Víkurfréttir - 13.08.1981, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 13. ágúst 1981
VÍKUR-fréttir
Sérleyfisbifreiðir
Keflavíkur
Sandgerði — Reykjavík
Keflavík — Reykjavík
Frá Frá Frá
Sandgerði: Keflavík: Reykjavík:
8.30** 6.45* 9.00*
10.35* 9.00 11.30*
13.00 11.00* 13.30
15.00 13.30 15.30
17.00 15.30 17.30
19.00 17.30 19.00
19.30 23.00
* Ekki helgidaga.
** Ekid um Garö, annars um Miðnesheidi.
AUKAFERÐIR Á HELGIDÖGUM:
Frá Keflavík kl. 12og 22.30.
Frá Sandgerði kl. 22.
Frá Reykjavik kl. 10.30 og 24.
AUKAFERÐIR Á LAUGARDÖGUM:
Frá Keflavík kl. 22.30.
Frá Sandgerði kl. 22.
Frá Reykjavik kl. 24.
Nýársdag, föstud. langa, páskadag og
hvítasunnudag er fyrsta feró kl. 12 frá
Keflavík.
ATH.: í öllum ferðum frá Keflavík, nema kl.
17.30, aukaferðum og kl. 9 á helgidögum,
er ekið í Reykjavík um Kringlumýrarbraut,
Laugaveg, Skúlagötu og Lækjargötu.
HITAVEITA
SUÐURNESJA
Þjónustu-
síminn er
3536
AUGLÝSIÐ í VÍKUR-FRÉTTUM
Videoið í algleymingi
Veturinn 1979másegjaaövísir
að video-útleigu hafi skotið
rótum í Keflavík. Þá hóf kaup-
maður hér í bae útleigu á spólum
sem hann hafði keypt erlendis.
Eftir það má segja að skriðan hafi
mjakast af stað. Og í sumar
komst videoiö í algleyming hér
sem annars staðar. Þeirsem reka
útleigu komust í dúndrandi við-
skipti og líklega má telja fremst-
an í flokki Tomma Videoking.
Ekki er ennþá hægt að spá um
hvort viöskiptin minnki eitthvað í
kjölfar opnunar sjónvarpsins, en
hvað með forráðamenn kvik-
myndahúsanna? eins og flestum
munn kunnugt þá hafa reykvísk-
ir bíókallar riðið á vaðið og kært
videoútleigur fyrir ólöglega
starfsemi.
( Keflavík eru tvö kvikmynda-
hús og við höfðum samband við
forráðamenn þeirra, þá Óla Þór
Hjaltason í Félagsbíói og Árna
Samúelsson í Nýja Bíói.
Óli Þór kvað videoiðveraorðið
verulegt vandamál fyrir kvik-
myndahúsin og nefndi i þvi sam-
bandi eftirfarandi tölur:
Aðsókn að Féfagbíói
íjúlímánuðum 1979-1981:
(f. = fullorðnir. b. = börn yngri
en 12 ára):
1979: f. 7.431 b. 960 Mis-
munur milli áraf. 12.1%, b. 14.7%.
1980: f. 6.530 b. 819 Mis-
munur milli áraf. 15.7%, b. 31.6%.
1981: f. 5.504 b. 560 Mis-
munur milli áranna ’79-’81:
f. 25.9% b. 41.6%.
Það er því augljóst að veruleg-
ur samdráttur hefur átt sér stað
og erfitt að sjá aðra ástæðu fyrir
því en aukna notkun video í
heimahúsum. Þegar sýndar eru
kvikmyndir alla daga vikunnar,
bæði fyrir börn og fullorðna, er
ólíklegt að fólk sæki mikið bíóin.
Árni Samúelsson var þessu
Þessi ungi maður heitir Ey-
steinn Jónsson. Hann hélt
hlutaveltu aö Baldursgaröi 2 í
Keflavík til styrktar Þroskahjálp á
Suðurnesjum og varð ágóöinn
470 krónur. Honum til aöstoöar
var Valtýr Kristjánsson.
sammála og sagði hann að júní
hefði verið mjög lélegur hvað
varðaraösókn, svoogeinnigjúlí,
en þó hefði aðsókn eitthvað
glæðst undir lok mánaðarins.
Árni sagði að videoið væri það
sem koma skyldi og ekki þýddi
að streitast á móti því. „Aftur á
móti," sagði hann, ,,á videoút-
leigan alfarið að vera í höndum
kvikmyndahúsanna, og þau
myndu leigja út myndir með ís-
lenskum texta eftir að myndirnar
hefðu verið sýndar í bíóunum."
Þess má að lokum geta, að
Árni og Óli Þór hafa ritað bæjar-
fógeta bréf þar sem beðið er um
rannsókn á videoútleigum.
Lögreglumenn
sendir til Eyja
Þegar mikill fjöldi fólks safnast
saman á einum stað til að
skemmta sér, þarf lögreglan á
viðkmandi stað oft að fá liðsauka
annars staðar frá til að vera við
öllu búin. Um verslunarmanna-
helgina var einmitt þannig
ástand í Vestmannaeyjum.
Af því tilefni voru fengnir 5 lög-
reglumenn úr Suðurnesjalög-
reglunni ásamt einni lögreglu-
bifreið, og dvöldu þeir þarna
meðan þjóðhátíð þeirra eyja-
skeggja stóð yfir, til aðstoðar
heimalögreglunni.
Keflavík:
Ný bílaleiga
Stofnað hefur verið i Keflavík
fyrirtæki sem ber nafnið Bíla-
leigan Valberg hf. og er staðsett
að Túngötu 21. Eins og nafnið
bendir til er þarna um að ræða
bílaleigu ásamt kaup og sölu
bireiða, en bílaleigan leigir út VW
Golf bíla.
Stofnendur eru Valberg Helga-
son, Rita Helgason, Haraldur
Valbergsson og Reynir Valbergs-
son, öll í Keflavík, svo og Rósa
Ólafsdóttir og Pétur Axel Jónss-
son, Reykjavík. Framkvæmda-
stjóri er Valberg Helgason.
Brimröst hf.
Njarðvík
meö útibú í Höfnum
í Njarðvík hefur verið stofnsett
fiskverkunar- og útgerðarfyrir-
tæki, sem ber nafniö Brimröst hf.
og mun fyrirtækið hafa útibú í
Höfnum.
Stofnendur eru Jenný Magn-
úsdóttir húsmóðir, Sólveig Daní-
elsdóttir húsmóðir, Guðmundur
Gestsson verktaki, Magnús
Daníelsson útgerðarmaður og
Eyrún Jónsdóttir húsmóðir, öll til
heimilis í Njarövík.
Framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins er Guömundur Gestsson.