Víkurfréttir - 09.07.1981, Qupperneq 7
VÍKUR-fréttlr
Fimmtudagur 9. júli 1981
tórátak
u
8 í Sandgerði
„( þeim efnum hefurveriðfarið
rólega í sakirnar, enda erum við
að ná jafnvægi í fjármálunum
eftir fyrri framkvæmdir. Hins
vegar er höfnin það mál sem allt-
af er efst á baugi. Þar eru megin
framkvæmdirnar. í sumar er t.d.
fyrirh ugað að byggja nýja vigt og
jafnframt nýtt vigtarhús. Þar að
auki verður unnið við dýpkun. Af
öðrum verkefnum sem eru í
gangi eða er að Ijúka, má nefna
(þróttahúsið. Það er nýkomið í
gagnið. Svo er nýbúið að steypa
upp dagheimili. í sumar er áætl-
að að leggja slitlag á um það bil 'k
kílómetra. Nú, og svo er búið að
kaupa sunadlaug með tveim heit-
um pottum. Það er hins vegar
ekki ákveðið hvenær haf ist verð-
ur handa við að koma heni í
gagnið. Þó mun vera mikilláhugi
á að koma henni upp fyrir
haustið. Þetta verkefni hefur að
hluta verið unnið af Lionsfélög-
um hér.“
Það er því óhætt aö segja aö
ýmislegt sé ,,á prjónunum" hjá
þeim í Sandgeröi.
Hvað með atvinnulífið?
„Fiskvinnslan og sjómennsk-
v an eri aðal greinarnar hér,“ segir
Jón og bætir við „því miður".
Taldi hann að mjög skorti á að
þaö væri fullnægjandi. „Hér
vantar iðnað, einhvern smáiðn-
að. Sérstaklega fyrir það fólk
sem kýs að vinna ekki f fiski. Þar
væri æskilegt að sveitarfélagið
stuölaöi að þvf aö koma slíku á
fót.“
Þá spurðum við hvernig heilsu-
gæslan væri. „Hér er útibú frá
Heilsugæslustöð Suðurnesja,
eða á að heita svo. Persónulega
er ég óánægður með þá skipan.
Þetta útibú býr við mjög slæman
húsakost. Hingað kemur læknir
fjórum sinnum í viku, klukkutíma
á dag. Síðan er hjúkrunarkona
einn dag í viku. Þetta ástand þarf
að batna, einkum ef mið er tekið
af fólksfjöldanum."
Hvað myndir þú svo vilja segja
að lokum?
r „ Það er gleðiefni að hér hefur
verið unnið stórt átak f umhverf-
ismálum. Fólk hefur lagt á sig
mikla vinnu í görðum sínum. Það
sama er hins vegar ekki hægt að
segja um sum fyrirtækin. Við höf-
um staöið f þrasi viö þá aðila, og
stundum hreinlega í stríði. Nú er
fyrirhugað að hreppurinn hreinsi
þetta á þeirra kostnað, ef þeir
verða ekki við frekari áskorun-
^ um. Ruslið verður nefnilega enn
meira áberandi hjá fyrirtækjun-
um þegar almenningur hefur
hreinsað kringum hús sín. Þá
veröur þetta rusl ennþá meira
áberandi."
Við svo búið kvöddum við Jón
og Sandgeröi líka.
málið í góða
veðrinu!
3málningartegundir
á steinveggi úti:
HRAUN
SENDIN AKRÝLPLASTMÁLNING
3 málningartegundir til að full-
nægja öllum aðstæðum,
sem upp geta komið, við málun
steinhúsa á íslandi.
Heildsala - Smásala
diopinn
Hafnargötu 80 - Keflavík - Sími 2652