Víkurfréttir - 12.02.1981, Page 12
l/^Z^TRÉTTIK
| Fimmtudagur 12. febrúar 1981
SPARISJÓÐURINN
er lánastofnun allra
Suðurnesjamanna.
Brotalöm I fframkvœmd
tilkynningaskyldunnar
sem skipstjórar og útgerðarmenn
verða að lagfæra og bæta
Er við vorum niðri við Keflavík-
urhöfn sl. mánudag, tókum við
eftir manni sem var á ferðinni
milli bátanna sem þar lágu. Við
tókum hann tali og spurðum urn
erindi hans í bátana, og kom þá í
Ijós að þarna var á ferð Ásgrímur
S. Björnsson, erindreki Slysa-
Ásgrímur S. Björnsson, erindreki S.V.F.Í.
Lifeyrissjóður verkalýös-
félaganna í nýtt húsnœöi
Llfeyrissjóður verkalýösfélaga
á Suöurnesjum, sem áöur var til
húsa að Mánagötu 11 ( Keflavík,
hefur nú flutt starfsemi sína að
Suðurgötu 7 f Keflavlk. Jafn-
framt þvl hefur afgreiöslutfmi
sjóðsins verið breytt og er nú frá
kl. 9.15-16 mánudaga til föstu-
daga. Sfmanúmer er einnig nýtt,
3803.
Lífeyrisdeild Sparisjóðsins í
Keflavík, sem annast hefurýmsa
þjónustu fyrir Lífeyrissjóö verka-
lýðsfélaga frá stofnun hans,
hefur einnig flutt starfsemi sfna
að Suðurgötu 7, en hún var áður
að Suöurgötu 4.
Jafnframt þvf að annast þjón-
ustu fyrir Lífeyrissjóð verkalýðs-
félaga sér Iffeyrissjóðsdeildin
um afgreiðslu fyrir Lffeyrissjóð
slökkviliösmanna á Keflavfkur-
flugvelli, Lffeyrissjóð iðnaðar-
mannafélags Suðurnesja,
Almennan Iffeyrissjóð iönaðar-
manna og innheimtu gjalda fyrir
verkalýðsfélögin á Suðurnesj-
um.
Frá v.: Daniel Araton framkv.ttj. Verkalýðafélaga á Suðumeajum, Áml
Björgvlnaaon og Daðl Þorgrlmaaon, atarfamenn Iffeyrlaajóðadelldar
Sparlajóðaina.
varnafélags Islands. Kvaðst
hann vera að minna skipstjórana
á smá plagg varðandi tilkynn-
ingaskylduna, sem skipstjórum
og útgerðarmönnum varsentum
sl. áramót.
„Okkur fannst þetta plagg ekki
bera nógu góðan árangur,"
sagði Asgrímur, „og kom stjórn
SVFÍ sér saman um að nauðsyn-
legt væri að senda mann hingað
suður eftir og ná frekara sam-
bandi við skipstjórnarmenn, í
von um betri árangur. Ég er
búinn að vera í Sandgerði,
Grindavík og hér í Keflavík og hef
talað við 100 skipstjóra á 3
dögum og nóttum, sem allir hafa
tekið mér mjög vel."
Að jafnaði vantar fjölda til-
kynninga dag hvern í lok skyldu-
tímans kl. 13.30. Þá er sá háttur
á hafður, að þau skip sem vantar
er deilt niður á strandstöðvarnar
í köllun og beðið um skyldur.
Jafnframt því hefja starfsmenn
skyldunnar eftirgrennslanir hjá
hafnarvörðum og vigtarmönnum
hinna ýmsu verstöðva. Að vísu
ber slíkt árangur, en harla lítinn
oft á tíðum. Alltof algengt er að
skipin svari ekki, sem skýtur
stoðum undir þá alvarlegu ætlan
að hlustvörslu sé mjög ábóta-
vant. Þessarsífelldu eftirgrennsl-
anir frá einni höf n til annarrar eru
tímafrekar og seinka skráningu
skipanna. Af þessu tilefni er því
skylt að árétta það mikilvæga
atriði, að skipstjórnarmenn
sendi ávallt tilkynningar í upp-
hafi hinnaákveðnuskyldutímatil
að flýta allri úrvinnslu.
