Víkurfréttir - 13.08.1981, Qupperneq 7
VlKUR-fréttir
Fimmtudagur 13. ágúst 1981 7
Að undanförnu hefur Tommi,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
félagsheimilisins Festi í Grinda-
vík, sett upp í Reykjavík tvo veit-
ingastaði geysivinsaela, sem að-
aláhersla er lögð á sölu ham-
borgara. Nú hefurTommiákveð-
ið að opna hamborgarasölu í
Keflavík og verður hún staðsett
að Hafnargötu 54, þarsem Hjól &
Vagnar eru nú. Áætlað er að
opna í október n.k.
hamborgarar
í Keflavík
Tomma-
Teppalager Dropans er að Iðavöllum 3.
Breiddir: 2, 3,60 og 4 m. - Verð frá kr. 30 pr. ferm.
Gólfdúkur, 2ja oga
4 m. breiður.
Veggdúkur
Veggstrigi
dropinn
Hafnargötu 80 - Keflavík - Sími 2652
Auglýsingasíminn er 1760
Kraninn hf.:
Eigendaskipti
Nú nýlega urðureigendaskipti
af helmings hlutafjár í Kranan-
um hf., en annar af stofnendum
fyrirtækisins, Jóhann Pétursson,
seldi þeim Ingólfi Falssyni og
Þórhalli Helgasyni og fyrri með-
eiganda, Ragnari Péturssyni,
sinn hluta, og munu þeir reka
fyrirtækið áfram í sömu mynd og
áður.
Hvers vegna ekki „heitan læk“ á Fitjum?
Á góðviðrisdögum í sumar
hefuroft komið upp í hugasumra
þeirra Suðurnesjamanna, sem
ekki hafa aðstöðu til að hafa
heitan pott við hús sín, hvort ekki
sé hægt að gera heitan afrennsl-
isskurð t.d. inn á Fitjum, í svipuð-
um dúr og t.d. heiti lækurinn í
Reykjavík. Nú hlýturaðveratölu-
vert af ónotuðu heitu vatni yfir
sumarmánuðina, sem kaupend-
ur hafa ekki not fyrir en hafa
greitt vegna hemlagjaldsins.
( framhaldi af þessu lögðum
við eftirfarandi spurningar fyrir
Ingólf Aðalsteinsson, framkv.-
stjóra HS: 1. Hefurþettakomiðtil
umræðu á stjórnarfundum? 2. Er
Dragnótaveiði
hafin
Um miðjan síðasta mánuð hóf-
ust dragnótaveiðar á kola frá
Keflavík og stunda þessar veið-
ar nú tveir bátar, þeir Baldur og
Gullþór. Landa þeir báðir aflan-
um til vinnslu hjá Sjöstjörnunni
hf. í Njarðvík. Afli hefur verið
sæmilegur, eða þetta 4-5 tonn í
róðri.
Auk þessara þriggja báta þá er
Ólafur KE farinn einnig á sömu
veiðar, en hann leggur upp i
Vestmannaeyjum og tók raunar
við tilraunaveiðum þeim sem
Baldur KE var með fyrir Fiskiðj-
una hf. í Eyjum. Að loknum veið-
um við Vestmannaeyjar mun
hann leggja upp á Akranesi til
loka vertíðar.
þetta framkvæmanlegt með litl-
um tilkostnaði?
,,Það vatn sem kemur til með
að renna inn á Fitjum, er ekki af-
gangsvatn," sagði Ingólfur,
,,vegna þess að um leið og
neysla minnkar eins og hún gerir
á sumrin, þá er framleiðslan
minnkuð og þá notum við tæki-
færið og hreinsum rásirnar sem
eru í gangi. Þær eru 5 núna og
lokuðum við t.d. fyrir 2 þeirra á
tímabili nýlega. Sumartíminn er
notaður til þess, því að á veturna
megum við ekkert missa.
Aftur á móti kemur til með að
renna út blöndunarvatn frá flug-
vellinum, en það yrði mjög tima-
bundið sem þessi afgangur
verður, meðan völlurinn er ekki
fulltengdur, svo það yrði aðeins
til að plata fólk að vera að búa til
falska baðlaug sem yrði svo tekin
af þvi.
Annars eru pottarnir sem fólk er
að útbúa heima hjá sér í stórum
stíl, að verða vandamál fyrir okk-
ur. ( þá er notað neysluvatn og er
notað þrefalt meira magn en sem
hemillinn skammtar til upphit-
unar, miðað við 6-8 tonna potta.
Með sama áframhaldi mun
notkunin því verða meiri á
sumrin en á veturna.
..Þetta er mjög góð hugmynd,
að nota affallsvatnið inn á Fitjum
í eitthvað svona, þegar fram-
leiðslugeta verður það mikil, en
ég held að það yrði að vera fram-
kvæmd sem yrði að leggja eitt-
hvað í og sem myndi kosta eitt-
hvað, ekki bara grafa skurð og
segja svo fólkinu að striplast
þarna. Mér sýnist á öllu að það
geti ekki orðið langt þangað til
að þéttbýliskjarnarnir komi sér
upp góðri útisundlaug, og þá
yrði það ódýrasta lausnin, næst
affallinu," sagði Ingólfur að
lokum.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Öldungadeild
Skráning fer fram á skrifstofunni 17.-28. ágúst kl.
9-12 og 13-16.
Skólagjaldið er kr. 300 fyrir eina eða tvær greinar,
en 500 kr. fyrir þrjár eða fleiri.
Þeir sem völdu í vor eru beðnir að staðfesta það
með greiðslu þátttökugjalds.
Nauðsynlegt er að velja sem fyrst, svo að Ijóst sé
hvaða áfangar verði nógu fjölmennir, svo að heim-
ilt verði að halda uppi kennslu í þeim.
Kennsla hefst fyrstu vikuna í september.
Skólameistari
'TTrn'WmTi
Teppaúrvalið hjá okkur er
J meira en þig grunar.