Víkurfréttir - 13.08.1981, Blaðsíða 12
l^tZ^rCÉTTBC
j Fimmtudagur 13. ágúst 1981
SPARISJÓÐURINN
er lánastofnun allra
Suðurnesjamanna.
Stórmarkaður Kaupfélags Suðurnesja:
Framkvæmdir hafnar
Guðnl Magnússon tekur
fyrstu skóflustunguna.
17. júli sl. hófustframkvæmdir
við hinn nýja stórmarkað
Kaupfélags Suðurnesja, þegar
Guðni Magnússon, fyrsti stjórn-
arformaður kaupfélagsins, tók
fyrstu skóflustunguna.
Húsið verður 2300 ferm. á
einni hæð með 300 ferm. risi,
sem notað verður fyrir starfs-
mannaaðstöðu o.fl. í húsinu
verður kjötvinnsla og allar deild-
ir nema byggingavörur.
Jarðvinnu á að Ijúka í þessari
viku og þá verður farið að vinna
við sökkul. Stefnt er að því að
taka húsið í notkun fyrir lok
næsta árs.
Kambur hf. annaðist jarðvinnu
og byggingameistari er Sveinn
Ormsson, og einnig koma þar
ýmsir undirverktar við sögu.
Gunnar Sveinsson, kaupfélagsstjóri, ávarpar viðstadda
Þessl mynd var tekin í Njarðvík einn föstudaginn í sumar við blóma-
bílinn, sem er orðinn fastur liður í viðskiptalífi Suðurnesjamanna. Nú
hefur vöruúrvalið aukist (þó ekki á vegum blómabílsins) og kominn
vísiraðvefnaðarvörudeild. Heyrst hefurað kaupmenn su farniraðlíta
þetta markaðssvæði hornauga.
Fækkun í
Fjölbrautaskólanum
Á sl. vetri fækkaði nemendum
Fjölbrautaskólans, og enn frek-
ari fækkun kemur fram núna. Að
sögn Ingólfs Halldórssonar, að-
stoðarskólameistara, hefurnem-
endum fækkað um 20 frá sl.
hausti. Taldi hann að eðlilegar
ástæður lægju að baki þessari
fækkun. í vor hættu 5 kennarar
og hafa 2 kennarar verið ráðnir í
staðinn og i athugun eru fleiri
ráðningar, að sögn Ingólfs.
,,Við höfum komið okkur upp
frábærri verknámsaðstöðu ítré-,
málm- og vélstjóranámi," sagði
Ingólfur, ,,en samt hefur engin
fjölgun orðið í þessum greinum.
Ungt fólk virðist ekki hafa áttað
sig á þeirri breytingu sem oröið
hefur á möguleikunum sem
bjóðast ásviði iðnnáms. Áðurvar
iðnnám tiltölulega lokuð leið, en
með aukinni verknámskennslu í
skólunum hefuroröið stórbreyt-
ing þar á."
Að lokum gat Ingólfur þess, að
,Akkilesarhæll“ Fjölbrautaskól-
ans hingað til, nefnilega aðstað-
an til raungreinanáms, hefði
verið stórbætt. Nú væri búið að
koma upp vel útbúinni kennslu-
stofu, og ráðinn nýr raungreina-
kennari.
Bætt aðstaða við íþróttahúsið
Nú eru hafnar byggingaframkvæmdir við íþróttahúsið i Keflavík og á
þeim að vera lokið fyrir 1. nóvember. Um er að ræðátvöföldun bún-
ingsklefa og nýjan forsal. Samtalseru þetta 240ferm. Mannvirkisf. sér
um framkvæmdina.
Áskorun til bæjarbúa
Ibúar Keflavíkurog nágrennis,
vinsamlegast leggið niður þann
Ijóta ósiö að henda húsasorpi og
öðru rusli i uppfyllinguna neðan
viö Ungó og norðan við Stokka-
vörina. Þessu má öllu koma fyrir
kattarnef meö því að fara með
þaö í Sorpeyðingarstöðina.
Bærinn er nógu sóöalegur þó
ekki séu útbúnir ruslahaugar í
sjálfum miðbænum.