Víkurfréttir - 13.08.1981, Side 1
14. tbl. 2. árg. Fimmtudagur 13. ágúst 1981
FCÉTTIC
SORPEYOINGARSTÖÐIN:
Engin lausn í sjónmáli
Sorpeyðingarstöðin er að
verða eitt af meiri háttar vanda-
málum Suðurnesjabúa. Allt frá
byrjun hefur reksturinn gengið
skrykkjótt og óánægja meðal al-
mennings fer ört vaxandi. Eitt
stærsta vandamál stöðvarinnar
nú er hvernig hægt sé að koma
grófu sorpi og iðnaðarsorpi ilóg.
[ samtali við Albert K. Sanders
bæjarstjóra í Njarðvík, var þetta
staðfest: ,,Viö erum allir að verða
Fram hefur komið í fjölmiðlum
að Garðskagi hf. í Garði er meðal
örfárra fyrirtækja í landinu sem
fengið hefur leyfi til innflutnings
á fiskiskipi erlendis frá.
Ýmsum fiskverkendum og
öðrum hagsmunaaðilum hefur
fundist það furðulegt að þetta
fyrirtæki skuli fá leyfi frekar en
Nýtt
æfingasvæði
í Keflavík
Nú fyrir skömmu hófst loka-
vinna viö nýtt knattspyrnuæf-
ingasvæði i Keflavík. Er þetta
svæði fyrir ofan Iðavelli. Knatt-
spyrnumenn úr öllum flokkum
(BK munu leggja hönd á plóginn
og hjálatilviðaðleggjatúnþökur
á svæðið.
Hófust þeir handa 6. ágúst sl.
og báru áburð á svæðið, rökuðu
yfir það og hreinsuðu grjót af því.
Var síðan hafist handa við að
leggja það torf sem komið var, og
var unnið af miklum krafti til kl.
12 á miðnætti.
vitlausir á þessum vanda."
Þegar Albert var spurður að
því hvort einhver sérfróður aðili
hefði verið fenginn til þess að
gefa umsögn, og e.t.v. tillögur,
um vandann við að koma iðnað-
ar- og grófasorpinu fyrir, svaraði
hann: „Nei, það var kannaðá sín-
um tíma að fá eitthvert fyrirtæki
til þess að gera úttekt á þessu, en
í Ijós kom að ekkert fyrirtæki á
landinu hafði neina patent lausn
önnur fyrirtæki á Suðurnesjum.
Undrun manna byggist á því að
Garðskagi hf. svo og nokkur
önnur fyrirtæki í Garði og Sand-
gerði hafa að undanförnu orðið
að treysta á mannskap frá Kefla-
vík ívinnu hjásér, þarsem nægur
á málinu. Vandamálið er ekki
hvaða vanda á að leysa, heldur
hvernig á að leysa hann, og það
er ekki eins einfalt og það lítur út
fyrir að vera. Það hafa verið
reyndar ýmsar leiðir, en engin
þeirra gengið upp.
Ef hægt er að fá einhverja pat-
ent lausn á þessu þá yrði örugg-
lega vel borgað fyrir hana," sagði
Albert að lokum.
mannskapur er ekki í viökom-
andi þorpum til að fullnægja fisk-
vinnslunni.
I viötali við formann Atvinnu-
málanefndar Suðurnesja, Guð-
berg Ingólfsson, í dagblaðinu
Vísi nú nýlega, telur hann að um
150 manns úr Keflavík vinni í
Garðinum. Þvierspurt: Væri ekki
nær að staðsetja skipin þar sem
mannskapurinn er fyrir hendi, en
ekki öfugt?
Atvinnuuppbygging
á Suðurnesjum:
Nefnd skipuð
Ríkisstjórnin hefur skipað
nefnd til þess að vinna að fram-
kvæmd eftirfarandi ákvæðis
stjórnarsáttmála ríkisstjórnar-
innar frá 8. febr. 1980: „Undir-
búið verði öflugt átak til atvinnu-
uppbyggingar á Suðurnesjum."
( nefndina voru skipaðir: Finn-
bogi Björnsson framkv. stjóri
Garði, form., Jóhann Einvarðs-
son alþm. Keflavík, og Geir
Gunnarsson alþm. Hafnarfirði.
Leysa Vogamenn
vanda Sorpeyð-
ingarstöðvar-
innar?
Uppi eru hugmyndir um þaö í
Vogum að setja á stofn stál-
bræðslu. Eins og vitað er, á Sorp-
eyðingarstöð Suðurnesja í
mestu vandræöum með brota-
járnið og þvi verður að henda því
á víðavang, sem er til mestu
óþurftar, eins og flestir vita.
Það væri því ekki fjarri lagi að
ætla að sveitarstjórnarmenn á
Suðurnesjum líti velþóknunar-
augum á áætlanir Vogamanna.
Eins og einn þeirra segir ann-
ars staðar í blaðinu, þá yrði vel
borgað fyrir „patent" lausn á
vandanum. Það skyldi þó aldrei
vera að hér sé komin lausnin?
Framkvæmda-
stjóraskipti
hjá VSFK
Um mánaðamót júní-júlí urðu
framkvæmdastjóraskipti hjá
verkalýðs- og sjómannafélagi
Keflavíkur og nágrennis, en þá
lét Emil Páll Jónsson af störfum
að eigin ósk, eftir um 10 ára starf
hjá félaginu. Við starfi hans tók
Sigurbjörn Björnsson, hlaömað-
ur hjá Flugleiðum hf.
Skipaafgreiðsla
Suðurnesja:
Nýr fram-
kvæmdastjóri
1. okt. n.k. verða framkvæmda-
stjóraskipti hjá Skipaafgreiðslu
Suðurnesja, en þá tekur Jón
Norðfjörð, Sandgerði, við starf-
inu af Karli G. Sævar, sem lætur
af störfum frá sama tíma.
Alls bárust 26 umsóknir um
starf þetta, sem auglýst var með
umsóknarfresti til 18. júlí sl.
Ný sérleyfisbifreið
Sérleyfisbifreiðir Keflavikur tóku nýlega í notkun nýja áætlunarbif-
reið. Er hún af gerðinni Scania Vabis, með Kutteryfirbyggingu, sem er
finnsk. Vagninn tekur 58 farþega og kostaði 1.3 millj. kr.
Fyrirtækið á nú 8 almenningsvagna.
Það eru takmörk fyrlr þvi hvaða rusli Sorpeyðingarstöðin tekur á móti, og þvf freistast fólk til að fleygfa þvi
ásjávarbakkann við Hafnargötuna, og það hefur síður en svo fríkkað upp á umhverfið að undanförnu.
Hvers vegna fá Garðmenn að
flytja inn skip frekar en aðrir?