Víkurfréttir - 27.08.1981, Blaðsíða 1
15. tbl. 2. árg. Fimmtudagur 27. ágúst 1981
fCÉTTIC
Sofandaháttur eða
skilningsleysi?
Upp undir helmingur af öllu
ieguplássi við sjúkrahúsið í
Keflavik er notað fyrir öldrunar-
09 aðra langlegusjúklinga, sem
Þurfa ekki þá hjúkrun sem
sérhæft sjúkrahús býður upp á.
Þetta fólk ætti að fá sína þjón-
ustu á svokölluðum hjúkrunar-
deildum sem gjarnan eru reknar
samhliða elliheimilum.
Það þarf varla að taka þaö
fi'am, að þaö kostar mun meira
að leggja langlegusjúklinga inn á
sjúkrahús, heldur en á hjúkrun-
ardeild. Þvi er orðið knýjandi að
leita úrbóta á þessu vandamáli.
Á fundi bæjarstjórnar Kefla-
vikur 5. maí sl. voru samþykktar
Þrjár tillögur þar sem þessu máli
var vísað til stjórnar SSS og heil-
brigðisráðs Reykjaness-læknis-
héraðs.
Svar stjórnar SSS er nokkuð
kostulegt og er ástæða til að
birta það i heild (124. fundur
stjórnar SSS):
,,1. mál. Erindi frá Keflavíkur-
bæ samkvæmt fundargerð 4.
júní, 3. mál.
Á fundinum kom fram það
megin sjónarmið, að framtíðar-
skipan hjúkrunarmála aldraðra á
Suðurnesjum verði sú, að hún
verði leyst að megin hluta til
innan vébanda sjúkrahússins
meö byggingu langlegudeilda.
En auk þess verði óhjákvæmi-
Þekkir þú bæjar-
fulltrúana í Kefla-
vík og Njarðvík?
Sjá könnun
í opnu.
legt að í öldrunarheimili, eins og
t.d. Garðvangi, verði nokkur
hjúkrunaraðstaða fyrir vistfólk,
sem veikist tímabundið eða þarf
svokallaða létta hjúkrun um
lengri eða skemmri tíma. Meö
hliðsjón af því er stjórn Garð-
vangs hvött til að taka afstöðu til
þessara mála í sambandi við
næsta byggingaráfanga." u
Framh. é 9. slðu
Hæst tíðni hjartatilfella
á Suðurnesjum
Samkvæmt upplýsingum, sem
að vísu hafa ekki fengist stað-
festar og þeim heldur ekki verið
neitað, hafa Suðurnesjamenn
bætt nýju íslandsmeti í safn sitt.
Met þetta er þó ekki fagnaöar-
efni, síður en svo.
Samkv. þeim upþlýsingum
sem blaðið hefur undir höndum,
er tíðni hjartasjúklinga hæst hér
á landi á Suðurnesjum og er þá
einungis átt við þá sem lagðir
hafa verið inn á sjúkrahús vegna
þessa.
Samkv. þessum upplýsingum
komu upp 140 hjartatilfelli hér á
árinu 1979 þar sem flytja þurfti
viðkomandi á sjúkrahús, sem í
flestum tilfellum er þá Borgar-
spítalinn í Reykjavik. Er þetta um
1% af íbúum Suðurnesja, sem er
mjög hátt hlutfall miðaö við
önnur byggðarlög, jafnvel þó
ekki sé tekið tillit til mannfjölda.
Þá er það ekki síður merkilegt, að
sjúkraflutningar þessir virðast
koma í kippum, ef svo má að orði
komast, því suma daga fara þeir
upp í töluna 4, enda er nú svo
komið að talið er að fjórði hver
hjartasjúklingur á Borgarspital-
Framh. á 5. síðu
Þessi mynd var tekin í Njarðvíkurhöfn sl. laugardag, er landfestar m.b.
Keilis slitnuðu að aftan. Við þetta snerist báturinn og steytti á skeri.
Náðist hann áflotáflóðinuog urðuengarteljandiskemmdiráhonum.
S.S.S.: c
Iðnþróunar-
fulltrúi ráðinn
Þórir Aðalsteinsson, iðnþró-
unar- og rekstrartæknifræðing-
ur, hefur verið ráðinn iðnþróun-
arfulltrúi hjá Sambandi sveitar-
félaga á Suðurnesjum. Þórir er
26 ára gamall og er útskrifaður
frá Odense í Danmörku.
Eitt af fyrstu verkefnum hans
verður að standa fyrir námskeiði
í stofnun fyrirtækja. Einnig
verður hann til trausts og halds
fyrir þá sem vilja fara út inýsköp-
unarverkefni í smáiðnaði, sér-
staklega með því markmiði að
auka fjölda smáfyrirtækja í iðn-
aði, treysta möguleika nýrra fyr-
irtækja til að lifa af byrjunarörð-
ugleika, auka samkeppnisgetu
þeirra, og móta iðnaðarumhverfi
landshlutans.
Þórir hóf störf 1. ágúst sl. og er
hann boðinn velkominntilstarfa.
Heiðarbyggð IV.
Byggingaframkvæmdir eru nú hafnar af krafti í Heiðarbyggð IV.
Búið er að slá uþp fyrir grunnum og húsum, og þegar flutt í eitt
þeirra. Þarna munu rísa bæði stein- og timburhús.