Víkurfréttir - 12.02.1981, Blaðsíða 7
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 12. febrúar 1981
7
Aðalfundur K.F.K. -
Formannsskipti
Aðalfundur Knattspyrnufélags
Keflavíkur var haldinn þann 28.
janúar sl.
Það ár sem var aö líða var
merkisár í sögu félagsins, en fé-
lagið varð þá 30 ára. Var þess
minnst með ýmsum hætti. Var
haldin hjólreiðakeppni á vegum
félagsins. Einnig varfrjálsíþrótta
iðkun hafin hjá félaginu undir
handleiðslu Stefáns Hallgríms-
sonar tugþrautarmanns. Félagið
tók þátt í Keflavíkurmótinu í
handbolta og knattspyrnu, var
árangurinn í handbolta mjög
góður. Þar varð K.F.K. Keflavík-
urmeistari með yfirburðum. Ekki
er hægt að státa af jafngóðum
árangri í knattspyrnunni að
þessu sinni. K.F.K. tók einnig
þátt í 17. júni hátíðarhöldunum,
og önnuðust K.F.K. og Í.K. menn
framkvæmd hátíðahaldanna að
þessu sinni. Nokkrir knattspyrnu
menn K.F.K. voru leikmenn með
erlendum félögum á síöasta ári.
Félagið hélt afmælishátíð í Stapa
þann 7. okt. og þótti hún takast
vel.
Nokkrir félagar K.F.K.voru
heiðraðir sérstaklega fyrir vel
unnin störf á þessum aðalfundi.
Ný stjórn var kosin og gaf
Sigurður Steindórsson ekki kost
á sér sem formaöur áfram. Var
Jón Ólafur Jónsson kosinn for-
maður í hans stað. Aðrir í stjórn
félagsins eru: Garðar Oddgeirs-
Badmintonmót yngri flokk-
anna
Þann 1. febr. s.l. hélt
BadmintonféJag Keflavíkur mót
fyrir yngri félaga sína. Mjög góð
þátttaka var í mótinu og heppn-
aðist það mjög vel. Var keppt í
einliðaleik í flokki meyja,
drengja, stúlkna og pilta.
Til úrslita í flokki meyja kepptu
Margrét Þórarinsdóttir og Anna
Gunnarsdóttir. Sigurvegari varð
Margrét Þórarinsdóttir.Til úrslita
í flokki drengja kepptu Guðjón
Skúlason og Trausti Hafsteins-
son. Sigurvegari varð Guðjón
Skúlason.
Til úrslita í flokki stúlkna
kepptu Sigurlaug Hauksdóttirog
Stefanía Schram. Sigurvegari
varð Sigurlaug Hauksdóttir. Til
úrslita í flokki pilta kepptu Pétur
Magnússon og Ftagnar Ó.
Jónsson. Sigurvegari varð Pétur
Magnússon.
Víkurfréttir óska þessum efni-
legu badmintonleikurum til ham-
ingju með árangurinn.
Jón Ólafur Jóntson, núv. form. KFK og Slgurður Stelndórsson, frð-
farandl formaður
son, Ragnar Marinósson,
Þuriður Jónasdóttir, Jón
Haraldsson, Hermann Sigurðs-
son og Marel Sigurðsson. Ýmis
mál voru rædd á þessum fundi
og var greinilega mikill hugur í
K.F.K. mönnum að standa sig
ennþá betur á þessu ári sem er
að hefjast núna. Víkurfréttir
óskar félaginu alls hins besta í
framtíðinni.
Fréttatilkynning
Albert Watson, breskur fyrirlesari
og prófessor við Newbold College í
Englandi, mun flytja fyrirlestra hér á
landi dagana 19.-25. febr. n.k. Efni
fyrirlestranna er sköpun. Watson lauk
háskólaprófi og M.A. prófi í náttúru-
visindum frá Kaliforníuháskóla og
síöan M.Phil prófi í náttúrurannsókn-
um frá Lundúnarháskóla.
Undanfarin 18 ár hefur Watson lagt
m.a. stund á aó rannsaka þau náttúr-
fyrirbæri sem benda til sköpunar
frekar en til þróunar. Eins og sumum
fslendinga er kunnugt, hafa niöur-
stööur ýmissa rannsókna á
náttúrunni dregiö i efa sanngildi
vissra þátta þróunarkenningarinnar.
Mun Watson greina frá sumum af
þeim niðurstööum rannsókna sinna í
þessum efnum.
Fyrsti fyrirlestur Watsons, sem flutt
hefur svipaöa fyrirlestra í Noregi,
Sviþjóð, Danmörku og Hollandi,
veröur fluttur að Lögbergi i Háskóla
(slands fimmtudaginn 19. febr. kl.
20.30. Fyrirlesturinn hér í Keflavík er
fyrirhugaöur þriðjudaginn 24. febr.
og veröur haldinn í Safnaöarheimili
aöventista aö Blikabraut 2, kl. 20.30.
HREINLÆTISTÆKI
BLÖNDUNARTÆKI
GÓLFTEPPI
GÓLFDÚKAR
GÓLFMOTTUR
GÓLFDREGLAR
BAÐSKÁPAR
BAÐMOTTUR
STÁLVASKAR
ALLT TIL BYGGINGA Á EINUM STAÐ:
VELKOMIN í JÁRN & SKIP.
Kaupfélag Suðurnesja
JARN & SKIP
STÆKKAR