Víkurfréttir - 11.06.1981, Side 1
11. tbl. 2. árg. Fimmtudagur 11. júní 1981
fCÉTTIC
I
i
Vörubíllinn
kantinum
Litlu munaöi aö stórtjón yrði
við Keflavíkurhöfn aö kvöldi upp-
stigningardags, er ökumaður
vörubíls frá fisksala einum í
Reykjavík, skildi bílinn eftir í
gangi, en í handbremsu, meðan
hann stökk inn á hafnarvigtina.
En handbremsan hélt ekki
bílnum og tók hann því að renna
á mikilli ferð í átt að olíubryggj-
unni og stöðvaðist bíllinn ekki
fyrr en annað afturhjólið var
komið út fyrir bryggjukantinn og
vó hann salt á kantinum.
Má það heita kraftaverk að
ekki skyldi verr fara, því ávallt er
rnikil umferð um svæði það sem
bíllinn rann stjórnlaus um, og
einnig það, aðhann réttslappvið
olíuskúrinn og á vegi hans var
Þungur steinn sem er hafður til
að loka bryggjunni, en bæði
hann ogolíubarkarsemábryggj-
unni voru drógu það mikiö úr
vó salt á bryggju
ferð bílsins að hann fór ekki
lengra.
Fá þurfti kranabíl til að lyfta
bílnum aftur upp og tókst það án
þess að miklar skemmdir yröu á
honum.
Keflavík
Anna ekki eftirspurn
eftir einbýlishúsaióðum
Á fundi bæjarstjórnar Kefla-
vikur 19. maí sl. var lögð fram
eftirfarandi tillaga frá Guðfinni
Sigurvinssyni, Olafi Björnssyni
og Jóni Ólafi Jónssyni:
„Bæjarstjórn Keflavíkur sam-
Þykkir aö fresta úthlutun
raðhúsalóða í Heiðarbyggð IV.
Lóöirnar verði auglýstar til um-
sóknar og skal umsóknarfrestur
vera til 20. júní 1981.“ í greinar-
gerð með tillögunni segir: „Rað-
húsalóðir í Heiðarbyggð IV voru
ekki auglýstar, aðeins einbýlis-
húsalóðir. Með tilliti til þess að
ekki var mögulegt að úthluta
nærri öllum sem sóttu um lóðir,
telur bæjarstjórn eðlilegt að gefa
þeim, sem ekki fengu einbýlis-
húsalóðir, kost á raöhúsalóð-
um."
Ennfremur tóku til máls Hilm-
ar Pétursson, Jón Ólafur Jóns-
son, Ólafur Björnsson, Tómas
Tómasson, Karl Sigurbergsson
og Steinþór Júlíusson. Tillagan
féll á ónógri þátttöku í atkvæða-
greiðslu. 3 greiddu atkvæði með
tillögunni, þeir sem ekki tóku
þátt í atkvæöagreiðslunni voru
allir aðrir en flutningsmenn.
Tómas Tómasson gerði eftirfar-
andi grein fyrir hjásetu:
„Ég tel ekki fært að fresta eða
draga til baka þær úthlutanir um
raðhúsalóðir, sem bygginga-
nefnd hefir samþykkt, en tel hins
vegar rétt, að þær raðhúsalóðir
sem enn er óráðstafað verði aug-
lýstar, eða þeim sem eiga um-
sóknir um einbýlishús yrði gef-
inn kostur á þeim lóðum.“ Karl
Sigurbergsson tók undir bókun
Tómasar vegna hjásetu sinnar.
Kvenbílstjóri hjá SBK
Þó svo að kona hafi sest í
æðsta embætti landsins, er ekki
þar með sagt að jafnréttisbarátt-
unni sé lokið. Þannig halda kon-
ur enn áfram að marka sér bás i
hefðbundnum karlastörfum. Ein
slík er Þorgeröur Einarsdóttir í
Keflavík. Hún tók meirapróf og
rútupróf í vetur og starfar nú sem
rútubílstjóri hjá Sérleyfisbifreið-
um Keflavíkur.
Við spurðum Þorgerði hvar
hún hefði starfaö áður. Sagðist
hún hafa starfað við verslunar-
og afgreiöslustörf í sjoppum og
verslunum. Ástæðan fyrir því að
hún fór í meiraprófið var sú, að
hún sá sér færi á að ná sér í góða
sumarvinnu. Einhvern veginn at-
vikaðist það síðan, að hún fékk
þetta starf.
Ekki munu Reykjavíkurfarþeg-
ar þó verða þess aðnjótandi að
ferðast með Þorgerði. Hún mun
vera ráðin á Vallarrútuna. Við
spurðum hana hvort ekki væri
erfitt að stýra svona stórum bíl. -
„Nei, konur geta það rétt eins og
karlmenn. Eða því ekki?" Þor-
gerður sagðist ekki sjá neina
skýringu á því að karlar hefðu
hingað til ekið rútum. „Ef til vill
hafa konur ekki sóst í þetta
starf.“ Taldi Þorgerður að konur
hefðu haft sömu möguleika.
Bylting í
Garðinum
Nýlokið er aðalfundi Verka-
lýðs- og sjómannafélags Gerða-
hrepps, en á fundinum geröist
það helst markvert, að stjórn og
trúnaðarráði félagsins ver velt af
valdastóli.
Hinn nýkjörni formaðurer Jón
Hjálmarsson, en fyrrverandi for-
maður var Ólafur G. Sigurðsson.
Segja má aö á aöalfundinum
hafi verið endurtekinn sáatburð-
ur sem átti sér stað hjá Verka-
lýðs- og sjómannafélagi Miðnes-
hrepps, Sandgerði, fyrir ári síð-
an, en þar var einnig eins og nú
skipt um völd með byltingu á
aöalfundi félagsins.
Nú velta menn því fyrir sér
hvenær málshátturinn „allt er
þegar þrennt er“, verði að veru-
leika og þar með bylting í þriðja
verkalýðsfélaginu hér á Suður-
nesjum.
Leyft að henda
rusli í fjöruna
Vegna þess ófremdarástands
sem skapast hefur vegna þess að
Sorpeyöingarstöð Suðurnesja
getur ekki unnið járn og annað
því um líkt sorp, og að ekki er í
sjónmáli járnapressa, hefur
mikiö af þess konarsorpi hlaðist
upp í kringum Sorpeyðingar-
stöðina.
Og til að koma í veg fyrir þessa
upphleöslu á bílhræjum og öðru
sorpi sem vandræði er að eyöa,
hefur Keflavíkurbær nú leyft að
setja þetta drasl í uppfyllingu þá
er verið er að gera neöan Haf nar-
götu við gömlu Stokkavörina og
Miðbryggjuna.
Ónæöi af
Aðalstöðvar-
planinu
Að undanförnu hafa borist kvart-
anir yfir hávaða og ónæði af
nætur- og kvöldumferð á plani
Aðalstöðvarinnar í Keflavík, og
var málið tekið upp á fundi bæj-
arstjórnar 19. maí sl.
Þar var samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum að fela
bæjarstjóra aö fá bæjarfógeta og
forráðamenn Aðalstöðvarinnar
til fundar vegna kvartana um
þetta ónæði á plani stöövarinn-
ar um helgar, og kanna leiðir til
úrbóta.