Víkurfréttir - 27.08.1981, Qupperneq 12
| Fimmtudagur 27. ágúst 1981
SPARISJÓÐURINN
er lánastofnun allra
Suðurnesjamanna.
Keflavík:i:
Njarðvík: c
Fagurt umhverfi verðlaunað
Áhugi fyrir garðrækt hefur aukist mikið
Fegursti garðurinn 1981
að Borgarvegi 26
Dómnefnd skrúðgaröa og um-
hverfis í Keflavík fyrlr árið 1981
hefur nýlega lokið störfum.
Á skoðunarferðum sínum um
bæinn í sumar telur nefndin
ánægjulegt að sjá hve almennur
áhugi fyrir garðrækt hefur aukist
i Keflavík á undanförnum árum
og margir húseigendur leggja
mjög mikla vinnu i að fegra og
snyrta lóðir og umhverfi.
Að mati dómnefndar uppfyllti
þó enginn garður þau skilyrði í ár
til að hljóta heiöursverðlaun, en
mjög marga tilvonandi verð-
launagarða sá nefndin á ferðum
sínum um bæinn.
Það var samdóma álit dóm-
nefndar að veita hjónunum Báru
Þóröardóttur og Halldóri Hjart-
arsyni að Elliðavöllum 5, viður-
kenningu fyrir ungan garð
þeirra, sem er vel skipulagður og
mjög snyrtilegur i alla staði. Ein-
kenni þessa garðs er hve opinn
hann er og sést hann vel af göt-
unni, en eins og þeir vita sem til
þekkja, er mjög erfitt um ræktun
garða í þessu hverfi sökum næð-
ings.
Framhald á 9. tfðu
Umhverfisnefnd Njarðvíkur
hefur nú i þriðja sinn veitt verð-
laun fyrir fegursta garðinn og
fagurt umhverfi. Þrenn verðlaun
voru veitt, en þau hlutu eftirtaldir
aðilar:
Hafdís Garðarsdóttir og Einar
Jónsson, Borgarvegi 26, hlutu
viöurkenningu fyrir fallegasta
garðinn í Njarðvík.
Margrét Hallgrímsdóttir og
Guðjón Klemenzson, Brekku-
stíg 15, hlutu viðurkenningu fyrir
góða umhirðu á húsi og lóð um
árabil.
Guðríður Helgadóttir og Sig-
urður Sigurðsson, Kirkjubraut 2,
hlutu viðurkenningu fyrir fallegt
hús, snyrtilegan og vel hirtan
garð.
Að sögn Ólafs Eggertssonar,
form. umhverfisnefndar Njarð-
víkur, stóð einnig til að veita fyrir-
tæki viðurkenningu fyrir snyrti-
mennsku, en þrátt fyrir mikla leit
fyrirfannst ekkert fyrirtæki sem
verðskuldaði slika viðurkenn-
ingu, að mati nefndarinnar.
Framh. á 8. sfðu
Elliðavellir 5
Lyngholt 15
Helðarvegur 17
Borgarvegur 26
Kirkjubraut 2
Brekkustfgur 15