á að nýta sem mest það sem hann veiðir og hefur m.a. búið til kavíar og paté.
Um þessar mundir reynir hann að skapa nýjar og góðar veiðiminningar með börnunum sínum.
Haukur Guðmundsson, veiðimaður og fagurkeri. MYND/ANTON BRINK
Laxasnitta með reyktum laxi sem Haukur veiddi í Hvítá við Iðu og reykti
sjálfur á svölunum heima. Þarna má sjá t.d. súrdeigshrökkbrauð, lárperu,
vorlauk, rauðlauk, tómat og svartan pipar svo eitthvað sé nefnt.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . S e p T e M B e R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
8
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
4
-A
1
1
8
2
0
C
4
-9
F
D
C
2
0
C
4
-9
E
A
0
2
0
C
4
-9
D
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
7
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K