Fréttablaðið - 08.09.2018, Blaðsíða 74
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Það er einfalt að gera sparimat úr kjúklingi. Hér eru nokkrar útgáfur sem gaman er að
prófa.
Kjúklingur frá Marokkó
Ótrúlega spennandi marokkóskur
kjúklingaréttur sem passar vel á
þessum árstíma. Hentar vel hvort
sem er hversdags eða um helgar.
Það er vel hægt að bjóða gestum
upp á þennan rétt. Fyrir þá sem
eiga tagine er upplagt að elda
kjúklinginn í henni. Uppskriftin
miðast við sex manns. Í réttinn má
nota úrbeinuð kjúklingalæri eða
læri á beini eftir smekk hvers og
eins.
600 g kjúklingabringur
1 tsk. túrmerik
1 msk. cumin
1 msk. kóríander
1 tsk. kanill
1 tsk. salt
2 laukar, smátt skornir
4 cm fersk engiferrót, smátt
skorin
3 hvítlauksrif, smátt skorin
3-4 gulrætur, skornar í sneiðar
1 dós tómatar í bitum
5 dl kjúklingakraftur
100 g döðlur, smátt skornar
Setjið túrmerik, cumin, kóríand er,
kanil og salt í skál. Blandið saman
og kryddið kjúklinginn. Steikið
hann síðan upp úr olíu þar til hann
fær smá lit. Takið kjúklinginn til
hliðar og steikið laukinn, síðan
hvítlauk og engifer. Bætið olíu
á pönnuna eftir þörfum. Bætið
restinni af kryddinu á pönnuna og
þá ætti að koma yndislegur ilmur.
Bætið gulrótum á pönnuna og
veltið með lauknum. Því næst
eru tómatar settir út á pönnuna
ásamt kjúklingasoði. Látið suðuna
koma upp, lækkið hitann og setjið
kjúklinginn aftur út í. Lok er sett
á pönnuna og allt látið malla í
klukkustund. Bætið þá döðlum út
í. Bragðbætið með salti. Skreytið
réttinn með steinselju, apríkósum
og pistasíum. Berið fram með
kúskús.
Kjúklingur með
spænskri chorizo-pylsu
Þetta er mjög góður réttur sem
hentar fyrir 4-6. Athugið að
chorizo- pylsa er bæði fáanleg sterk
og mild. Veljið það sem ykkur
finnst best.
1,5 kg kjúklingaleggir á beini
1 tsk. paprika
½ tsk. óreganó
1 tsk. salt
Nýmalaður pipar
Olía til að steikja upp úr
100 g chorizo-pylsa, smátt skorin
2 laukar, smátt skornir
3 hvítlauksrif, smátt skorin
3 paprikur, gjarnan sín í hvorum
litnum
1 dós niðurskornir tómatar
300 ml kjúklingakraftur
Hitið ofninn í 200°C.
Kryddið kjúklinginn með papriku,
óreganó, salti og pipar.
Hitið olíu á stórri pönnu og steikið
kjúklinginn á öllum hliðum.
Takið hann þá til hliðar. Þá er
chorizo sett á pönnuna og steikt
ásamt lauknum, síðan paprika
og hvítlaukur. Loks er tómötum
Kjúklingur og frábær krydd
Kjúklingur er alltaf góður. Hann er hægt að matreiða á marga vegu og flestum þykir hann góður.
Kjúklingur og framandi krydd fara einstaklega vel saman. Það er um að gera að prófa sig áfram.
Kjúklingur sem er ættaður frá Marokkó er spennandi réttur.
Indverskur
kjúklingaréttur
sem einfalt er
að matreiða
en tekur smá
tíma þar sem
marinera þarf
kjúklinginn yfir
nótt til að fá
sem best bragð.
og kjúklingasoði bætt við. Látið
suðuna koma upp. Setjið kjúkling-
inn aftur á pönnuna og látið hana
inn í ofninn. Látið eldast í ofninum
í 25-30 mínútur. Bragðbætið með
salti og pipar ef þarf.
Indverskur kjúklingur
Það er gott að ákveða þennan rétt
sólarhring áður en hann verður
eldaður. Hann er svo miklu betri
ef kjúklingurinn fær að marinerast
yfir nótt. Uppskrift fyrir fjóra.
6 kjúklingalæri
150 ml hrein jógúrt
1 msk. ferskt engifer, rifið
3 hvítlauksrif, pressuð
Salt og pipar
Olía til steikingar
Kryddblanda fyrir karrí
6 hvítlauksrif, smátt skorin
4 cm engiferrót, smátt skorin
1 rauður chilli-pipar, fræhreins-
aður ef þú vilt hafa hann mildari
1 laukur, smátt skorinn
2 msk. tómatmauk (tomato
purée)
1 tsk. garam masala
2 tsk. paprikuduft
2 dósir smátt skornir kirsuberja-
tómatar
1 dós kókosmjólk
Vatn
Salt
100 g ferskt spínat
Ferskt kóríander
Hitið ofninn í 200°C. Blandið
jógúrt, engifer, hvítlauk, salti og
pipar í skál. Setjið kjúklinginn í
plastpoka og hellið marinering-
unni yfir. Lokið pokanum og þekið
kjötið með sósunni. Geymið í
ísskáp, helst í sólarhring en minnst
í eina klukkustund. Takið þá
kjúklinginn upp og leggið á bök-
unarplötu og inn í heitan ofninn.
Á meðan er sósan gerð. Steikið
hvítlauk, engifer og chilli-pipar
og bætið síðan lauknum við. Þá
er tómatmaukið sett út í og loks
kryddið. Látið malla smávegis áður
en tómatarnir eru settir á pönn-
una. Fyllið aðra dósina af vatni
og setjið út í. Látið malla í 10-15
mínútur. Núna er kókosmjólkinni
bætt saman við. Bragðbætið með
salti og pipar.
Takið kjúklinginn úr ofninum og
setjið í sósuna. Látið malla áfram
þar til kjúklingurinn er gegneld-
aður. Í lokin er spínatið sett saman
við. Skreytt með kóríander og
borið fram með hrísgrjónum og
naan-brauði.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir
Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 512 5429 / jonivar@frettabladid.is
VÖRUBÍLAR OG
VINNUVÉLAR
Veglegt sérblað Fréttablaðsins um vörubíla og
vinnuvélar kemur út 25. september nk.
T yggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . S e p t e M B e R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
8
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
C
4
-A
1
1
8
2
0
C
4
-9
F
D
C
2
0
C
4
-9
E
A
0
2
0
C
4
-9
D
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
7
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K