Það tómlæti, varðandi brot á
lögboöinni tilkynningaskyldu,
vanrækslu um hlustvörslu þar
sem köllum strandstöðva er alls
ekki svaraö langtímum saman,
ásamt takmarkalausu tillitsíeysi
við þá sem sinna samviskusam-
lega ábyrgðarmiklu starfi, ersér-
hverjum sem í hlut á ti! hinnar
mestu vansæmdar. Hér er mikil
brotalöm í framkvæmd tilkynn-
Framh. á 6. alfiu
Sandgerði:
Sundlaug á
næsta leiti
Nú þegar bygging íþrótta-
hússins í Sandgerði er að verða
lokið er næsta skref ið að fá sund-
laug í byggðarlagið, en hingaö til
hafa skólabörn og aðrir íbúar
Miðneshrepps þurft að sækja
sundstaði Keflavíkur eða Njarð-
víkur.
Úr þessu rætist von bráðar, því
nú hefur verið keypt sundlaug úr
plasti frá Skagaströnd, sem á að
afhendast í marz n. k. Hún er 16
2/3 x 8m. og verður sett niður við
íþróttahúsiö.
Sandgerði:
Nýtt
dagheimili
I smíðum
Nýtt dagheimili er nú ísmíðum
í Sandgerði og stefnt að því að
hægt verði að taka í notkun %
hluta þess í lok þessa árs. Húsið
er 260 ferm og var steypt upp sl.
haust.
Núverandi húsnæði leikskól-
ans er algjörlega óviðunandi til
þeirrar starfsemi, en þar geta nú
verið 20-22 börn. Er brýn nauð-
syn á því að nýja húsið komist í
gagnið sem fyrst, en það mun
fullbúið rúma 40-50 börn.
Að sögn Jóns K. Ólafssonar
sveitarstjóra, er byggingarkostn-
aöur hússins á því stigi sem það
er í dag, mjög lágur miöað við
það sem almennt gerist, og er við
spurðum Jón um orsök þess,
kvað hann helstu skýringuna
vera hagkvæmni í byggingaraö-
ferð og sjálfsagt góður mann-
skapur.
Viðgerð áformuð á Reykja-
nesbraut næstu 2-3 árin
Áformað er að í ár hefjist við-
gerð á Reykjanesbraut og er á-
ætlað að hún standi yfir í tvö til
þrjú ár, vegna mikils kostnaöar,
að því er fram kom í svari Stein-
gríms Hermannssonar sam-
gönguráðherra, við fyrirspurn
frá Karli Steinari Guðnasyni al-
þingismanni á Alþingi í síöustu
viku.
Áætlaö er að 10% af allri um-
ferð á vegakerfi landsins fari um
Reykjanesbraut, en hún var lögð
á árunum 1962-65 og síðan hefur
ekkert viðhald farið fram á henni.
Af völdum hjólfaranna sem
myndast hafa smám saman og
hafa dýpkað, er áætlaö að slys
ættu sér stað á Reykjanesbraut
m.a. af þessum orsökum, að
meðaltali fjórða hvern dag.
Ráðherra sagði að um tvær
leiðir væri að ræða varðandi við-
gerð. Að leggja asfalt ofan á
steinsteypuna, sem algengt
væri, og í annan stað að fræsa
yfirborð vegarins niðurfyrirhjól-
förin, og hefði sú aöferö varan-
legra gildi. Kostnaður væri áætl-
aður svipaður, eða um 17 millj.
kr. á núgildandi verölagi, og yröi
að skipta svo kostnaöarsömu
verki niöur á tvö til þrjú ár.