Víkurfréttir - 27.08.1981, Síða 8
8 Fimmtudagur 27. ágúst 1981
VÍKUR-fréttir
Frá
Gagnfræðaskól-
anum í Keflavík
Kennarafundur verður haldinn í skólanum þriðju-
daginn 1. september kl. 14.
Nemendur komi í skólann sem hér segir:
9. bekkur mánudaginn 7. sept. kl. 8.
8. bekkur mánudaginn 7. sept. kl. 10.
7. bekkur mánudaginn 7. sept. kl. 13.
6. bekkur mánudaginn 7. sept. kl. 15.
Skólastjóri
Barnaskólinn
í Keflavík
1. Kennarafundur verður 1. september kl. 10.
2. Nemendur eru beðnir að mæta í skólann við
Sólvallagötu eins og hér segir:
Föstudag 4. sept.:
5. bekkur (11 ára) kl. 9.00.
4. bekkur (10 ára) kl. 10.00.
3. bekkur (9 ára) kl. 11.00.
2. bekkur (8 ára) kl. 12.00.
1. bekkur (7 ára) kl. 14.00.
3. Innritun 6 ára barna fer fram fimmtudaginn 3.
og föstudaginn 4. september kl. 10-12 og 13-14
í skólanum við Skólaveg.
4. Skólaakstur mun verða fyrir alla bekki Barna-
skólans í vetur. Verður hann nánar auglýstur í
skólanum.
Skólastjóri
Grunnskóli
Njarðvíkur
Kennarafundur verður þriðjudaginn 1. september
kl. 10.
6 ára nemendur komi til innritunar í skólann dag-
ana 3. og 4. september kl. 9.00-12.00.
Nemendur 7., 8. og 9. bekkjar komi í skólann föstu-
daginn 4. sept. kl. 9.00.
Nemendur 4., 5. og 6. bekkjar komi í skólann sama
dag kl. 10.30.
Nemendur 1., 2. og 3. bekkjar komi einnig sama
dag í skólann kl. 13.00.
Skólastjóri
Magnús Guöfinnsson, lengst t.h., teflir viö Kópavogsbúa um 2. sæti
i unglingakeppninni, og vann. fsleifur Gislason horfir á.
Litla deildarkeppnin
Litlu deildarkeppninni í skák
lauk nýlega. Teflt var á 8 borðum
og tryggði Skákfélag Keflavíkur
sér sigur í mótinu með því að
vinna Hafnfirðinga 41/2: 3'/2.
Úrslit urðu sem hér segir:
Keflavík ........... 21 v.
Kópavogur .......... 19 v.
Hafnarfjörður ...... 17 v.
Seltjarnarnes ...... 17 v.
Garöabær ............ 6 v.
Jafnframt var teflt á 2 ungl-
ingaborðum og þar urðu Keflvík-
ingar í 2. sæti með 4 v. af 8.
Hraðskákmót fór fram í Hafn-
arfirði með sömu liðum, 16. ág.,
og þar urðu Keflvíkingarí3. sæti.
Teflt var á 10 borðum.
Úrslit urðu:
Hafnarfjörður ....... 621/2
Seltjarnarnes ......... 56Vi
Keflavík ............. 38V4
Kópavogur ............ 28V4
Garðabær ........... 14
FEGURSTI GARÐURINN
Framh. af 12. síöu
Þá má geta þess að Njarðvík-
urbær hefur nú lagt gangstéttir
með grasflötum við nokkrar göt-
ur í bænum, og á það vafalaust
eftir að ýta undir það að fólk
reyni að hafa snyrtilegt í kring-
um sig.
Umhverfisnefndin hefur haft
samvinnu við félagasamtök um
val fegurstu garða og umhverfis,
og í þetta sinn var Systrafélag
Innri-Njarðvíkur haft með í ráð-
um og vill nefndin þakka því fyrir
gott samstarf.
Nautið, Keflavík:
Næst stærsti pizzu-
framleiðandinn á landinu
Fyrir nokkru hóf Nautið að
Hafnargötu 19 i Keflavík, fram-
leiðslu á pizzum undirvörumerk-
inu EL TORO. Eru þarn fram-
leiddar tvær tegundir af pizzum í
tveim stærðum. Framleiðsla
þessi hefur gengið það vel, að í
dag er þetta orðin næst stærsta
framleiðsla á þessari vöru hér á
landi. Vörunni er dreift í flestar
verslanir á Suðurnesjum, stór-
Reykjavíkursvæöinu svo og í
ýmsar verslanir um land allt.
Á næstunni stendur til að hefja
framleiðslu á mini-pizzum, sem
eru ætlaðar til sölu í sjoppum, og
verða þær í þar til gerðum bökk-
um þannigaðhægtverðiaðsetja
þær í geislaofna og selja síðan
líkt og pylsur og heitar samlokur.
Auk þess hefur verið framleitt
hrásalat undir sama vörumerki
og selt í búðir hér á Suðurnesjum
í hentugum umbúöum, og hefst
ekki undan að framleiöa þá vöru,
aö sögn Erlings Laufdal, eiganda
Nautsins.
Vandræðahús - Sama-
staður unglinga
( 12. tbl. Víkur-frétta var rætt
um hús er svo sannarlega þurfa
umhirðu en eru nú eigendum
sinum og bæjarfélaginu til lítils
sóma. Annað þessara húsa er að
Duusgötu 5 í Keflavík og bar hér
áður nafnið ,,Gamla búðin" og er
í eigu Keflavíkur hf.
Að undanförnu hefur þetta hús
verið samastaður ýmissa
unglinga á fermingaraldri og þar
í kring. Hafa þau verið þarna við
ýmsa þá iðju sem ekki er til eftir-
breytni og hefur lögreglan þurft
að hafa nokkur afskipti þar af.
Til að koma í veg fyrir áfram-
hald á veru unglinga þarna, og til
aö húsið sómi sér þar sem það er,
ættu eigendur þess nú að taka
sig til, loka húsinu og snyrta
síðan ytra útlit þess a.m.k.