Víkurfréttir - 27.08.1981, Síða 10
10 Fimmtudagur 27. ágúst 1981
___________ VÍKUR-fréttir
Felgu og varadekki stoiið
Einn morguninn nýlega erstarfsmenn Bifreiða- og vélaverkstæðis
Kristófers Þorgrímssonar við Iðavelli i Keflavík, komu til vinnu, sáu
þeir að einhverjir óprúttnir náungar höfðu stolið felgu undan Subaru-
bifreið, sem hafði verið til viðgerðar og stóð þar úti fyrir. Var bíllinn
skilinn eftir á tjakknum, eins og myndin sýnir, og við nánari athugun
kom í Ijós að varadekkið var einnig farið. Fyrir 3 mánuðum var stolið
tveim felgum undan bifreið sem stóð þarna fyrir utan, og eru þeirsem
verða varir við grunsamlegar mannaferðir í kringum verkstæðið,
beðnir að tilkynna það lögreglunni tafarlaust.
Sló Duus-túnið
með orfi og Ijá
Hætt er við að ýmsar gamlar
minningar hafi rifjast upp hjá
mörgum gömlu mannanna nú
um daginn, er þeirsáu að Hilmar
Eyberg var farinn að slá Duus-
túnið með orfi og Ijá. Túnið
liggur milli Vesturbrautar og
Grófar í Keflavík og hefur ekki
verið slegið í fjölda ára, og því í
mikilli órækt.
Hilmar á að sögn um 40 rollur
og um tug hesta, og með því að
sláallttúnið vonast hann til að fá
af því fóður þriggja hesta í vetur.
Auglýsið
VlKUR-fréttum
Lofsvert framtak
körfuknattleiksmanna ÍBK
Úrvalsdeildarkandidatarnir í
körfuknattleiksdeild ÍBK, ásamt
yngri og eldri stuðnings- og leik-
mönnum, stóðu í stórræðum
helgina 15.-16. þ.m. Þá rifu þeir
niður bragga í Heiðarbyggð og
fengu samkvæmt samkomulagi
15.000 kr. í laun frá bænum. Pen-
ingarnir renna í vetrarstarfið.
Mættir voru á staðinn Axel
traktor og Jón skófla með frítt
föruneyti manna og véla.
Niðurrifiðföruneyti manna og
Niðurrifið gekk fljótt og vel fyrir
sig og er það mál manna, að ef
ætti að stofna niðurrifsdeild hjá
bænum, séu kapparnir í körfu-
boltanum þar sjálfkjörnir.
Ætlunin er að fáfleiri braggatil
niðurrifs, þvi eins og alþjóð veit
þá er alltaf tómahljóð í peninga-
kössum íþróttafélaganna. Einnig
er þetta skemmtilegt fyrir strák-
ana fyrir þær sakir, aö þeir gera
þetta sjálfir og reyna þannig að
afla peninga í sjóð, í stað þess að
vera sífellt með betlistaf hjá
íbúum bæjarins, eins og einn
þeirra komst að orði.
Víkur-fréttir senda íþrótta-
mönnum Suðurnesja baráttu-
kveðjur í tilefni þéss að nú fer
vertíð innanhússíþrótta að hefj-
ast.
Að verki loknu
Laus staða
Staða bókara við embættið er laus til umsóknar.
Upplýsingar um launakjör eru veittar á skrifstofu
minni.
Starfsumsóknirskulu hafa borist mérfyrir 15. sept-
ember n.k.
Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli,
11. ágúst 1981.
Þorgeir Þorsteinsson
1
Baðvörður
stúlkna óskast
Baðvarðarstaða stúlkna við ípróttahús Barnaskól-
ans í Keflavík er laus til umsóknar.
Upplýsingar um starfið veitir skólastjóri í síma
1450.
Umsóknir sendist bæjarstjóra fyrir 1. sept. n.k.
Bæjarstjóri
É=S3
■Bi
Keflavíkurbær
Ritarastarf
Starf ritara á skrifstofu Keflavíkurbæjar er laust til
umsóknar.
Æskilegt er að umsækjendur hafi starfsreynslu og
góða vélritunarkunnáttu.
Laun samkv. 11. launaflokki STKB.
Umsóknum beraðskilatil undirritaðsfyrir 1. sept-
ember n.k., sem veitir nánari upplýsingar.
Bæjarstjórinn í Keflavik
Fyrirtækismót
í utanhússknattspyrnu
verður haldið laugardaginn 19. og sunnudaginn
20. september n.k. á grasvellinum í Njarðvík.
Þátttökugjald er 500 kr. og tilkynnist fyrir 1. sept.
7 leikmenn + skiptimenn. Leiktími 2x15 mín.
Uppl. og þátttökutilkynningar
í símum 3353, 3440,
3062 og 3882.
Knattspyrnudeild UMFN
Hitaveita
Suðurnesja
Þjónustusíminn er
3536