Víkurfréttir - 29.01.1981, Síða 3
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 29. janúar 1981 3
Ragnarsbakarí, Keflavík:
í nýtt húsnæði með vorinu
Ragnarsbakarí hefurnútekiðá
leigu húsnæði að Iðavöllum 8 í
Keflavík, og mun öll starfsemi
fyrirtækisinsflytjast þangað ívor
utan verslunin, sem verðuráfram
á Hringbrautinni. Mjög er nú
tekið að þrengja að starfseminni,
en hún fer nú fram á 5 stöðum.
Framleiösluplássið er núna 250
ferm. en fer upp í 1000 ferm. á
nýja staðnum.
,.Sala á brauöum er alltaf aö
sukast á Reykjavíkursvæðinu,"
sagði Ragnar bakari í viðtali við
blaðið, ,,og fara nú 42% af fram-
leiðslunni þangað. Hn á meðan
salan eykst hjá mér þar, þá er
brauðum ekið hingaðfrá Reykja-
vík, sem sumum finnst skrítið.
Kringlurnar hafagengið mjög vel
og fara þær um allt land nú
þegar."
Eins og kunnugt er hafa flestir
bakarar nú hætt að baka hin
svokölluðu ,,vísitölubrauð"
vegna stríðs þeirra við verðlags-
yfirvöld. Við spurðum Ragnar
hvort hann væri í þeirra hópi:
,,Ég skipti um framleiðslu árið
1975, þá hætti ég að framleiða
allar vísitöluvörur nema heil-
hveitibrauð, og breytti þá mínum
brauðum yfirí,,Ristabrauð“,sem
hafa líkað mjög vel. Þess vegna
þarf ég ekki að breyta neitt um
framleiðslu."
Hið nýja húsnæði Ragnarsbakarís er nú í byggingu
Á misskilningi byggt
Vegna fréttar í síðasta blaði um
brot Fjölbrautaskólans á bygg-
ingalögum, óskar Jón Böðvars-
son eftir að koma á framfæri eft-
irfarandi athugasemd:
„Framkvæmdir við breytingar
á húsinu að Iðavöllum 1 eru ekki
hafnar. Varð að ráði í samráði
við menntamálaráðuneytið, að
verknámsdeildirnar flyttu inn í
húsið á þessum vetri, málmsmíð-
ln í sept. og trésmíðin og hár-
greiðslan i jan. ’82, en engar
breytingar yrðu gerðar á húsinu,
heldur yrði skoðað á þessum
vetri hvernig framtíðartilhögun
yrði hagkvæmust. Þess vegna
var ekkert gert annað heldur en
að hreinsa húsið, laga það til og
mála til bráðabirgða nokkra
veggi, en í febrúarmánuði hefst
hönnun hússins og þá verður
teiknað og síðan gengið frá frá-
gangi að öðru leyti. Af þeim sök-
um var ekki ástæða til að leita til
bygginganefndar, enda er það
ekki skylt í þessum tilvikum. Hins
vegar er sjálfsagt að til bygg-
inganefndar verði leitað þegar
raunverulegar framkvæmdir
hefjast. Þess vegna er það á mis-
skilningi byggt að nokkrar bygg-
ingasamþykktir hafi verið brotn-
ar, þviaðþaðerekkifyrrenraun-
verulegar byggingaframkvæmd-
ir hefjast sem tímabært er að
snúa sér til bygginganefndar, en
hún tekur slík mál ekki fyrir fyrr
en teikningar liggja fyrir og tekur
þá afstöðu til þeirra".
Myndin var tekin er verið var að taka inn vél í verknámshús Fjölbrauta-
skólans viö Iðavelli.
Slökkvitækja-
þjónusta
Suðurnesja
Kolsýruhleðsla - Dufthleðsla
Slökkvitæki og reykskynjarar.
Viðhald og viðgerðir á flestum
tegundum slökkvitækja.
SLÖKKVITÆKJAÞJÓNUSTA
SUÐURNESJA
Háaleiti 33 - Keflavík - Sími 2322
KEFLAVÍK
Félagslegar íbúðir
Ákveðið hefur verið að selja íbúðir þærsem í bygg-
ingu eru á vegum Keflavíkurbæjar að Heiðar-
hvammi 2-4. Um er að ræða 12 íbúðir, 2ja og 3ja
herbergja.
Áætlað er að íbúðum þessum verði skilað fullgerð-
um í lok þessa árs.
Umsóknum um kaup á íbúðunum skal skila á þar
til gerðum eyðublöðum '*rl skrifstofu Keflavíkur-
bæjar ásamt vottorði um fjölskyldustærð, efna-
hag og tekjur.
Umsóknarfrestur er til 6. febrúar n.k.
Bygginganefnd leiguíbúða
á vegum Keflavíkurbæjar
Prjénakonur
Nú kaupum við einungis lopapeysur, heilar og
hnepptar.
Móttaka að Bolafæti 11, Njarðvík, miðvikudaginn
11. febrúar kl. 13-15.
ISLENZKUR MARKADUR HF.
mmsms
TRÉSMIÐJA
KEFLA VlKUR
Sóltúni 4 - Keflavik
Símar 3516, heima3902, 1934
Tökum að okkur alla almenna
trésmíðavjnnu.