Víkurfréttir - 25.06.1981, Síða 7
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 25. júní 1981
7
Grasvöllurinn í mikilli niðurníðslu
- og slysagildra í þokkabót
Þegar fólk kemur inn á íþrótta-
svæðiö í Keflavík tekur það fljótt
eftir þvi að svæðið hefurstórlega
látið á sjá og er það í mikilli nið-
urniðslu, já, svo mikilli, að til
háborinnar skammar er fyrir alla
þá sem eiga þar hlut að máli.
Á grasvallarsvæöinu virðist
Knattspyrna
Að 6 umferöum loknum í 2.
deild eru Keflvíkingar efstir með
10 stig. Töpuðu leik á móti Þrótti
Reykjavík 0:2, en unnu Þrótt
Neskaupstað 1:0.
Sandgerðingar eru í öðru sæti
með 8 stig, en hafa leikið einum
leik minna en Keflvíkingar þegar
þetta er skrifað. Þeir eiga mögu-
teika á að skjótast upp i fyrsta
sætiö ef þeir vinna leikinn sinn.
Víðir og Keflavík léku í Garði
m
HITAVEITA
SUÐURNESJA
Þjónustu-
síminn er
3536
TRAKTORSGRAFA
Tek aö mér alla almenna
gröfuvinnu.
Slguröur Jónsson
Síml 7279
fbúð óskast
til leigu i Keflavík eða Njarðvík,
helst 3ja herbergja. Uppl. í síma
3170 eftir kl. 19.
Sumardvöl I sveit
Get tekið fjögur börn til sumar-
dvalar á aldrinum 5-9 ára. Uppl. í
sima 95-4325.
Kvlkmyndalelga
Leigi út 8 mm kvikmyndafilmur
bæði þöglar og tónmyndir. Einn-
'9 sýningarvélar. Tilvalið í barna-
afmæliö. Kaupi vel með farnar
filmur. Uppl. í síma 3445 alla
daga til kl. 22.
ökukennsla
Æfingatímar
Greiðsla aðeins fyrirtekna tíma.
Útvega öll kennslugögn.
Helgi Jónatansson
Vatnsnesvegl 15 - Slmi 3423
16. júní í Bikarkeppni KSÍ. Var
það fjörugur og góður leikur sem
lauk með sigri Keflvíkinga, 2:0.
Fóru því Keflvíkingar í 16 liða úr-
slitin, leika þar á móti efsta lið-
inu í 1. deild, Víkingi. Fer sá
leikur fram 1. júlí n.k. í Keflavík.
Njarðvíkingar hafa leikið 4 leiki
og eru með 5 .stig. Þeim var
dæmdur sigur gegn Þór Þorláks-
höfn, þar sem Þór mætti ekki.
Gerðu síðan jafntefli við Víði
Garði 0:0. Víðir hefur örugga for-
ystu ísínum riðli með9stigeftir5
leiki.
Keflavíkur- og
Njarðvíkur-
prestaköll
Sóknarpresturinn í Keflavík
verður í sumarleyfi út júlí. Á
meöan annast sóknarpresturinn
í Njarðvík prestþjónustuna. Simi
hans er 3480.
Guðsþjónustur verða sem hér
segir:
28. júli kl. 11 í Keflavíkurkirkju.
5. júlf kl. 11 í Innri-Njarðvíkur-
kirkju og kl. 14 í Ytri-Njarövíkur-
kirkju.
12. júlí kl. 11 í Keflavíkurkirkju.
26. júlf kl. 11 íKeflavíkurkirkjuog
kl. 14 í Ytri-Njarövíkurkirkju.
Sr. Þorvaldur Karl Helgason
FISKIOJAN
Framh. af 1. tlðu
þegar endurhönnun er lokið
verði sjáanlegt gagn af þessum
mengunarvörnum.
Ef allt vinnur eins og til stend-
ur mun reykur að mestu hverfa
en óloftið mun fara eftir fersk-
leika hráefnisins. „Þó takist að
eyöa 97-98% af lyktinni, mun
alltaf finnast einhver ólykt, ef um
gamalt hráefni er að ræða,"
sagði Gunnar að lokum.
SJÓMANNADAGURINN
Framh. af 9. slðu
búnings, en sjómannadansleikur
var haldinn f Stapa á laugardags-
kvöldiö 13. júní. Tókst sá dans-
leikur vel I alla staöi, en þar spil-
aði fyrir dansi hljómsveitin Upp-
lyfting.
-Segja má aö dagskráin hafi öll
fariö vel fram, en í sambandi við
þessi hátíöarhöld var eitt atriöi
athyglisvert, og það er hvers
vegna aðeins 3 bátar og flutn-
ingaskipiö sem i höfninni var,
fiögguðu merkjafánum (signal),
en slík flögg gera mikinn svip á
höfnina á sjómannadsginn.
fátt vera í lagi nema girðingin
sem umlykur það. Völlurinn sjálf-
ur virðist vera nær ónýtur, allur í
skellum hólum og sandpyttum
og er engu líkara en að ekki sé
hægt að leika á honum knatt-
spyrnu. Grindverkið í kringum
völlinn sjálfan er víða laskað og
mjög sóðalegt yfir höfuð og
hefði bærinn átt að notfæra sér
tilboð málningarverslananna í
fegrunarvikunni og kaupa
málningu með 10%afslætti,tilað
mála þaö.
Síðast en ekki síst er sá kafli
hlaupabrautarinnar sem hafist
var handa við að lagfæra í vetur,
en þá vantaði ekki framtakssem-
ina. Jú, það var byrjað á að
undirbygjja hluta hennar og nú
er verkið komiö þaö langt aö þar
er nú grjóthaugur en ekki hefur
veriö hirt um að setja þar neitt
topplag og er þetta sem stendur
aðeins stórfelld slysagildra fyrir
þá sem taka þátt í kappleikjum,
því ekki er nema rúmur metri í
grjótið frá línu vallarins. Oft
hefur það komið fyrir að
leikmenn hafa runnið eða kast-
ast út á hlaupabraut, en sem
betur fer hefur það ekki skeð
síðan þessar stórframkvæmdir
hófust.
Við skulum vona að bæjaryfir-
völd sjái sóma sinn í aö Ijúka
þessum framkvæmdum áður en
slys hlýst af.
Vélsmiðja Ol. Olsen, Njarðvík:
Mötuneyti og bætt
hreinlætisaðstaða
Nýlega var tekið í notkun glæsi
legt mötuneyti hjá Vélsmiðju Ol.
Olsen í Njarðvík. Þar geta
matast milli 35-40 manns. Her-
bergi það sem mötuneytiö ernú í
var áður kaffistofa sem nú hefur
verið innréttuð upp á nýtt og
komið þar fyrir eldhúsaðstöðu
einnig.
Þá var hreinlætisaðstaöa stór-
bætt, sem er búnings- og snyrti-
herbergi, 35 ferm., en þar verður
komiö fyrir 24 skápum.
21 starfsmaöur vinnur nú hjá
fyrirtækinu og eru næg verkefni
fyrir hendi. Stærstu verkefnin
sem nú er unniö að eru breyting-
ar á tveimur bátum, smfði nýs
bátadekks á Mánatind SU 95, og
svo er verið að lengja hvalbak á
Hrafni Sveinbjarnarsyni III og
smíða á hann nýtt stýrishús. Auk
þess eru ýmis smærri verk í
gangi.
fþrótta- og leikjanámskeið
verður haldið fyrir börn og unglinga 6-12 ára.
Innritað verður á námskeiðið næstu daga í íþrótta-
vallarhúsinu.
Í.B.K.
Starfskraft vantar
til afgreiðslustarfa (vaktavinna). Umsóknir um
starfið leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir 30.
júní n.k.